SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Page 39
6. desember 2009 39
ingarmöguleikar séu óþrjótandi í
grenndinni. „Samstarfið við aðila á sviði
afþreyingar er mjög gott og það er langt
síðan gestur hefur spurt um afþreyingu
sem ekki var hægt að veita.“
Sem dæmi um afþreyingu nefnir Frið-
rik jöklagöngur, sem njóta vaxandi vin-
sælda, vélsleðaferðir, veiðiferðir, hesta-
ferðir og fjórhjólaferðir.
Það er gömul saga og ný að sumarið sé
tíminn í ferðaþjónustu. Friðrik segir
vetrarvertíðinni hins vegar vaxa jafnt og
þétt fiskur um hrygg. „Við höfum lagt
aukna áherslu á vetrarvertíðina und-
anfarin þrjú til fjögur ár með góðum ár-
angri. Fjöldi fólks hefur áhuga á að koma
hingað um hávetur, upplifa
myrkrið, snjóinn og síðast en
ekki síst norðurljósin. Að-
dráttarafl þeirra er mikið.
Ánægja viðskiptavinanna er
ekki síðri á veturna en sumr-
in.“
Hressir Bretar
Gestina ber víða að. Friðrik
nefnir fyrst Breta og Hollend-
inga.
– Nú, hvernig liggur á þeim
í seinni tíð?
„Gaman að þú skulir spyrja
að því. Það liggur nefnilega al-
veg ágætlega á þeim,“ segir
Friðrik og brosir. „Ég hef ein-
mitt spurt gesti mína talsvert
um ágreining þjóðanna og stór hluti
þeirra veit lítið um Icesave-málið. Það er
ekki stöðugt í fréttum þar eins og hér.“
Af öðrum tíðum gestum nefnir Friðrik
meðal annars Bandaríkjamenn, Japana,
Spánverja og fólk frá Norðurlöndunum.
Frægt var þegar Rockefeller-fjöl-
skyldan gisti á Hótel Rangá og Friðrik
hefur líka hýst kóngafólk og Hollywood-
leikara. Hann gerir samt ekki mikið úr
þessu. „Það er eðlilegt að fólki þyki gam-
an að vera á hóteli þar sem frægt fólk hef-
ur gist. Við höfum hins vegar farið þá leið
að hengja ekki upp myndir af nafn-
kunnum gestum okkar í virðingarskyni
við þá. Flestir koma þeir hingað til að
vera í friði og við virðum það.“
Nú og verði menn fyrir ónæði er lítið
mál að skjótast yfir í aðra heimsálfu …
Suður-Ameríka Ástralía
Norður-Ameríka Asía
Ég vildi hafa
svíturnar per-
sónulegar og
einstakar. Hvað
er þá betra en að til-
einka þær heimsálf-
unum? Þemað greip
mig strax og á tveimur
andvökunóttum tókst
mér að útfæra hug-
myndina í megindrátt-
um og sannfæra Frið-
rik um ágæti hennar.
Það eru ekki nema nokkur ár síðan að Indókína opnaðist ferðamönnum eftir margra
áratuga ófrið og einangrun. Okkur er nú kleift að fá innsýn í hina ríku og framandi
menningararfleifð þessara landa og þetta ævintýralega og allt að því óraunverulega
hitabeltis- og frumskógarlandslag sem þar er að finna.Víetnam og Kambódía eru lönd sem
eru í mikilli uppbyggingu en um leið ríkja þar mjög rótgrónar og gamlar hefðir. Sums staðar
gætir nýlenduáhrifa Frakka enn þann dag í dag, en búddíska menningin er þó mjög ríkjandi.
Komið verður í stórar borgir, iðandi af lífi, eins og Hanoi og Saigon sem eru miðstöðvar
nútíma uppbyggingar þó allsstaðar blasi hið hefðbundna við. Líflegir markaðir verða
skoðaðir og lítil vinaleg þorp sótt heim. Hér hefur lítið sem ekkert breyst í tímanna rás, þar
sem hrísgrjónaakrarnir umlykja þorpin við rætur frumskógarins. Meðal annars verður farið í
bátsferð um árósa stórfljótsins Mekong, en einn af hápunktum ferðarinnar eru hin miklu hof í
Angkor í Kambódíu. Þau eru allt frá 9. öld og mynda heila borg og eru talin hin mestu í heimi.
Ítarleg ferðalýsing og allar nánari upplýsingar eru á www.baendaferdir.is
www.baendaferdir.is s: 570 2790
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Sp
ör
eh
f.
Víetnam&
Kambódía
26. febrúar - 15. mars 2010
Fararstjóri: Inga Ragnarsdóttir