Morgunblaðið - 11.12.2009, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.12.2009, Blaðsíða 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2009 Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið. 13 dagar til jóla Á MORGUN, laugardag, kl. 12-14, standa íbúar Hlíða, Holta og Norð- urmýrar, fyrir skottmarkaði á bíla- stæði Kjarvalsstaða. Á skottmarkaðnum er heim- ilisbíllinn notaður sem sölubás og getur fólk selt allt milli himins og jarðar úr bílskottum sínum. Íbúa- samtökin héldu slíkan skottmarkað í fyrsta sinn í september síðastliðnum við frábærar undirtektir. Skráning bíla á markaðinn hefur verið mjög góð og hefur nú þegar farið fram úr heildarskráningu bíla seinast þegar markaðurinn var haldinn. Skottmarkaður við Kjarvalsstaði Á SUNNUDAG nk. kl. 15, mun fær- eyska söngkonan Eyvör Pálsdóttir halda tónleika í Rammagerðinni, Hafnarstræti 19. Aðgangur er ókeypis. Eivör er með tvenna tón- leika í Fríkirkjunni um helgina sem fljótt seldist upp á. Það er því kær- komin sárabót fyrir þá sem ekki fengu miða að líta við í Ramma- gerðinni. Eivör með tónleika í Rammagerðinni ÞRENNIR ókeypis tón- leikar standa Akureyr- ingum til boða um helgina. Fyrsta skal telja jólagjöf kvennakórs- ins Emblu til bæjarbúa; tónleika í kvöld kl. 20 í Ketilhúsinu. Boðið verður upp á hefðbundin jólalög og jólalög eftir akureyrsk tónskáld. Jólagjöf Tónlistarskólans og Leikfélags Akureyrar er tónleikar á morgun, laugardag, kl. 17 í Rým- inu þar sem ýmsir listamenn koma fram. Þeir sem vilja geta skilið eftir jólagjafir undir jólatré og þeim verður komið til barna sem minna mega sín. Miðar verða afhentir í miðasölu Samkomuhússins. Á sunnudaginn verða svo Jóla- söngvar Kórs Akureyrarkirkju í kirkjunni kl. 17 og kl. 20. Á efnis- skránni eru falleg og hátíðleg jóla- lög úr ýmsum áttum. Þrennir tónleikar í pakka Akureyringa JÓLASKÓGURINN verður formlega opnaður í Heiðmörk nú um helgina og verður opið kl. 11-16 tvær helgar fram að jólum. Borgarstjórinn í Reykjavík mun mæta á morgun og höggva fyrsta tréð. Fólki gefst kostur á að koma, fá lánaðar sagir og velja sér tré í skóginum. Varðeldur, kakó og piparkökur á staðnum. Trén eru á sama verði og undanfarin ár, óháð stærð. Jólamarkaðurinn á Elliðavatni verður opinn alla helgina kl. 11-17 eins og undanfarið og verður þar fjöldi handverksmanna með vörur sínar, auk þess sem rithöfundar lesa úr bókum sínum og barokk- kórinn tekur lagið á Hlaðinu. Harmonikkuleikarar þenja nikkur sínar og Svavar Knútur trúbador kemur og tekur lagið fyrir gesti á sunnudag. Jólaskógurinn opnaður í Heiðmörk Á MORGUN, laugardag, verður haldinn jóla- og góðgerðardagur á Álftanesinu. Skemmtunin fer fram á skólasvæðinu og stendur kl. 13-17. Þar gefst bæjarbúum frábært tækifæri til þess að koma saman og láta gott af sér leiða. Meðal annars verður jóla- og hand- verksmarkaður ásamt kransa- og jólatré- sölu. Fugla- og náttúruverndarfélag Álftaness stendur fyrir ljósmyndasýningu og Norræna félagið kynnir sænsk jól, þá sér í lagi Lúsíuhátíðina. Þá munu rithöfundar koma og lesa upp úr nýút- komnum bókum sínum á bókasafninu. Kvenfélagið verður með laufa- brauðssölu og Blakdeild UMFÁ verður með kökubasar. Álftaneskórinn tekur lagið ásamt hljómsveitinni Snjólugt. Þá verður RKÍ með fatasöfnun auk þess sem safnað verður