SunnudagsMogginn - 14.02.2010, Side 35
14. febrúar 2010 35
dregið vini þeirra til dauða og oftast segja þau
að vinirnir hafi dáið úr TB, eða berklum.
Frieda upplifði mikinn hrylling þau ár sem
hún var á götunni. Margt þykir henni ekki neitt
tiltökumál og ofbeldi gagnvart konum svo algengt
að varla taki að nefna það. Hún ber stærðarinnar ör á
fæti og baki eftir að fyrrverandi kærasti hennar, þó ekki
Boeta, lamdi hana með járnstöng. Það fannst henni samt
ekki svo slæmt. Systir hennar lá kjálkabrotin í margar
vikur á spítala eftir sinn mann og það þótti henni verra.
„Ég varð líka einu sinni vitni að því að vinkonu minni var
nauðgað. Næsta dag hitti ég strákinn sem nauðgaði henni
og hann sagði að ef ég myndi segja frá myndi hann drepa
mig. Ég geymi ennþá þetta leyndarmál og hef ekkert
sagt. Vinkonu mína hef ég ekki séð síðan henni var
nauðgað og ég veit ekkert hvað varð um hana.“
En hvort sem börn búa á götunni í Suður-Afríku eða í
upphituðu húsi á Íslandi þá eiga þau sér flest hver
drauma. Frieda hefur sungið frá því hún man eftir sér og
átt þann draum lengi að verða fræg söngkona. Árið 2002,
þá búsett á götunni, reyndi hún fyrir sér í sjónvarpsþætt-
inum Pop-Stars í Suður-Afríku. Sá þáttur er byggður á
sömu hugmyndafræði og Idol Stjörnuleit sem sýnd hefur
verið hér á Íslandi. Með sína undurblíðu rödd komst
Frieda áfram í 50 manna úrslit, sem þykir mjög gott í svo
stóru landi. Saga hennar vakti athygli, enda ekki á hverj-
um degi sem götubörn reyna fyrir sér í poppbransanum.
Kvikmyndagerðarmennirnir Helgi Felixson og Titti
Johnson voru einmitt stödd í Höfðaborg á þessum tíma
vegna vinnu sinnar, þeim þótti Frieda og saga hennar
áhugaverð, komu að máli við hana og úr varð að um hana
var gerð heimildarmyndin Undir stjörnuhimni. Myndin
naut mikilla vinsælda, bæði í Svíþjóð og Suður-Afríku og
Frieda varð á augabragði þekkt í löndunum tveimur.
„Mér fannst í fyrstu erfitt að treysta Helga og Titti en svo
fóru þau að tala við okkur
krakkana og sýna okkur
áhuga og þá byrjaði samband
okkar að vaxa. Mér fannst stundum erf-
itt að hafa myndavélina í andlitinu en vandist
því samt fljótt. Krakkarnir stálu líka oft frá Helga
og Titti, símum og öðrum hlutum og brutust einu sinni
inn í bílinn þeirra. Þannig að þau þurftu að ganga í gegn-
um ýmislegt við gerð myndarinnar,“ sagði Frieda.
Helgi og Titti tengdust Friedu það sterkum böndum
við gerð myndarinnar að þau gátu ekki hugsað sér að
skilja hana eftir á götunni þegar þau héldu til Svíþjóðar.
Þau buðu henni nýtt líf í Svíþjóð, sem hún þáði. „Ég var
ekki búin að vera lengi í Svíþjóð þegar ég uppgötvaði að
ég var ekki tilbúin að yfirgefa götulífið. Ég gerði mér
vissulega grein fyrir að þarna fengi ég tækifæri til að
breyta lífi mínu en ég var í svo mikilli neyslu á þessum
tíma og því var tími minn í Svíþjóð mjög erfiður því þar
gat ég ekki nálgast nein vímuefni. Að sjálfsögðu saknaði
ég líka Boeta kærasta míns og vina minna en þeir voru
mér allt. Ég fór því aftur til Höfðaborgar til þess að búa á
götunni þar sem ég hafði ekki hugrekki þá til að yfirgefa
það líferni. Helgi og Titti gáfust aldrei upp á mér og það er
þeirra vegna sem ég fer enn tvisvar á ári til Svíþjóðar og
læri söng og syng með gospelkórum og án þeirra hefði ég
aldrei fengið tækifæri á að heimsækja Ísland,“ sagði
Frieda.
