SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Side 48

SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Side 48
48 6. desember 2009 M aður er margs vísari eftir að hafa fylgst með fjölmiðlum í vikunni. Við blaðamenn vitum nú að kollegar okkar á Norðurlöndunum hafa áhyggjur af okkur og starfsumhverfi okkar, ekki síst hér á Morgunblaðinu. Steingrímur J. Sigfússon deilir þessum áhyggjum með þeim en það gerir Óskar Magnússon hinsvegar ekki. Óskar segir norrænu blaðamannafélögin fara með rangt mál og veltir fyrir sér hvort ályktun blaðamannafélaganna sé runnin undan rifjum brottrekins blaðamanns á Morg- unblaðinu, formanns Blaðamannafélags Íslands. Mikil munu völd Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur ef hún ein nær að fá kollega sína á Norðurlöndunum til skoðanafylgis við sig með þessu móti. Og fleira var í fréttum að þessu sinni. Sá sem kom hvað verst undan vikunni er Tiger Woods. Hrukka er komin á glans- myndina af kylfingnum knáa og hann viðist ekki vera sama prúðmennið í einkalífinu og hann er á grænum golf- völlunum. Svo er búið að henda Ásdísi Rán út af Facebook. Sjálf segist hún trúlega þykja of sexý fyrir samskiptavefinn. Þá verðum við hin að gefa okkur það að kynþokki okkar sé ekki yfir velsæmismörkum, fyrst við fáum að lafa þar inni óáreitt. Hver segir svo að eingöngu séu bornar á borð féttir af Icesave, uppsögnum og öðrum ósköpum tengdum bankahuninu? Byrjað er að telja niður til jóla á for- síðum dagblaðanna, í þetta sinn í boði fyrirtækja. Nú er tilvalið að einbeita sér að jólunum komandi og jólagrísir eins og undirrituð glöddust yfir gómsætum jóla- blöðum bæði Fréttablaðs og Morg- unblaðs. Eins hafa báðir þessir miðlar sem og fréttastofur Sjónvarpsins og Stöðvar tvö staðið jólavaktina nokkuð vel og gleðilegar fréttir af jóla-tengdum við- burðum og uppákomum ylja trúlega flestum um hjartarætur á dimmum vetr- arkvöldum. Öllu má þó ofgera. Við áhlustun á Rás 2 dylst engum að Björgvin Halldórsson ætlar að halda jólatónleika á næstunni. Það lítur út fyrir að hápunktur jólahalds hér á landi náist á tónleikunum góðu í Laugardalshöllinni í dag, svo mikil er umfjöllun Popplandsins um tónleikana. Tónleikarnir verða án efa mjög hátíðlegir og huggulegir þó umfjöllun um þá hamri ekki á hlustum landsmanna heilu dag- ana. En jólafréttir af heimatilbúnu skrauti, bakstri, skemmtilegum jólasiðum og góðverkum á aðventunni eru nauðsyn- legar á þessum síðustu og verstu tímum fregna af yfirvofandi gjaldþrotum, upp- sögnum í stórum stíl og gömlu góð- ærisbraski. Og ef enn meiri vöntun er á gleðifregn- um má alltaf kíkja við á vefsvæði Bagga- lúts og gera sér glaðan dag. Birta Björnsdóttir blaðamaður Nú verða sagðar jóla-fréttir Þá verðum við hin að gefa okkur það að kynþokki okkar sé ekki yfir velsæm- ismörkum, fyrst við fáum að lafa þar inni óáreitt. Fjölmiðlar Eftir Birtu Björnsdóttur birtabjorns@gmail.com Í síðustu bókum sínum orti Ingunn Snædal um virkjanaáform í sinni heimasveit, á Jökuldal, og um kennileiti í íslenskri náttúru. Í nýrri ljóðabók, Komin til að vera, nóttin, er sjónarhornið persónulegra og innhverf- ara, og ort er á opinskáan hátt um ást, til- finningar og skilnað. Eitt ljóðið endar þannig: frostið í tilliti þínu kaldur blettur á baki mér þegar ég fór „Jú,“ segir Ingunn þegar ég spyr hana um þessa breytingu á ljóðheiminum, að nú sé horft inn í stað út áður. „Ég var hálf- stressuð yfir því að fólk hefði ekki áhuga á að lesa ljóð þar sem ég velti mér upp úr sjálfri mér. En ég varð að láta slag standa.