SunnudagsMogginn - 14.02.2010, Síða 15

SunnudagsMogginn - 14.02.2010, Síða 15
14. febrúar 2010 15 JÓNSI er kunnastur fyrir að vera forsöngvari Sigur Rósar en þau eru ótal mörg verkefnin sem hann hefur sinnt utan sveitarinnar í gegnum tíðina og væntanleg sólóplata er að vissu leyti nokkurs konar framlenging á þeirri starfsemi. Flest þeirra hafa farið til- tölulega lágt, alltjent gagnvart hinum al- þjóðlega poppheimi. Jónsi þarf alltaf að vera að sýsla eitthvað og Sigur Rós ein svalar ekki sköpunarþörfinni. Tónlistarlega varð hans fyrst vart í grugg- sveitinni Stoned, skömmu eftir 1990. Þar söng hann og lék á gítar og tónlistin var Smashing Pumpkins-legur grautur. Þeim pælingum var síðan fram haldið með hljóm- sveitinni Bee Spiders sem gerði skurk í Músíktilraunum um miðjan tíunda áratug- inn. Áður en Sigur Rós fór á flug vann Jónsi m.a. sem upptökumaður og tók t.d. upp kassettu árið 1997 fyrir gímaldin, Gísla Magnússon (son Megasar). Sama ár tók hann upp plötu Soðinnar fiðlu, Ástæðan fundin, og söng m.a. inn á plötu dip árið 1999, Hi-camp meets lo-fi, en um sam- starfsverkefni Sigtryggs Baldurssonar og Jó- hanns Jóhannssonar var að ræða. Þar not- aðist hann við listamannsnafnið Frakkur. Sama ár lögðu hann og Sigur Rós skáldkon- unni Diddu lið á plötu hennar Strokið og slegið. Ári síðar kom tónlist Sigur Rósar og Hilmars Arnar Hilmarssonar við Engla al- heimsins út á plötu og var það fyrirtæki Sig- ur Rósar, Krúnk, sem gaf út. Var það fyrsta platan sem kom út á þess vegum en um hönnun umslags sáu Gustur & Frakkur, sem voru leyninöfn Jónsa og Ágústs Ævars Gunnarssonar, fyrrverandi trymbils Sigur Rósar. Árið 2004 kom Jónsi einn fram sem Frakkur á fimm ára afmæli Tilraunaeld- hússins sem var haldið í Klink og Bank. Það gerði hann með pomp og prakt, hann leiddi þar með trommuslætti hóp barna og unglinga sem voru uppábúin í einkenn- isbúninga, marseraði inn í salinn af miklum glæsileik og svo út aftur. Árið 2006 gáfu Jónsi og unnusti hans, Alex Somers, út myndabókina Riceboy Sleeps sem átti eftir að bera með sér ýmis tengd verkefni. Opn- uðu þeir sýningu í Galleríi Turpentine sama ár í tengslum við útgáfuna og sýndu myndir og myndbandsverk. Þremur árum síðar, eða í fyrra, kom svo út platan Riceboy Sleeps, sem var tekin upp með órafmögn- uðum hljóðfærum, en auk þess komu Ami- ina og stúlknakórinn Kópavogsdætur við sögu. Platan kom út á heimsvísu í gegnum hið fornfræga Parlophone Records í júlí 2009. „Síðan ég kynntist Jónsa fyrst (fyrir tíu ár- um síðan) hefur hann alltaf verið að bauka eitthvað í eldhúsinu sínu, svefnherberginu og stofu, að búa til tónlist til viðbótar við þá sem hann gerir með Sigur Rós,“ skrifar um- boðsmaður hans, John Best, á vefsíðu Sig- ur Rósar. „Það var raftónlistarplatan, óraf- magnaða platan, poppplatan o.sfrv. Okkur datt aldrei í hug að þetta kæmi út, þær virt- ust meira þjóna þeim tilgangi að seðja þá miklu listrænu orku sem Jónsi býr yfir.“ Best ræðir síðan aðeins um gerð plöt- unnar og endar svo á háu nótunum. „Ég hef ekki verið jafn spenntur yfir plötu síðan ég heyrði Ágætis byrjun í fyrsta skipti, fyrir meira en tíu árum síðan. &%$?! eigi það! Eruð þið tilbúin!?“ Þessa mynd tóku systur Jónsa, þær Lilja og Inga, eins og hann ræðir um í viðtalinu. Ljósmynd/Lilja og Inga Birgisdætur Í leit að lífi … ar þægilegt kannski. Það þarf ekki mikið að tala um hvað þarf að gera. Núna var maður kominn í þá stöðu að þurfa að draga vagninn og þykjast vita hvað væri best þó að maður vissi það ekki endilega. Að taka ákvarðanir þó að maður hefði ekki hugmynd um hvað væri að fara að gerast. Mér fannst þetta gott. Að henda sér út í djúpu laugina og sjá bara hvað gerist.“ Söngröddin var svo tekin upp í stof- unni heima hjá Jónsa og ýmsu var síðan bætt við, alls kyns dótaríi úr hljóð- smölum smurt snyrtilega ofan á hljóð- myndina. „Er þetta þá búið?