SunnudagsMogginn - 14.02.2010, Blaðsíða 4

SunnudagsMogginn - 14.02.2010, Blaðsíða 4
4 14. febrúar 2010 Valentínusardagurinn er á enskunni kenndur við dýr- ling, Saint Valentine, en alls óvíst er af hverju dagur ástarinnar heitir eftir honum. Margir dýrlingar gengu undir nafninu Valentine en engar heimildir tengja dýr- ling með þessu nafni við rómantíska ást. Bæði Rómverjar og Grikkir fögnuðu hátíðum sem tengdust hjónabandi og frjósemi í febrúar og hugs- anlegt er að þegar kristnin fór að breiðast út hafi þessar hátíðir verið yfirfærðar í hið kristna tímatal og þannig hafi dagur heilags Valentínusar orðið til. Sú saga sem er einna vinsælust í dag segir frá því að ungur prestur að nafni Valentínus hafi í trássi við fyrirskipan rómversks keisara gefið saman unga her- menn og ástmeyjar þeirra. Þegar keisarinn komst að svikunum lét hann handtaka prestinn og fleygja hon- um í fangelsi. Áður en hann var tekinn af lífi skrifaði hann fyrsta valentínusarkortið til stúlku sem hann elskaði. Þessi saga er líklega uppspuni frá grunni en sögu valentínusarkortanna má sannarlega rekja aftur til ársins 1400 þegar „Hæstarétti ástarinnar“ var kom- ið á fót í París á Valentínusardag. Óþekktur uppruni Valentínusardagsins séu þiggjendur, sem af einhverjum ástæðum er ekki hægt að gera til hæfis og karlarnir vonlausir gefendur. Af hverju eru karlarnir ekki spurðir að því hvað þeir vilja? Ef við höldum okkur við þetta afmarkaða efni, Valent- ínusardaginn, þá er svarið að sjálfsögðu að á einhverjum tímapunkti breyttist sá siður að konur og karlar skiptust á litlum ástarmiðum, valentines, 14. febrúar, og varð að rómantískri kvöð fyrir karlmenn að heilla elskuna sínu upp úr skónum. Hér á Íslandi höfum við rétt fengið smá smit af þessum degi og hefur í raun mismikið farið fyrir N iðurstöður nýrrar könnunar sem gerð var af súkkulaðiframleiðandanum Lindt Lindor, virðast staðfesta þá gömlu kreddu að menn hafi ekki hugmynd um hvað konur vilji, að minnsta kosti ekki þegar kemur að rómantík. Könn- unin var gerð í Bretlandi í tilefni Valentínusardagsins og um tvöþúsund og eitthundrað manns tóku þátt. Í ljós kom að um sjötíu og átta prósent kvennanna vildu helst fá rómantísk bréf eða ástarljóð á Valent- ínusardaginn, en réttur helmingur karlanna hafði lagt í slíkar skriftir. Samkvæmt svörunum var það sá tími og alúð sem skrifin útheimta sem konunum þótti eft- irsóknarverð, og fimmtíu og sex prósent sögðust myndu verða fyrir vonbrigðum ef þær fengju ást- arjátningu á Facebook-síðurnar sínar. Mennirnir voru hins vegar líklegri til að vilja koma þessu hratt frá, rúmlega fimmtungur þeirra sagðist líklegast myndu senda smáskilaboð, um tíu prósent að þeir myndu senda tölvupóst og játuðu sex prósent karlkyns þátt- takenda að hafa fengið „lánað“ úr ástarjátningum ann- arra en kvittað sjálfir undir. Sú spurning sem liggur til grundvallar er „Hvað er það sem konur vilja?“ og spurt er í ákveðnu samhengi, í þessu tilfelli, og oftar en ekki, í sambandi við róm- antískar væntingar. Forsendurnar eru þær að konur honum ár frá ári. En þetta er alvörumál í Bretlandi, þar sem siðurinn er upprunninn, og sérstaklega í Bandaríkj- unum. Það er um margt merkilegt að hann hafi náð að lifa svo góðu lífi þar vestra, þar sem kvenfrelsis- og kynlífsbyltingin breytti þjóðfélaginu á örskömmum tíma. Samskiptasíðan Facebook er einn nýjasti vettvangur rómantískra tilburða. Þar bæði byrja sambönd og enda og það verður varla framþróun í sambandinu án þess að sameiginleg ákvörðun sé tekin um að breyta „róm- antíska statusnum.“ Það er því ekki skrýtið að vefurinn sé nú þegar undirlagður af valentínusartilstandi sem á líklega enn eftir að ná hápunkti sínum. Þar má þó líka finna ótal síður þar sem deginum er harðlega mótmælt, aðallega á þeim forsendum að hann sé ekki lengur dagur ástarinnar heldur tilbúningur auglýsingagúrúa. En það er ekki við daginn að sakast, í upprunalegri mynd á hann lítið sameiginlegt með þeim degi sem hann er í dag. Og Íslendingar, sem enn hafa ekki boðið hann velkominn í hóp sérmerktra hátíðisdaga á bankadaga- tölunum sem prýða skrifborð út um land allt, geta enn ákveðið hvernig honum eigi að hátta. Ef spurt er bæði „Hvað vilja konur?“ og „Hvað vilja karlar?“ og kynin reyna að gefa hvort öðru brotabrot af því sem hitt vill, þá verður niðurstaðan örugglega þekkari en hitt. Rauðar rósir, hjörtu og súkkulaði eru dæmigerðar táknmyndir Valentínusardagsins og heill iðnaður er nú orðin til í kringum þennan febrúardag. Reuters Að gefa og þiggja Valentínusardagurinn; dagur ásta eða átaka? Vikuspegill Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Í eina tíð játuðu bæði menn og konur ást sína á Valentínus- ardaginn með því að skiptast á litlum ástarmiðum. Í dag hefur hefðin þróast þann- ig að ætlast er til þess að karl- maðurinn geri eða kaupi eitt- hvað rómantískt handa ástinni sinni. Í stað þess að vera dagur fallegra ástarjátninga er 14. febrúar orðinn neysluhátíð og illa liðinn af mörg- um. einfalt & ódýrt! 2 stk. í pk. ÍM vatnsde igsbollur m/rjóma, s úkkulaði og sultu, 2 stk. 298kr.pk. Bolla Bolla Bolla Bolla Bo Bolla Bolla Bolla Bolla Bo
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.