Morgunblaðið - 18.11.2009, Blaðsíða 25
Dagbók 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 2009
Sudoku
Frumstig
4
9 2 6
9 2 5 7 3
1 3 4
2 1 4 5 9
5 3 6 2 1
9 7
6 9 5
1 3 5 2
7 2
9 6 3
6 1 2 3
5 2 1
7
4 5 9 3
2 4
6 9
4 6 8
1
3 2 5
2 5 6
7 9
3 9 4
1 5 2
6 7
4 3 9
7 6 4 9 3 8 1 2 5
1 9 8 2 5 4 6 7 3
2 3 5 7 6 1 9 8 4
6 1 2 5 8 9 3 4 7
9 4 3 6 2 7 5 1 8
8 5 7 1 4 3 2 6 9
5 8 9 4 1 2 7 3 6
3 2 6 8 7 5 4 9 1
4 7 1 3 9 6 8 5 2
4 2 6 1 5 9 7 8 3
1 9 8 7 3 2 6 4 5
5 7 3 6 8 4 2 1 9
6 4 9 8 2 7 5 3 1
8 5 1 3 4 6 9 7 2
2 3 7 9 1 5 8 6 4
9 6 4 2 7 1 3 5 8
3 1 2 5 6 8 4 9 7
7 8 5 4 9 3 1 2 6
6 9 3 1 7 8 2 4 5
7 8 4 6 2 5 9 3 1
5 2 1 9 4 3 8 7 6
1 3 5 7 9 6 4 2 8
9 6 2 3 8 4 5 1 7
8 4 7 2 5 1 6 9 3
3 7 8 4 6 9 1 5 2
4 1 6 5 3 2 7 8 9
2 5 9 8 1 7 3 6 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 18. nóvember,
322. dagur ársins 2009
Orð dagsins: En hvert tré þekkist af
ávexti sínum, enda lesa menn ekki
fíkjur af þistlum né vínber af þyrni-
runni. (Lúkas 6, 44.)
Nú er komið að því að úrræði rík-isstjórnarinnar fyrir að-
þrengda lánþega taki gildi. Um
næstu mánaðamót verður greiðslu-
jöfnun sett á lán einstaklinga. Þeir,
sem ekki hafa áhuga, þurfa að segja
sig frá greiðslujöfnuninni. Öllum
virðist finnast þetta sjálfsagt, en í
fersku minni er írafárið vegna
gagnagrunns á heilbrigðissviði, sem
ótækt þótti að menn skráðust í sjálf-
krafa nema annað væri tekið fram.
Þó má verja að nú skuli þessi háttur
hafður á með því að þá er ekki verið
að íþyngja þeim, sem gæti þótt erfitt
skref að stíga að biðja um fyr-
irgreiðslu vegna lána sinna.
x x x
Víkverji er hins vegar ekki allskostar sáttur við það hvernig
staðið er að málum fyrir þá, sem
ekki hafa áhuga á greiðslujöfnun. Á
heimasíðu Íbúðalánasjóðs er boðið
upp á þann kost að „óska eftir und-
anþágu frá greiðslujöfnun“. Yfir reit
þar sem fylla á út alls kyns upplýs-
ingar stendur: „Beiðni um und-
anþágu frá greiðslujöfnun.“ Víkverji
velti fyrir sér þegar hann skoðaði
þennan texta hvort í raun væri
hætta á því að beiðninni yrði hafnað,
hvort næsta skref væri að senda
málið fyrir sérstaka nefnd, sem tæki
fyrir hvort óhætt væri að leyfa við-
komandi að fá undanþágu frá
greiðslujöfnunarúrræðinu.
x x x
Staðreyndin er sú að greiðslujöfn-un kann að létta róðurinn eins
og sakir standa, en þegar upp er
staðið mun lánið verða dýrara fyrir
þann einstakling, sem kýs að fara þá
leið. Víkverji taldi ekki að hann væri
að biðja um undanþágu, heldur ein-
faldlega að hafna boðinu um
greiðslujöfnun. Hann væri hvorki að
senda inn beiðni, umsókn né ósk,
heldur segja: Nei takk. Hann hefði
líka viljað fá staðfestingu á því sam-
stundis að svar hans hefði komist til
skila og hann yrði ekki með í
greiðslujöfnuninni. Þess í stað bíður
Víkverji þess nú að fá upplýsingar
um hvort beiðni hans um að verða
undanþeginn greiðslujöfun verði
tekin til greina. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 skaut, 4 var-
kár, 7 auðan, 8 skoðun, 9
afreksverk, 11 líffæri, 13
kvenfugl, 14 rífur, 15
rökkva, 17 stund, 20
knæpa, 22 málmblanda,
23 klínir, 24 sigar, 25
fæðir.
