SunnudagsMogginn - 14.02.2010, Blaðsíða 39
14. febrúar 2010 39
L
undur er borg á
Skáni í Suður-
Svíþjóð og hér
snýst lífið mikið
um Lundarháskóla sem
er stærsti háskóli á
Norðurlöndunum og má
segja að borgin hafi
byggst upp í kringum
háskólann síðan hann
var stofnaður 1666. Mað- ur finnur
vel fyrir því á sumrin hversu stór þáttur háskólinn er í
bæjarlífinu þar sem bærinn fær ansi rólegt yfirbragð
þegar um það bil fimmtíu þúsund nemendur hverfa til
síns heima á sumrin eða um helmingur borgarbúa. Þá
minnir Lundur mann kannski helst á Akureyri.
Einfaldleiki er það sem einkennir Lund, fólk kann
því vel að ferðast á milli staða á hjólum og ekki er óal-
gengt að sjá viðskiptajöfra í jakkafötum jafnt sem
nemendur þeytast um á hjólum. Þar sem hjól eru að-
alsamgöngumáti bæjarbúa eru hjólastígar og -leiðir til
fyrirmyndar og er ástæðan kannski sú að Lundur er
þéttbyggður bær og lítið um brekkur og því þægilegt
að fara á milli á hjólum. Það er ekki laust við að það sé
hreinlega mannbætandi að hjóla um gróin svæði
Lundar og má segja að það séu hrein lífsgæði að geta
notað hjólið sem samgöngutæki í stað bíls.
Lundur er vel gróinn staður og stór falleg tré setja
óneitanlega mikinn svip á bæjarlífið á sumrin. Lund-
argård er einn þekktasti garður Lundar, þar stendur
elsta bygging háskólans umvafin fallegum trjám og
yndislegum magnólíublómum á vorin. Við hlið þessa
garðs trónir síðan undarlega grálituð dómkirkjan sem
var vígð árið 1145 og er vinsælasti ferðamannastað-
urinn hér enda er þetta sérstakur staður með mikla
sögu.
Miðbær Lundar er lítill og auðvelt er að komast leið-
ar sinnar gangandi. Töluvert er af verslunum, veit-
ingastöðum og kaffihúsum í kringum aðaltorgið, Stor-
torget, sem og á götunum sem liggja út frá því.
Matarmenning á veitingastöðum Lundar er lituð af því
fjölþjóðasamfélagi sem hér er og hægt er að fá mat frá
öllum heimshornum.
Háskólinn í Lundi er í góðum tengslum við við-
skiptalífið og hér blómstra stór fyrirtæki. Þar ber helst
að nefna Sony Ericsson og Tetra Pak sem eru fyr-
irferðarmikil í borginni ásamt háskólasjúkrahúsinu.
Mikil þekking og reynsla býr því hér á ekki svo stóru
landsvæði þar sem skólinn og fyrirtækin kjósa að sitja
þétt saman til að mynda sem sterkustu tengslin. Þá
hefur Evrópusambandið ákveðið að hleypa af stokk-
unum tveimur mjög stórum samevrópskum rannsókn-
arverkefnum í Lundi 2012 sem kallast ESS og MAX IV
og snúast um rannsóknir á nifteindum. Þessi verkefni
eru gríðarlega stór og áætlað er að allt að 35.000
manns flytji til Lundar á næstu árum vegna þeirra og
því má búast við mikilli uppbyggingu hér á næstu ár-
um.
Í Lundi búa margir Íslendingar. Það er gott að geta
átt samneyti við samlanda sína þegar langt er heim.
Margir búa þar sem ég bý í Norður-Lundi á svæði sem
við heimamenn köllum „Kjammann“. Hér er þétt fé-
lagsnet Íslendinga og fyrirbæri eins og félagsmiðstöðin
Fagrihvammur, knattspyrnufélagið Tungur Knivur og
saumaklúbburinn Húsmæðramafían þrífast vel.
