SunnudagsMogginn - 14.02.2010, Síða 40
40 14. febrúar 2010
V
eitingastaðurinn Rub 23 við
Kaupvangsstræti á Akureyri er
leyndardómur sem sífellt fleiri
uppgötva. Staðurinn leggur
sérstaka áherslu á fiskrétti; Einar Geirsson
segir að Rub hafi algjöra sérstöðu á íslensk-
um veitingahúsamarkaði og eigandinn
segist raunar ekki vita af öðrum stað í
heiminum sem bjóði upp á jafn fjölbreytta
samsetningu matseðils með tilbúnum
kryddblöndum sem gestir geta valið úr.
Eldar heima
Einar býr ásamt fjölskyldu sinni, eiginkonu
og þremur börnum í þéttbýliskjarnanum
við Hrafnagil í Eyjafjarðarsveit. Hann unir
sér vel þar, í sveitasælunni.
„Ég elda alltaf þegar ég er heima,“ segir
Einar þegar blaðamaður sest niður hjá
honum í eldhúsinu heima fyrir. Hann er að
taka til þorsk í kvöldmatinn og segist sjálf-
ur mun meira fyrir fisk en annan mat og
hafi alltaf verið; er ekkert feiminn við að
viðurkenna það þótt hann búi í þessu
mikla landbúnaðarhéraði! Enda er nóg
framboð af góðum fiski við Eyjafjörð og
sjálfur er Einar fæddur og uppalinn á
Tálknafirði; tengdist sjónum snemma.
Einar ákvað ungur hvað hann vildi verða
þegar hann yrði stór og byrjaði snemma að
dunda í eldhúsi.
„Ég vann við fiskvinnslu öll unglingsárin
og í fjölskyldunni eru allir sjómenn eða
tengdir sjávarútvegi á einhvern hátt.
Mamma var til dæmis kokkur á sjó þegar
ég var gutti. Ég prófaði sjálfur en fann fljót-
lega að það hentaði mér ekki að vera til
sjós.“
Ungur í eldhúsið
Einar var ekki nema 13 eða 14 ára þegar
honum var ljóst hvert ævistarfið yrði. „12
ára var ég farinn að skella í hjónabandssælu
þegar ég kom heim úr skólanum ef ekkert
var til með kaffinu. Maður græjaði þetta
bara! Það væri gott ef allir áttuðu sig svona
snemma á því hvað þeir vildu verða,“ segir
Einar og glottir.
Strax eftir skyldunámið fór Einar til
Reykjavíkur og hóf þar nám. „Ég byrjaði í
hamborgurunum,“ segir hann – fyrsti
staðurinn var nefnilega Hard Rock Café
sem Tómas Tómasson rak. Fljótlega, þegar
sá sami Tommi (sem nú er gjarnan kennd-
ur við Hamborgarabúlluna) onaði Ömmu
Lú í Kringlunni færði Einar sig um set og
Einar Geirsson í eldhúsinu heima á Hrafnagili; er þarna með heimaræktað krydd sem hann
skar niður og notaði á þorskréttinn góða sem hann gefur uppskrift að.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Einfalt, hollt
og gott
Einar Geirsson matreiðslumeistari á veitinga-
staðnum Rub 23 í Gilinu á Akureyri er hrifinn af
hollum og einföldum mat. Kryddblöndu-staður
hans og Kristjáns Þóris Kristjánssonar hefur
fengið mjög góðar viðtökur.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Matur
Þorri þjóðarinnar borðar að líkindum nokkrar
bollur af ýmsum sortum um helgina, og svo á
bolludaginn sjálfan – á mánudaginn.
Bakarar þessa lands standa sveittir við bollugerð
frá því fyrir helgi, en mörgum þykir hluti af
stemningunni að baka sjálfir bollur heima í eld-
húsi.
Hér er hugmynd að „hefðbundnum“ rjómaboll-
um fyrir þá, úr Bökun í heimahúsum eftir Helgu
Sigurðardóttur.
Rjómabollur
75 g smjörlíki
1 ¼ dl vatn
75 g hveiti
3 egg
salt
sykur
¼ l rjómi
súkkulaði
vatn
Í bókinni segir: „Smjörlíkið og vatnið látið í pott
og soðið. Þegar sýður, er hveitið hrært út í. Hrært
fljótt og vel saman með sleif, unz það losnar við
sleifina og pottinn. Látið í skál. Salti og sykri stráð
á. Kælt. Deigið hrært. Eggin hrærð saman við, eitt
og eitt í senn. Því næst hrært í 20 mínútur. Látið á
smurða plötu með teskeið eða sprautað úr poka.
Bakað við meðalhita. Má eigi opna ofninn fyrstu
2-3 mínúturnar. Bakist 20 mín. Á að stækka mik-
ið. Súkkulaði skafið niður mjög smátt og brætt á
þann hátt, að það er látið ásamt ögn af vatni í
skaftpott, sem settur er ofan í heitt vatn, og hrært
í því þangað til það er bráðið. Borið á bollurnar.
Efsti hluti bollunnar skorinn af og þeyttur rjómi
látinn á milli. Þeyttum rjóma sprautað á súkku-
laðið. Gott er einnig að láta berjamauk eða eggja-
bráð í botn kökunnar.“
Bollur án eggja og mjólkur
Hér er uppskrift fyrir þá sem eru með eggja- og
mjólkurofnæmi, jafnvel hvort tveggja. Þessar
henta ágætlega sem rjómabollur.
1 bréf þurrger eða 50 g pressuger
2 dl sykur
1 tsk salt
2 tsk kardimommur
2 dl olía (athuga þarf hvaða tegund er um að ræða
með tilliti til þess hvort um ofnæmi er að ræða. Ekki
nota bragðsterka olíu)
900 g hveiti
6 dl vatn 37 gráðu heitt. Gott að nota mjólk eða und-
anrennu fyrir þá sem mega.
Vökvinn er settur í skál og gerinu blandað saman
við. Smávegis af sykri er stráð út í og látið freyða.
Síðan er hveiti, kardimommum og sykri bætt út í
og deigið hnoðað vel. Deigið er látið lyfta sér þar til
rúmmálið hefur tvöfaldast, þá er því skipt í bollur
Freisting Frónbúans
Rjómabollur og sænskar semlur