Tók fyrst eftir snjónum
En hvað ætli Friedu finnist um Ísland? „Það fyrsta sem ég
tók eftir var snjórinn. Það snjóar aldrei í Höfðaborg en
svo sá ég fljótt að það er líka mikill munur á fólkinu. Ís-
lendingar ganga fram hjá manni, líta jafnvel framan í
mann en heilsa hvorki né brosa. Í mínu landi væri því öf-
ugt farið. Við brosum og heilsum ókunnugum. Maturinn
hér er líka svolítið skrítinn. Mér finnst fiskurinn góður
en ég er ekki mjög hrifin af neinu öðru. Það sem stendur
samt upp úr hjá mér er ferð mín að Gullfossi og Geysi. Ég
hef aldrei séð neitt jafn fallegt í náttúrunni. Ég tók mikið
af myndum til að sína vinum mínum heima,“ sagði
Frieda.
Þegar Frieda var orðin átján ára gömul áttaði hún sig á
því að hún var ekki tilbúin að vera á götunni til æviloka.
Hún hafði séð á eftir fjölmörgum vinum sínum, bæði í
fangelsi og eins yfir móðuna miklu. „Allt í einu var ég
bara komin með nóg. Ég fann ekkert gott við götulífið.
Hvert ár var öðru líkt, þó að erfiðleikarnir væru mis-
jafnir. Einn daginn hringdi ég í Linzi Tomas, en hún er
stofnandi My-Life verkefnisins í Höfðaborg sem aðstoðar
götubörn við að koma undir sig fótum. Ég sagði henni að
ég gæti ekki lifað svona lengur og hún kom mér í My-Life
ferlið. Þangað kemst maður ekki nema maður sé sjálfur
tilbúinn til þess, því það er eingöngu hægt að hjálpa fólki
sem vill láta hjálpa sér.“ sagði Frieda. Gatan kallaði í sí-
fellu á Friedu í fyrstu og hún strauk frá heimilinu aftur á
götuna til að nálgast eiturlyf og vera með vinum sínum.
Þeir sem vinna með götubörnum vita hve aðdráttarafl
götunnar getur verið sterkt þegar þú hefur einu sinni bú-
ið þar og eru því umburðalyndir gagnvart slíkum hlið-
arskrefum.
Frieda er núna 24 ára og hefur ekki neytt vímuefna í
sex ár. Hún stundar tónlistarnám í Svíþjóð og á sér þann
draum heitastan enn í dag að verða heimsfræg söngkona
og í framhaldi af því að kaupa stórt hús fyrir fjölskyldu
sína í Höfðaborg. Hún er í góðu sambandi við Helga og
Titti og býr hjá þeim þegar hún dvelur í Svíþjóð. Nú
stendur yfir gerð framhaldsmyndar um Friedu sem fjallar
um líf hennar eftir götuna. Hún er þakklát reynslu sinni
af götunni og sér ekki eftir henni. Hún segir götuárin
hafa mótað sig og kennt sér að vera þakklát fyrir líf sitt.
Hér
er Frieda
aðeins 17 ára
og gatan enn
heimili
hennar.
Frieda
með Ronnie
systur sinni,
sem hefur lifað
á götunni í 17
ár.
Siaha-
bulela (t.v.)
var mikill vinur
Friedu á
götunni.
Þessi
mynd af
þeim Friedu og
Boeta er tekin
nokkru áður en
Boeta lést.
Hópur
Friedu af
götunni fylgdist
spenntur með gengi
hennar í Pop Stars. Hér
er hún nýbúin að fá þær
fréttir að hún komst
í gegnum fyrstu
úrtökuna.
Frieda
er orðin alvön
að koma fram
og á sér draum
um velgengni í
söngheiminum.Frieda
með
móður sinni
fyrir ári
síðan.
Kvik-
mynda-
gerðarfólkið,
Helgi og Titti,
hafa reynst
Friedu vel.
’
Ég varð líka
einu sinni vitni
að því að vin-
konu minni var
nauðgað. Næsta dag
hitti ég strákinn sem
nauðgaði henni og
hann sagði að ef ég
myndi segja frá myndi
hann drepa mig.“
’
Á götunni fékk
ég frelsi og ótak-
markaðan að-
gang að vinum mínum
og eiturlyfjum.“