SunnudagsMogginn - 14.02.2010, Qupperneq 8
8 14. febrúar 2010
E
inn áhrifamesti og ódælasti tískuhönn-
uður heimsins í dag, Alexander
McQueen, lést á fimmtudagsmorguninn.
Talið er að hann hafi framið sjálfsvíg,
hengt sig, aðeins fertugur að aldri.
Lee Alexander McQueen fæddist 16. mars árið
1969 í London og ekki með neina silfurskeið í
munni. Faðir hans starfaði sem leigubílstjóri og
móðir hans var kennari, þau eignuðust sex börn og
var McQueen yngstur þeirra. Snemma var ljóst
hvert stefndi með pilt en sagan segir að hann hafi
verið byrjaður að gera kjóla á systur sínar á unga
aldri.
McQueen var aðeins sextán ára þegar hann
komst að sem lærlingur hjá hinu virta klæðskera-
fyrirtæki Anderson & Sheppard. Þaðan fór hann að
vinna hjá Gieves & Hawkes og hinum frægu leik-
búningahönnuðum Angels and Berman’s. Um tví-
tugt eyddi hann tíma hjá fatahönnuðinum Koji
Tatsuno áður en hann fór til Ítalíu að vinna fyrir
Romeo Gigli. Hann sneri aftur til London árið 1994
og fór þá í fatahönnunarnám í Central Saint Mart-
ins College of Art and Design.
McQueen vakti strax athygli fyrir hæfileika og
var útskriftaverkefni hans keypt í heild sinni af
bresku tískudívunni Isabellu Blow. Hún var
óþreytandi að tala máli hans þótt framan af væri
hann hundsaður fyrir „hlægilegar leikhúsflíkur“
sínar.
McQueen og Blow voru miklir vinir en hún
framdi sjálfsmorð árið 2007 og er það talið hafa átt
þátt í áhrifaríkri ákvörðun hans um að taka líka sitt
eigið líf. Móðir McQueen lést einnig 2. febrúar síð-
astliðinn og átti hann erfitt uppdráttar eftir lát
hennar.
McQueen var samkynhneigður og opinberaði
það fyrir fjölskyldu sinni þegar hann var átján ára.
Árið 2000 giftist hann unnusta sínum, George For-
syth, heimildamyndagerðarmanni, en hjónaband-
inu lauk nokkrum árum síðar.
McQueen kom á sínum tíma með ferskan
andblæ inn í tískuheiminn, hann rokkaði hann
upp og var sýninga hans alltaf beðið með mikilli
eftirvæntingu þó þær hlytu oftar meiri gagnrýni
en lof, sérstaklega þegar hann starfaði sem að-
alhönnuður Givenchy-tískuhússins. Þar var
hann í fimm ár áður en hann setti á lagg-
irnar sín eigin merki; Alexander McQueen
og McQ sem er hversdagslegri lína.
Um hæfileika McQueen þarf ekki að
orðlengja, hann var meðal annars val-
inn fatahönnuður ársins í Bretlandi
fjórum sinnum á árunum 1996 til
2003 og var sæmdur CBE-orðu
bresku krúnunnar árið 2003.
McQueen var mikill áhuga-
maður um köfun og notaði
innblásturinn sem hann fékk
úr köfuninni í hönnun sína
eins og sást á tískusýningu
hans í haust þegar hann
sýndi vor- og sumarlín-
una 2010. Hann sótti
líka innblástur í pönkið
og nýrómantíkina og
var vor- og sum-
arlínan 2010 hjá McQ
innblásin af neð-
anjarðarmenning-
unni í London á
níunda áratugn-
um.
Afhjúpa átti
nýjustu vorlínu
hans á tísku-
vikunni í París
þann 9. mars
næstkomandi.
Vikuspegill
Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is
Þessar fjaðrir sáust á sýningu á haust
og vetrarlínu McQueen 2006-2007.
Kventískan vor/sumar 2010 var augljóslega innblásin af sjávarlífverum. Herratíska McQueen haust/vetur 2010-’11 var sýnd í janúar.
Meistari McQueen
fallinn frá
Leikkonan Sarah Jessica Parker og McQueen
mættu saman í veislu í Metropolitan-safninu
2006. Parker var mikill aðdáandi McQueen.
Reuters
Tískuhönnuðurinn Alexander
McQueen var ódæll en áhrifamikill
’
Lee Alexander
McQueen fædd-
ist 16. mars árið
1969 í London og ekki
með neina silfurskeið
í munni.