SunnudagsMogginn - 14.02.2010, Page 17
14. febrúar 2010 17
að semja ritgerð um pólitísk átök á sturlungaöld. Hann
ráðlagði mér ekkert um frásagnarháttinn, þótt Vésteinn
ráðleggi Markúsi að halda dagbók. Það að hitta þennan
sagnfræðing og gamla vin, sem hefur trú og þekkingu á
heimildum, dagbókum, kveikti á þeirri hugmynd hjá
mér um nálgunina. Ég skrifaði síðan bókina í rauntíma og
færslurnar voru miklu fleiri en enduðu í bókinni. Eftir
vinnu fékk ég mér yfirleitt einn swiss-mokka á Súfist-
anum eða cappucino á Kaffibarnum og punktaði niður
verkefni kvöldsins, fór heim og vann úr fram á nótt.“
Í fyrstu bók þinni Vaxandi nánd eru nokkur áhrif frá
Gyrði Elíassyni en nú ertu búinn að færa þig lengra inn í
raunsæið, ætlarðu að halda þig í þessum hóflegu
raunsæislýsingum?
„Ég gleymdi að nefna áðan að þegar ég ákvað að „gefast
upp“ og láta reyna á skriftirnar, láta undan rithneigðinni,
þá var ég að lesa Bréfbátarigningu Gyrðis; hugsaði að ég
yrði að láta reyna á sjálfan mig í þessu. Eðlilega voru áhrif
frá honum í fyrstu bókinni, en ég held að hún hafi samt
alveg þolað að mitt nafn stæði á kápunni. Ég veit ekki
hvert ég stefni – ég skrifa ekki af þekkingu, eingöngu af
innsæi. Ég reyni að bera virðingu fyrir hugmyndum mín-
um, ég lem þær ekki með hamri svo þær passi í form, þær
fá að vaxa í friði á meðan ég fylgist með, skrifa niður.“
Varðstu fyrir aðkasti í hruninu?
„Nei. Einhvern tímann var uppákoma fyrir utan bank-
ann og í honum. Allir starfsmennirnir höfðu náttúrlega
samúð með framlínufólkinu sem er í snertingu við við-
skiptavinina. Það var ekki góð tilfinning að vita af þeim
ötuðum reiði. En svona var þetta þá, mikil og eðlileg reiði
sem fékk útrás á ýmsum stöðum. Það er annars skrítið
hvernig bankar fara á hausinn. Það er ekkert hægt fall.
Það er bara flug og svo er flogið á vegg og allt er búið.
Þetta á ekki við um önnur fyrirtæki. Ef ég væri með stóla-
verkstæði væri ég ekkert að búa til stóla á fullu og svo
væri allt í einu allt búið. Það kæmu færri pantanir og
starfsemin myndi dragast saman þangað til allt þryti að
lokum.“
Guðmundur Ósk-
arsson þakkar rithöf-
undarferilinn meðal
annars þjófi sem stal
af honum tösku.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
’
Ég skrifaði síðan bókina í
rauntíma og færslurnar voru
miklu fleiri en enduðu í bók-
inni. Eftir vinnu fékk ég mér yf-
irleitt einn swiss-mokka á Súfist-
anum eða cappucino á
Kaffibarnum og punktaði niður
verkefni kvöldsins, fór heim og
vann úr fram á nótt.
A
T
A
R
N
A
Hreinlætisvörur fyrir fyrirtæki og stofnanir
Hreinsiefni - íslensk framleiðsla
Pappírs- og sápuskammtarar
Hlífðarfatnaður
Pappír, plast og filmur
Þrifabúnaður
Ræstivagnar og sorpílát
Gólfhreinsivélar
VIKAN burstar og sköfur
Umhverfisvottaðar hreinlætisvörur
Sími: 510 1200 - www.tandur.is
- Þegar hreinlæti skiptir máli