fyrir Mæðrastyrksnefnd. Jóla- og góðgerðardagur á Álftanesi Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is „VIÐ veiðum eingöngu fyrir okkar vinnslu og viljum fá að veiða í nokkur ár á þeim svæðum sem við fundum. Það þarf að finna fleiri svæði til þess að allir þessir bátar geti stundað veiðarnar, annars fer illa,“ segir Bergur Garðarsson, skipstjóri á Hannesi Andréssyni SH. Skipið veiðir sæbjúgu til vinnslu hjá Reyk- ofninum-Grundarfirði ehf. og eru starfsmenn fyrirtækisins frum- kvöðlar í veiðum og vinnslu á þessari dýrategund sem fram á síðustu ár fór rakleitt í sjóinn aftur þegar hún slæddist með á öðrum tegundum. Nú virðist komin hörkusamkeppni um kvikindið. Fyrirtækið Reykofninn- Grundarfirði ehf. var stofnað um veiðar og vinnslu á sæbjúgum á árinu 2003. Stjórnendur fyrirtækisins höfðu áhuga á að reyna eitthvað nýtt og prófuðu ýmislegt áður en sæbjúg- un komu til sögunnar. „Það vildi þannig til að bróðir minn bjó í nokkur ár í Japan. Við fórum að skoða teg- undir sem hægt er að finna hér og eru markaðsvara í Asíu. Að lokum ákváðum við að einbeita okkur að sæ- bjúgum,“ segir Kári Pétur Ólafsson, matvælafræðingur og fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins. Hann tekur fram að tilraunaveiðar og vinnsla hafi ekki verið neinn dans á rósum. Plógurinn þróaður „Ég var búinn að vera á bátum og skipum af öllum stærðum og gerðum og á veiðum í öllum kerfum en var við vinnu á dýpkunarskipi í Færeyjum þegar Reykofninn spurðist fyrir um það hvort ég væri til í að gera tilraun með sæbjúgnaveiðar. Ég tók snúning á þessu í Breiðafirði. Þar var mikið drasl og skeljadót eftir þunga plóga sem notaðir eru við hörpuskelsveiðar enda hafði gengið illa að veiða þar,“ segir Bergur Garðarsson. Hann hefur leitað víða og fundið nokkrar góðar veiðislóðir, meðal annars í Faxaflóa. Jafnframt hefur verið unnið að þróun veiðarfæranna. Bergur segir að keyptir hafi verið plógar frá Kanada sem aðallega eru notaðir við ígulkerjaveiðar. Þeir hafi ekki hentað að öllu leyti en þeim hafi verið breytt talsvert. Eins og að slá blómagarð Bergur leggur áherslu á að ganga þurfi vel um þessa auðlind, ef hún eigi að endast. Lífverurnar þurfi frið til að skríða upp á steinana og nær- ast. Hann notar neðansjáv- armyndavél við leitina og segir að til- finningin sé eins og að slá blómagarð. „Ef það er djöflast á þessu allan sól- arhringinn fer illa,“ segir hann. Fleiri bátar hafa fengið veiðileyfi og sumir þeirra sótt á sömu veiðisvæði. „Við höfum fundið öll þessi svæði og gert rannsóknirnar. Ekki er langt síðan við fundum svæði sem gefa nógu mikið af sér til þess að gera út einn bát og standa undir einni verk- smiðju. Ef við fáum ekki að njóta þess þá getum við ekki rekið vinnslu og bát allt árið,“ segir Kári. Veiðarnar eru stöðvaðar í júní og júlí þegar nýting aflans er léleg vegna hrygningar en vinnslan er starfrækt aðra mánuði ársins, þegar nægt hráefni fæst. Hannes Andr- ésson SH landar ýmist á Akranesi eða í Bolungarvík og aflanum er ekið til Grundarfjarðar. Tæplega tuttugu starfsmenn eru í vinnslunni og þrír á sjó. Ætti að fullvinna allt Reykofninn vinnur hráefnið í mis- munandi afurðir, eftir óskum við- skiptavina og markaða. Sumt er full- unnið í neytendaumbúðir en annað er unnið minna. Hluti hráefnisins er seldur í