SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Síða 37

SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Síða 37
6. desember 2009 37 Einar H. Kvaran lést árið 1938. Í umslagi í bréfasafn- inu eru vélrituð blöð með yfirskrift- inni: „Sýn Haf- steins Björnssonar í fríkirkjunni við út- för Einars“: „Þegar ég kom inn í kirkjuna sá ég að hún var fag- urlega ljómuð og jafnframt tók ég eft- ir miklum mann- fjölda, er mér virtist vera í nokkurri fjar- lægð. Ég sá þegar Einar H. Kvaran, móður hans, séra Harald Níelsson og virtust mér þau sitja fyrir framan fólkið, er ég sá að baki þeim. Tók ég nú eftir að einn og einn kom úr hópi þessum, gekk til hans og tók í hönd hans. Ég spurði Finnu hvað þetta ætti að þýða. Sagði hún mér þá, að menn þessir væru að þakka honum fyrir það, er hann hefði gert fyrir þá, bæði hér í heimi og eins eftir að þeir hefðu flutt yfir landamærin. Að vörmu spori hvarf þetta mér sýnum, en ég sá nú aftur Einar H. Kvaran og fylgdist móðir hans með honum. Var sem að þau svifu fremur en gengju, er þau færðu sig nær. Sá ég þessu næst að hann gekk til konu sinnar, tók í hönd hennar og klappaði henni á kinnina og slíkt hið sama gerði móðir hans. Gengu þau því næst til sætis, er þeim virtist hafa verið búið vinstramegin við alt- arið. Sá ég þetta gerast meðan verið var að syngja fyrsta sálminn. Þessu næst sá ég koma hóp ungra barna til hans. Sum settust á hné hans, önnur tóku í hönd hans og öll vildu þau snerta hann og vera sem næst honum. Ég minnist ekki að hafa séð jafn ást- úðlegt augnaráð frá föður til barna sinna, eins og það, er hann sendi þeim.“ Sýn frá útför Einars Ljósmynd frá miðilsfundi sem Einari hafði borist. Langfínasti snillingurinn í óbundnu máli Einar H. Kvaran var stórmenni á sínum tíma og það er merkilegt að fá stórt og merkilegt safn svona löngu eft- ir að hann deyr,“ segir Bragi Þorgrímur Ólafsson sagn- fræðingur í handritadeild Landsbókasafnsins. „Þarna leynist mikið af nýjum upplýsingum um stjórnmálin, bókmenntirnar, spíritismann, árin í Winnipeg og Vesturheimi, og það er sjaldgæft að fá svona stórt bréfasafn í einni afhendingu. Einar kom víða við á ævinni.Hann var í Lærða skólanum, fór til náms í Kaupmannahöfn, síðan til Kanada, aftur til Ís- lands, Akureyrar og Reykjavíkur, og hann kynntist öllum þessum stöðum. Það er því engin spurning að í þessu safni leynist mikið af merkilegum bréfum t.d. frá Íslendingum í Vesturheimi. Yfirleitt komu bréf samferðamanna hans inn á skjalasöfnin um miðja síðustu öld og það gefur vísbendingu um að enn sé til fólk úti í bæ, sem lumi á merkilegum bréfasöfnum, og full ástæða er til að hvetja það til að skila þeim á söfn.“ – Vakti eitthvað athygli þína, svona í fljótu bragði? „Fyrst leit maður á stóru nöfnin, svo sem Einar Benediktsson, Matthías Jochumsson og Ólöfu frá Hlöð- um. Þarna eru til dæmis nýjar upplýsingar um ritsíma- málið. Svo er skemmtilegt að Matthías skrifar bréf til Einars, sem gegndi þá starfi ritstjóra, og sagðist vera að þýða mjög merkilega bók, sjötta bindi af Sögum her- læknisins, og bað hann að fjalla vel um bókina í blaðinu, því hann hefði svo mikil völd sem ritstjóri. Það gefur skemmtilega mynd af þeim völdum sem rit- stjórar höfðu á þessum tíma, fyrir daga útvarps og sjónvarps.“ – Og hafa enn! „Jú einmitt,“ segir Bragi og hlær. „Innskot blaða- manns! Það var ansi öflug blaðaútgáfa á þessum tíma og oft heitar deilur þeirra á milli. Svo sendir Ólöf frá Hlöð- um bréf til Einars og mig langar til að lesa úr því fyrir þig: „Sjálfsagt er það illa gjört af mjer, að eyða tíma frá yð- ur, en jeg þarf endilega að þakka þér fínu nautnina sem jeg á vísa þegar jeg næ mjer í eitthvað nýtt að lesa eptir yður. Eptir minni tilfinningu eruð þjer nú langfínasti snillingurinn í óbundnu máli, en vitaskuld styðst það álit mitt við litla eða enga lærdómslega þekkingu og hefir því ekki gildi, nje gagnar öðrum en mjer, en sú tilfinning gjörir yður mjer einkamætan og gefur mér ósvikinn un- að.