“ segir Jónsi með kersknislegan glampa í augum. Blaða- maður hlær hátt og Jónsi sömuleiðis. Aumingja maðurinn er vanur að sitja í klukkustundir með misskemmtilegum blaðamönnum, þyljandi upp sömu sög- una æ ofan í æ. Viðtalið er reyndar alveg að verða búið, þó að það sé ekki gefið upp. En áfram höldum við, í sama slaka gírnum. Ekki aftur snúið Í desember fór lagið „Boy Lilikoi“ í spil- un, fólk sem skráði sig fyrir fréttabréfi frá opinberri heimasíðu Jónsa (www.jonsi.com) gat halað því lagi niður frítt. Myndband við lagið „Go Do“, sem verður fyrsta formlega smáskífan, er þá komið út, en leikstjórar eru þeir Árni & Kinski, Stefán Árni Þorleifsson og Sig- urður Kjartansson. Þeir hafa unnið nokkur myndbönd fyrir Sigur Rós áður. Þessi lög eru eins og Jónsi lýsti verkferl- inu; villt og „crazy“. Gáskafull og grall- araleg nánast og að því leytinu til nokkuð á skjön við þá hljóma sem fólk þekkir frá Sigur Rós. „Þetta er mjög rytmískt, og takturinn dálítið hreinn og beinn,“ segir Jónsi. „Og svo syng ég á ensku í fyrsta skipti. Það er dálítið „scary“ líka.“ Jónsi segir að þegar hann hafi séð hvernig platan var að þróast hafi hann ákveðið að fara alla leið með þetta; gefa plötuna út um allan heim, túra rækilega o.s.frv. „Eftir þessa törn með Nico og Samuli varð ekkert aftur snúið. Þá var þetta spurning um allt eða ekkert. EMI verða svo bara að treysta mér. Þeir ættu að geta gert það, eftir að hafa lært að vinna með Sigur Rós. Þeir hafa ekkert með þetta að segja, maður getur hvað sem er í raun- inni. Nema kannski að prumpa í míkró- fón, en ég veit það ekki … Umboðsmað- urinn sér um þetta allt saman, ég reyni bara að halda mig hérna heima og skipti mér sem minnst af slíku.“ Tónleikaferðalagið hefst svo um leið og platan kemur út og stendur í ellefu mán- uði. „Við erum að fara að spila út um allar trissur. Þetta verða 1.000-2.000 manna staðir. Gaukurinn (hlær). Helst langar mig til að hafa ekki neitt upphitunar- atriði en ég held að það þurfi að vera. Er það ekki? Mig langar bara til að fólk komi og hlusti á tónlistina. Á tónleikum þarf fólk alltaf að bíða eftir því sem það kom til að sjá og þarf að hlusta á eitthvað rusl sem það fílar ekkert á meðan (hlær). En ég er svona að spá í þetta. Ég er þá ennþá að safna í band. Alex kemur með mér, Úlfur Hansson (Klive) spilar á bassa og vonandi einhverja elektróník. Ég er ekki viss hvort Samuli meikar að koma, hvað þá Nico. En þetta verða að vera menn sem geta hangið með mér í ár.“ Spilar Sigur Rós endalaust? Jónsi gerir tónlist, en svo mikið meira líka. Hann hefur gefið út bækur, málað myndir, hannað umslög, smíðað o.fl. og o.fl. Allur pakkinn, heildarhugmyndin á bak við tónlistina og allt sem fylgir, um- slög, sviðsmynd og fleira virðist skipta Jónsa miklu máli. „Já, mér finnst þetta allt saman frekar mikilvægt. Umslögin, myndböndin, mér finnst þetta allt saman mjög skemmti- legt. Ég fékk systur mínar, þær Lilju og Ingu, til að vinna umslagið og það var al- veg frábært. Stundum leitar maður langt yfir skammt að einhverju. En svo gekk þetta fjölskyldusamstarf svona glimrandi vel upp. Ég var auðvitað smeykur um að eitthvað myndi slettast upp á vinskapinn en svo varð þetta bara gaman.“ En hvað með Sigur Rós? „Heyrðu … við erum bara hættir.“ Þögn. „Nei, djók. Við erum bara í pásu, það eru allir í þessu barnastússi. Við erum líka að fara að stokka þetta upp býst ég við. Erum búnir að losa okkur við Sundlaugina og erum komnir í skúrinn til Orra. Sveitin er aftur orðin bílskúrssveit! Við vorum að endurvinna gömul lög og þá fórum við að spila allir saman fjórir og það var alveg of- boðslega gaman. Við fundum okkur vel í þeim gír og ég býst við að við höldum áfram á þeirri braut í ár.“ ’ Núna var maður kominn í þá stöðu að þurfa að draga vagninn og þykjast vita hvað væri best þó að mað- ur vissi það ekki endilega. Að taka ákvarðanir þó að maður hefði ekki hug- mynd um hvað væri að fara að gerast.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.