Lóðrétt | 1 hænan, 2 vol,
3 brún, 4 andvari, 5 land-
spildu, 6 synja, 10 kær-
leiks, 12 óhreinka, 13
gott eðli, 15 hula, 16
virðir, 18 nuddhljóð, 19
sér eftir, 20 neyðir, 21
tunnan.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 linnulaus, 8 lýjan, 9 tinds, 10 nía, 11 murta, 13
nýrað, 15 skæða, 18 sakka, 21 kot, 22 öslar, 23 annar, 24
hræringur.
Lóðrétt: 2 iljar, 3 nunna, 4 lútan, 5 unnur, 6 Glám, 7 æs-
ið, 12 tað, 14 ýra, 15 spök, 16 ætlar, 17 akrar, 18 stafn,
19 kunnu, 20 arra.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 Re7 5.
a3 Bxc3+ 6. bxc3 c5 7. a4 Dc7 8. Rf3
Rbc6 9. Bd3 b6 10. O-O h6 11. Ba3 Ra5
12. He1 Bd7 13. Rd2 Bxa4 14. c4 dxc4
15. Bxc4 O-O 16. Bd3 Hfd8 17. dxc5
Hxd3 18. cxb6 axb6 19. Bd6 Dxc2 20.
Hxa4 Dxd1 21. Hxd1 Rd5 22. Kf1 Hc8
23. Ke2 Hdc3 24. Ke1 Hc2 25. Haa1
Rf4 26. Kf1 Rd5 27. Ke1 Kh7 28. g3
H8c3 29. Ha3 Hc8 30. Haa1 Kg6 31.
Hdb1 H8c3 32. Ha3
Staðan kom upp í stúlknaflokki
heimsmeistaramóts 20 ára og yngri í
Puerto Madryn í Argentínu. Deysi
Cori (2361) frá Perú hafði svart gegn
Mohanty Kiran (2153) frá Indlandi.
32… Hxd2! 33. Hxc3 He2+ 34. Kxe2
Rxc3+ 35. Kd2 Rxb1+ 36. Kc2 f6! 37.
exf6 Rd2 38. fxg7 Kxg7 39. Be5+ Kg6
40. Kxd2 Rc4+ og hvítur gafst upp.
KIRAN Manisha Mohanty
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sami söngurinn.
Norður
♠82
♥863
♦ÁD42
♣9742
Vestur Austur
♠G764 ♠53
♥ÁKDG2 ♥1095
♦107 ♦9865
♣D6 ♣G1085
Suður
♠ÁKD109
♥74
♦KG3
♣ÁK3
Suður spilar 4♠.
„Hér er einn, hér er annar og sá
þriðji,“ söng vestur þegar hann reif í
sig háhjörtun í upphafi. Sá þriðji varð
þó að bíða um stund, því sagnhafi
trompaði hjartadrottninguna. Smit-
aður af stemningunni hlammaði suður
niður þremur efstu í trompi og söngl-
aði sömu möntruna: „Hér er einn, hér
er annar og hér er sá þriðji!“ En það
sljákkaði í honum þegar austur henti í
þriðja trompið. Skiljanlega, enda
samningurinn sokkinn í sæ.
Það var út af fyrir sig afrek að kom-
ast í 4♠. Suður vakti á 1♠ og vestur
kom inn á 2♥. Pass til suðurs, sem do-
blaði til úttektar. Norður sagði 2♠,
suður 3♥, norður 4♦ og suður 4♠. Fín-
ar sagnir, en spilamennskan gat verið
betri. Til að missa ekki vald á trompinu
átti suður að spila ♠10 í fjórða slag!
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er þér nauðsyn að fá útrás fyr-
ir tilfinningar þínar. Láttu ekki bæla þig
niður, heldur þvert á móti laða fram það
sem í þér býr.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það er nauðsynlegt að huga að
hverju smáatriði ef heildarútkoman á að
vera rétt. Safnaðu upplýsingum og
reyndu að einblína ekki á að fá vilja þínum
framgengt.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Innblástur finnst í mörgum
myndum. Þú veist mætavel að snobbið
hefur ýmis fríðindi í för með sér en nú er
ekki rétti tíminn fyrir svoleiðis.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Fátt er eins gefandi og að sjá at-
hafnir sínar leiða til jákvæðra breytinga.
Frábært að það skuli vera sannfærandi
fólk í kringum þig.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Dagurinn í dag er með því sniði að
allt eins líklegt er að þú fallir kylliflatt
fyrir einhverjum ókunnugum, kæra ljón.