“ Þetta er nú mikil hæverska hjá Ólöfu! Í safninu er líka mikið af fjölskyldubréfum og bréfum um spíritismann, þar sem sést vel hvað þetta var sterk trú og umdeild. Þarna leynast líka upplýsingar um leiklistasöguna, en Einar kom mikið við sögu Leikfélags Reykjavíkur. Hérna er t.d. bréf frá einum leikara, Árna Eiríkssyni, sem skrif- aði frá Kaupmannahöfn árið 1904, en þá var Leikfélag Reykjavíkur nýstofnað: „Við verðum að fá leikhús í Reykjavík hvað sem það gildir. Þessi ruslahrúga sem við höfum núna gengur ekki lengur.““ Drykkjuvísur í handriti Einars frá námsárunum. Morgunblaðið/Ómar Deilan um ritsímann „Eitt heitasta deilumálið á Íslandi árið 1905 er rit- símamálið svokallaða,“ segir Bragi. „Upphaf málsins má rekja til þess að í sept- ember 1904 skrifaði Hannes Hafstein undir upp- kast að samningi við danskt félag, Stóra norræna ritsímafélagið, um lagningu ritsíma til Íslands. Þeg- ar fréttist af þessu varð mikið umrót meðal Íslend- inga, en talið var að samningurinn yrði afar dýr fyr- ir landið og að heppilegra hefði verið að semja frekar við fyrirtæki sem notaði loftskeytatækni. Eitt þeirra var Marconifélagið í London sem hafði Einar Benediktsson á sínum snærum til að greiða götu þess á Íslandi. Í apríl 1905 fór Einar til Lond- on til viðræðna við félagið og úr varð að það ætl- aði að reisa móttökustöð fyrir loftskeyti í Reykjavík og sýna Íslendingum að loftskeytatæknin væri mun heppilegri lausn en ritsíminn. Allt er þetta leynileg áætlun, enda um eldfimt mál að ræða heima á Íslandi. Þannig má benda á hið fræga bændauppþot 1905, þegar bændur flykktust til Reykjavíkur til að mótmæla ritsímanum, sem dæmi um það. Í mars 1905 skrifar Einar bréf til Einars H. Kvaran undir yfirskriftinni „Privatissime“ og segir frá þessum fyrirætlunum: „Kæri vin! Jeg hef mjer í sömu svipan fengið ýtarlegt brjef Marconifjelagsins með nýrri uppá- stungu sem jeg er viss um að muni gleðja þig og alla vini góðra ráðstafana um telegrafmálið. Fjelag- ið hefur uppálagt mjer að fara stranglega leynilega með fyrirætlan þess, en með því að við höfum hjer samvinnu fyrir hendi báðir, hvor á sinn hátt, og jeg treysti fullkomnlega discretion þinni, álít jeg mjer nú þegar að gjöra þjer kunnugt aðalatriðið í brjefi félagsins, sem er það, að þeir vilja á sinn eigin kostnað nú í vor setja upp station hjá Reykjavík, sem sendist á skeytum við Poldhustation þeim sem þegar hefur fungerað eins og þjer mun vera kunnugt. Að þessu sinni verð jeg að láta mjer nægja að biðja þig í kyrrþey, og án þess að nokkur maður fái pata af þessu, að útvega þjer sem blaðaritstjóra í framtímanum áreiðanlega upplýsing um það eptir áliti frá einhverjum lögfræðingi í Reykjavík sem mikils eru metnir (t.d. hjá þeim báð- um Kr. Jónssyni og Jóni Jenssyni) hvort mögulegt muni vera að lögum að neita marconi um heimild til þess á sínu eigin landi að byggja og nota slíka station.“ Bréfið endar á þessum orðum: „Með kærri kveðju og von um að íslenska þjóðin þurfi með framtímanum ekki að sjá eptir að við höfum tekið höndum saman í hraðskeytamálinu.“ Í júní koma svo hingað til lands menn frá Mar- conifélaginu og reisa 50 metra háa loftstöng á túni við Rauðará (þar sem Höfði er nú). Innan nokkurra daga eru fréttaskeytin farin að berast til Íslands með glænýjum erlendum fréttum. Þetta vekur heilmikla athygli og blöðin fjalla mikið um þetta tækniundur. Úr verður þó að Stóra norræna ritsímafélagið fær samninginn við Ísland og ekkert verður af áætlunum Marconifélagsins.“ Bréf Einars Benediktssonar til Einars um ritsímamálið.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.