Að búa á Kjammanum verður helst lýst sem langri
sumarbústaðardvöl með góðum vinum. Hér stekkur
fólk á milli bústaða oft á dag til að fara yfir stöðuna og
matarboð eru mikið stunduð, þannig að ekki er
óvanalegt að fólk bjóði eða sé boðið nokkrum sinnum í
viku í mat. Á þennan hátt má segja að maður kynnist
vinum með nánari og allt öðrum hætti en heima á Ís-
landi. Fólk hefur einhvern veginn meiri tíma fyrir
hvað annað og samkeppnin sem er hluti af kapphlaup-
inu heima á Íslandi er ekki til staðar.
Póstkort frá
Lundi
Ragnar Fjalar
Sævarsson
Að búa á
Kjammanum
verður helst
lýst sem
langri sum-
arbústað-
ardvöl.
sem fólkinu fannst stórkostlegt. Þar gripu
þeir Friðrik til þess ráðs að reisa brú á milli
rútunnar og bátsins sem fer um lónið
þannig að hægt var að keyra hjólastólana
beint um borð í bátinn. Það mun ekki hafa
verið gert áður en tókst vel og Friðrik segir
uppátækið hafa vakið mikla athygli ann-
arra ferðamanna. Margir hafi verið boðnir
og búnir til að aðstoða.
Friðrik nefnir líka sérsaklega Sam-
gönguminjasafnið á Ystafelli í Þingeyj-
arsýslu, sem Sverrir Ingólfsson hefur
byggt upp af miklum myndarskap. „Hann
er sjálfur í hjólastól þannig að hinir er-
lendu gestir upplifðu heimsókn þangað
sem mjög sérstaka. Þeim fannst gaman að
koma á safnið og Sverri fannst gaman að fá
fólkið í heimsókn.“
Friðrik segir störf í ferðaþjónustu gríð-
arlega mikilvæg fyrir samfélagið og marg-
feldisáhrifin mikil. Hann ítrekar að víða sé
hægt að gera margt án þess að það kosti
mikla peninga.
Svo er talað um perlur …
Ástandið við Gullfoss og Geysi segir hann
afar slæmt. „Við Gullfoss er oft ekki gang-
andi vegna þess hve drullusvaðið er mikið
þegar rignir og að vetri til á fólk stundum
erfitt með að standa þegar hált er, og getur
slasast.“
Hann segir það hljóma fáránlega að á
hótelinu á Geysissvæðinu sé skortur á
heitu vatni. „Þeir mega ekki taka heitt
vatn á svæðinu! Það getur enginn tekið af
skarið hvað á að gera við Geysissvæðið,
ekki frekar en hvað á að gera við Reykja-
víkurflugvöll.“
„Ég hef oft velt því
fyrir mér að fá ein-
hverja vini mína til þess
að gefa 50 þúsund
krónur hver til þess að
kaupa nokkra vörubíls-
farma af möl og sturta
niður við Gullfoss. Það
þarf ekki meira til að
laga aðstæður þar. Og
svo mokar enginn snjó
á Geysissvæðinu og
enginn sandber stígana. Svo er talað um
perlur. Þetta er ekki boðlegt!“
Friðrik segir sjálfsagt mál að innheimt
verði smávægilegt gjald fyrir aðgang að
helstu ferðamannastöðum landsins. Út-
lendingum fyndist örugglega ekkert at-
hugavert við það. „Það er ekkert að því að
innheimta nokkra dollara þegar fólk
skoðar þessa staði, en þá þurfa líka að vera
landverðir til staðar, fólk í huggulegum
fötum sem tekur á móti fólki og er til að-
stoðar.“
Friðrik segir fólk skiljanlega orðið
þreytt á daglegum fréttum um að 10 millj-
arðar hafi tapast hér og 20 þar og blása
þurfi til sóknar. „Ég fullyrði að það þarf
100 milljónir króna að hámarki til þess að
byggja upp aðstöðu á ýmsum stöðum sem
gæti skilað fimm milljörðum til baka. Það
á ekki að þurfa að ræða þessa hluti. Það
þarf engar nefndir; bara að drífa þessu. Við
í grasrótinni sjáum að þetta er borðleggj-
andi.“
Það er fagurt við Goðafoss en ekki auðvelt að komast um í hjólastól.
stól.
’
Fólk sem
ferðast til Ís-
lands leitar
að einlægni og ein-
faldleika. Fólk vill
ekki trúa því að við
séum að verða eins
og allir hinir …
Gangstéttarhellur komu sér oft vel.