Láttu draum þinn rætast.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Kærum vini liggur eitthvað á
hjarta en hann segir ekkert af ótta við við-
brögð þín. Þú munt hljóta verðskuldaða
athygli í dag.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú munt koma öðrum á óvart í dag og
sýna ákveðni og festu eins og þér er ein-
um lagið. Neitun getur verið það besta
sem þú gerir fyrir þá.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þér virðist ætíð takast að
vekja hrifingu annarra. Fólk tekur mark
á þér og því geta hugmyndir þínar komið
öðrum að gagni í vinnunni.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þér finnst þú ekki fá þá við-
urkenningu sem þú átt skilið. Gættu þess
að ofmetnast ekki og leyfðu samstarfs-
mönnum að njóta með þér.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú munt þurfa á öllum þínum
hæfileikum að halda til þess að komast
hjá mjög vandræðalegum atburði. Stund-
ir í einrúmi færa þér frið og ró.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Stundum þarf fólk á einveru að
halda. Borgaðu þá reikninga sem þú get-
ur og reyndu að ná yfirsýn yfir það sem
upp á vantar.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þér ætti að ganga vel að koma mál-
um þínum á framfæri, ef þú gætir þess að
tala hreint út um hlutina. Dagurinn í dag,
er svona gerðu-það-sjálfur-dagur.
Stjörnuspá
Þetta gerðist…
18. nóvember 1709
Biskupsstofan á Hólum í
Hjaltadal brann til kaldra
kola. Tapaðist þar mikið af
dýrgripum.
18. nóvember 1897
Blaðamannafélag Íslands var
stofnað. „Félagar geta orðið
allir þeir, sem hafa fjölmiðlun
að aðalstarfi,“ segir í núgild-
andi lögum félagsins.
18. nóvember 1936
Reynitré á barmi Naut-
húsagils við Stóru-Mörk undir
Eyjafjöllum féll í ofviðri. Það
var „mest allra íslenskra
trjáa“ að sögn Morgunblaðs-
ins, talið um tvö hundruð ára
gamalt „og á mikill hluti af
reynitrjám landsins rót sína að
rekja til þessa fræga trés“.
18. nóvember 1944
Íslenskir bananar voru seldir í
fyrsta sinn, í verslun Slátur-
félagsins í Hafnarstræti. Þeir
voru ræktaðir á Kleppjárns-
reykjum í Borgarfirði. Búist
var við að uppskeran það árið
yrði 2600 stykki.
18. nóvember 1967
Milljónatjón varð í óveðri.
Skemmdir urðu á bátum og
húsum, m.a. á Ísafirði, í Hrísey
og á Dalvík.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Valdís Garð-
arsdóttir er átt-
ræð í dag, 18.
nóvember. Af því
tilefni fagnar
hún tímamótun-
um með fjöl-
skyldu og vinum
í Turninum við
Fjarðargötu í
Hafnarfirði laugardaginn 21. nóv-
ember kl. 16. Þeir sem vilja fagna
með afmælisbarninu eru boðnir vel-
komnir.
80 ára
„ÉG og sambýliskona mín ætlum að halda upp á
sameiginlegt hundrað ára afmæli okkar á laug-
ardaginn en þá er fimmtugasti afmælisdagur henn-
ar,“ segir Aðalsteinn Jörgensen en í dag er hálf öld
frá því hann fæddist. Eftirminnilegust á hálfrar ald-
ar vegferð segir Aðalsteinn að sé sú stóra stund ár-
ið 1991 þegar hann og félagar hans lönduðu heims-
meistaratitli í bridds. „Þessi árangur litla Íslands
kom á óvart, því örfáar þjóðir höfðu einokað heims-
meistaratitilinn, Bandaríkjamenn og Ítalir voru
búnir að taka þetta margoft og Bretar, Frakkar og
Brasilíumenn höfðu líka unnið þennan titil áður.
Þetta var rosalega gaman, við vorum sterkur hópur sem tók þetta mjög
alvarlega og vorum gríðarlega vel undirbúnir. Við vorum með frábær-
an fyrirliða sem setti nýja hluti inn í þetta, til dæmis var líkamsrækt
partur af undirbúningi fyrir þetta hugarsport,“ segir Aðalsteinn sem
spilar enn töluvert en kannski ekki af eins miklum áhuga og áður þegar
allt snerist um bridds. Eftirminnilegasta afmælisdaginn segir hann
vera þann fertugasta en þá bauð hann fólki heim til veislu. „Ég var með
hákarl, harðfisk og annað illa lyktandi í bílskúrnum og mesta fjörið
reyndist vera þar.“ khk@mbl.is
Aðalsteinn Jörgensen er fimmtugur í dag
Óvæntur sigur í briddsinu
Nýirborgarar
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd
af barninu
til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is
Reykjavík Bastían Jó-
hann fæddist 25. maí kl.
10.50. Hann vó 4.245 g og
var 52 cm langur. For-
eldrar hans eru Una Dögg
Guðmundsdóttir og Jósep
Freyr Pétursson.
Reykjavík Sara Björk
Dan fæddist 7. september
kl. 11.16. Hún vó 2.850 g
og var 46 cm löng. For-
eldrar hennar eru Eva
Björk Guðmundsdóttir og
Margrét Dan Þórisdóttir.