“ Þetta er símaviðtal. Ingunn er heima hjá sér í Brúarási á Fljótsdalshéraði þar sem hún er barnakennari. Eftir heims- hornaflakk og Reykjavíkurdvöl á liðnum árum er hún komin heim í sveitina og seg- ir að snjó hafi kyngt niður og börnunum í skólanum finnist það gaman. „Það birtir aðeins. Það hefur verið svo helvíti dimmt. Annars bölvar maður því alltaf í kennsl- unni þegar byrjar að snjóa því að börnin koma rennandi blaut inn úr öllum frímín- útum. En þetta er fínt, það er margt verra en snjórinn.“ Ljóðin eru annars umræðuefnið og ég segi að í fyrri bókum hafi hún beint sjón- um að landinu. „Eigum við að kalla það að róa á örugg mið?“ Ingunn hlær. „Mörgum Ís- lendingum finnst gaman að lesa um landið sitt, ég tók því varla mikla áhættu þegar ég skrifaði Guðlausa menn, hugleiðingar um jökulvatn og ást – þótt ég hafi ekki hugsað það þannig þegar ég skrifaði bókina. Hún kom bara.“ – Það er nú ákveðin áhætta í þeirri bók, hún er pólitísk. „Pólitík er bara partur af lífinu. Ég hef skoðanir á öllu.“ Þegar ég hef á orði að varla hafi allir sveitungarnir verið sammála gagnrýni hennar í þeirri bók á virkjanaáform segir Ingunn þá þekkja sig; hún rekist illa í hópi. „Sveitungar mínir taka mér eins og ég er. Það er gott að vera komin heim.“ Ekki árennilegir drengir Ingunn hefur verið að lesa upp úr nýju bókinni og segist hafa lesið á Vopnafirði á föstudaginn var. Held að það sé gott fyrir sál- ina að lesa ljóð Ingunn Snædal hefur á síðustu árum vakið athygli fyrir skorinorð en myndrík ljóð þar sem sjónum hefur iðulega verið beint að landinu og náttúrunni. Í nýrri bók horfir Ingunn meira inn á við og fjallar um ást, tilfinningar og skilnað. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Lesbók S ögumaður í þessari miklu bók Böðvars Guðmundssonar er barnabarn Önnu Láru Knud- sen, stúlku sem er af helstu ætt Íslands á fjórða áratug síðustu aldar, og tónlistarmannsins Jóhannesar Kohlhaas sem sendur er hingað til lands af þýsku alræðisstjórninni á árunum fyrir seinna stríð. Sagan af Önnu Láru Knudsen og Jó- hannesi Kohlhaas gerist á tíma mikilla sviptinga, þegar gamall heimur er að víkja fyrir nýjum og þeirri skipan sem varað hafði um aldir er bylt svo rækilega að ekkert sat eftir nema rústir einar. Anna Lára er fædd inn í heim sem er í svo föstum skorðum að ekkert rúm er fyrir þá sem stinga í stúf og álíka er komið fyr- ir Jóhannesi; það ráða aðrir stefnu lífs hans allt þar til hann situr í hjónabandi uppi á Íslandi, eiginlega gegn vilja sínum, því það skín í gegn að elska Önnu Láru er meiri en hans. Bókin er byggð á heimildum að hluta og í henni bregður fyrir fjölmörgum Gamall heimur víkur fyrir nýjum Bækur Skáldsaga eftir Böðvar Guðmundsson Enn er morgunn bbbmn 384 bls. Uppheimar 2009.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.