fæðubótarefni enda hafa margir kaupendur á Asíumarkaði trú á lækningarmætti afurða úr sæ- bjúga. Stærstu kaupendurnir eru í Kína, Singapore og Suður-Kóreu. Kári segir að verðið fyrir afurðirnar mætti vera hærra en gengið bæti það verulega upp nú um stundir. „Það er verið að selja mikið óunnið úr landi. Ég hefði viljað sjá allar þessar afurðir fullunnar hér, til þess að skapa störf. Staðan er sú að við höfum ekki efni á að senda hráefnið óunnið úr landi. Allir verða að taka þátt í því,“ segir Bergur. Bergur hefur ánægju af þessu harki eftir að hafa kynnst nánast öll- um tegundum veiða. Hann vitnar til kanadískrar sölukonu sem vakti at- hygli á því að sjórinn væri fullur af verðmætum en Íslendingar sæju ekkert nema sporða. „Þetta er að sumu leyti rétt hjá henni. Það eru margar afurðir sem bíða eftir því að verða nýttar,“ segir hann. Greiða sitt til samfélagsins Fyrirhugað er að afnema sjó- mannaafsláttinn á næstu árum og Bergur bregst illa við því, eins og fleiri. „Það er eins og menn séu búnir að gleyma því hvað miklar fjarvistir við erfiðan aðbúnað geta verið slít- andi. Sjómenn leggja sitt til sam- félagsins. Þeir sem eru á betri skip- unum eru sem betur fer með þokkaleg laun og greiða há- tekjuskatt,“ segir hann og vekur um leið athygli á því að sjómenn greiði hluta af útgerðarkostnaði skipanna með olíugjaldi sem tekið er af óskiptu aflaverðmæti. „Þetta var sett á til bráðabirgða fyrir þrjátíu ár- um þegar útgerðin átti í miklum rekstrarerfiðleikum. Ég held að fólki myndi ekki líka það ef taka ætti hluta af rekstri og viðhaldi vinnu- staðar þess af laununum,“ segir Bergur. Skipstjórinn Bergur Garðarsson hefur verið lengi á sjó, á ýmsum bátum og veiðum. Hann nýtur sín í frumkvöðla- starfinu við sæbjúgnaveiðar. Þeir eru þrír á Hannesi Andréssyni SH og leggja upp á Akranesi og í Bolungarvík. Þarf að finna fleiri veiðisvæði  Sæbjúgað brimbútur sem áður var fleygt er orðið eftirsótt hjá sjómönnum  Frumkvöðlarnir vilja ekki láta bola sér út af þeim svæðum sem þeir fundu Brimbútur Íslendingum hefur hing- að til ekki dottið í hug að borða sæ- bjúgu. Þau eru sælkeramatur í Asíu. Í HNOTSKURN »Margar tegundir eru til afsæbjúgum/hraunpussum. Brimbútur er veiddur hér. »Brimbútur er 15-40 smlangur og 5-10 sm á þykkt. Hann er sívalur og mjókkar til endanna. »Húðin er þykk og virðistleðurkennd en er samt mjúk viðkomu. »Sæbjúgu finnast í stórumhópum eða breiðum. »Þau eru líffræðilega skyldkrossfiskum og ígulkerum þótt útlitið gefi það ekki til kynna. »Sæbjúgu þykja herra-mannsmatur í Asíu og jafnvel talin búa yfir lækn- ingamætti. Fjölskylduhjálp Íslands Neyðarkall frá Fjölskylduhjálp Íslands Hátt í 16000 einstaklingar eru nú án atvinnu auk þeirra þúsunda, sem minna mega sín í þjóðfélaginu. Stór hópur þessa fólks reiðir sig á að- stoð Fjölskylduhjálparinnar nú um hátíðirnar. Tökum höndum saman og leggjum okkar að mörkum til að allir geti haldið gleðileg jól. Tekið er á móti matföngum að Eskihlíð 2-4 í Reykjavík þriðjudaga kl. 9-13, miðviku- daga kl. 9-18 og fimmtudaga kl. 9-13. Símar Fjölskylduhjálparinnar eru 551 3360 og 892 9603. Einnig er tekið á móti framlögum á reikningi Fjölskylduhjálpar Íslands bnr. 101-26-66090, kt. 660903-2590. Netfang: fjolskylduhjalp@simnet.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.