SunnudagsMogginn - 14.02.2010, Page 47

SunnudagsMogginn - 14.02.2010, Page 47
14. febrúar 2010 47 LÁRÉTT 1. Lýsingarorð yfir varpaðan í niðurstöðunni (10) 4. Partí í Vatíkaninu er skipun þaðan. (7) 8. Horfir á lit í sérstakri skoðun. (7) 10. Tölvu færð næstum því fyrir krónur og pasta. (10) 11. Sei, sei, lastmælgi við að teygja sig. (7) 12. Grá blandast við urð hjá tré. (9) 13. Deigbolla er á mörkunum að lenda í málm- bræðsluíláti. (6) 14. Æ, risti sig maður. (5) 16. Háttsettur arabi er fyrir ís. (5) 17. Vatnagangur áfengissopa endar í gráti. (8) 20. Draugur sem gangi. (5) 21. Eggjum verpt undir það sem er háð. (10) 22. Bráð stefna er tekin á fundi. (9) 25. Söngva virtir fyrir réttláta. (8) 28. Með lauftréð úr efninu. (7) 29. Stoðvefurinn í jórturdýri nýtist sem verkfærið. (8) 30. Söngvar bróður Bubba snúa að innflutningi (8) 32. Prútta um blómangan. (5) 33. Nei, sting fyrir brennandi ögn. (6) 34. Naut og Anais mætast í vellíðaninni. (7) 35. Drykkjarmálið hjá draugum er yfirskilvitlega sam- skiptaaðferðin. (10) LÓÐRÉTT 1. Slakaðist á einhvern hátt þegar skaddaðist. (9) 2. Skælir einhvern veginn yfir ikt og sérhæfðri yrkingu. (9) 3. Hitti Al hjá æðri máttarvöldum. (7) 4. Jólatré með rafljósum birtist í jólasöng. (7) 5. Uppgötvi Norðurlandabúa. (5) 6. Átta sig á dóttur Bjarts við hlutfall milli hvítasta hvíta litar og svartasta svarta litar. (9) 7. Skærur út af Rauð og litnum á honum. (10) 9. Kemur upp skýli yfir fugla. (7) 11. Sú sem stendur ekki lengi er óslitin. (7) 14. Ármynni hefur farvann samfelldan. (8) 15. Er skapvond vegna söng ryks og fær áfall? (10) 18. Hefur fyrir krakkann að sögn í fyrirætluninni. (7) 19. Ílátið mælir dýpt og erindið um landspilduna. (10) 21. Sjá uppkomna á einhvern veginn í slæma málinu. (9) 23. Samkoman hjá djöflunum sem kemur reglulega. (8) 24. Bylturnar í skít valda fjarvistum. (9) 26. Aðeins pílu hafi fátækur. (6) 27. Algengu elskurnar sem sagt er frá í fréttunum. (8) 31. Gefið dáið. (5) Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátt- tökuseðilinn með nafni og heim- ilisfangi ásamt úrlausninni í um- slagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila úrlausn krossgátu 14. febr- úar rennur út föstudaginn 19. febrúar. Nafn vinn- ingshafans birtist í blaðinu 21. febrúar. Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinningshafi krossgátunnar 7. febrúar sl. er Óskar H. Ólafs- son. Hann hlýtur í verðlaun bókina Meistarinn og Margaríta eftir Mikhaíl Búlgakov. Forlagið gefur út. Krossgátuverðlaun SKÁKÞING Reykjavíkur 1975 vakti mikla athygli þegar það hófst því meðal þátttakenda var Friðrik Ólafsson. Þar kvaddi sér einnig hljóðs 14 ára piltur, Mar- geir Pétursson. Hann verður fimmtugur á morgun. Hann komst strax í hóp efstu manna og hélt sér þar allt til loka. Það sem mesta athygli vakti frá hendi hins unga skákmanns var glæsilegt endatafl sem hann vann af hinum reynda meistara Braga Kristjánssyni. Nokkrum mánuðum síðar varð Margeir efstur við fjórða mann í lands- liðsflokki og ári síðar var hann valinn í ólympíulið Íslands 16 ára gamall. Þeir óvenjulegu hæfileikar sem hann hafði til að bera samfara ódrepandi bar- áttuvilja, seiglu og úthaldi í erf- iðum stöðum fylgdu honum all- an skákferilinn og áreiðanlega líka inn á þann vettvang sem hann valdi sér síðar. Vönduð vinnubrögð hans voru annáluð, í frægar stílabæk- ur sínar skráði hann allar nýjar upplýsingar. Skákmaður af eldri kynslóðinni fullyrti að þekking sumra íslenskra skákmanna væri þeim beinlínis til trafala. En þetta var gömul tugga og það vissu þeir sem komnir voru til að sjá og sigra. Á níunda áratug síðustu aldar þegar bestu skák- menn þjóðarinnar voru iðulega á lista yfir 50 bestu skákmenn heims var Margeir manna iðn- astur við kolann. Hann vann fjölda alþjóðlegra móta og tefldi yfirleitt 100 kappskákir eða meira á ári. Eftir sigur á svæða- móti Norðurlanda í ársbyrjun 1985 og 2. sæti með Boris Spasskí á 60 ára afmælismóti SÍ voru fullmikil þyngsli yfir tafl- mennsku hans á millisvæða- mótinu í Biel um sumarið. En hann lærði sína lexíu. Margeir vann Hastings-mótið næstu áramót og varð skákmeistari Norðurlanda 1987. Skákstíll hans tók ýmsum breytingum þessum árum; líkt og gamli heimsmeistarinn Em- anuel Lasker tók hann stundum á sig erfiðar stöður og þar var hann hættulegastur. Um ára- mótin 1989-1990 vann hann La- jos Portisch, Alexander Bel- javskí og Ulf Andersson í Reggio Emilla á Ítalíu; þaðan hélt hann til Wijk aan Zee þar sem hann komst taplaus í gegnum í eitt sterkasta mót ársins. Þeir sem tefldu með Margeiri í ótal flokkakeppnum um ára- tugaskeið vissu að þeir voru með manni í sveit sem hægt var að stóla á. Langar og snúnar viðureignir voru margar en sú sem hér birtist, sem hann tefldi á heimsmeistaramóti landsliða 1993, er stutt og snjöll. Íslend- ingar höfðu þá nýverið unnið Rússland og þarna var komið að sveit Armena. Byrjun svarts virðist ekki gefa mikil fyrirheit en skyndilega nær svartur frumkvæðinu með 20. … Hc3. Armeninn reynir að reka hrók- inn af höndum sér; magnaðir hróksleikir brjóta niður varnir hvíts: 21. … Hxf3! og 23. … Hh3! 24. Dc7 var varnartilraun en þá kemur 24. … De3+ 25. Kh1 Hxh2+! 26. Kxh2 Rg4+ 27. Kh1 Dh6+ 28. Kg1 e5! og vinnur. HM landsliða, Luzern 1993: Sindbað Lputjan - Margeir Pétursson Bogo-indversk vörn 1.d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 Bb4+ 4. Rbd2 b6 5. e3 Bb7 6. Bd3 O-O 7. O-O d5 8. a3 Bxd2 9. Bxd2 dxc4 10. Bxc4 Rbd7 11. De2 c5 12. Hfd1 De7 13. Dxc5 Rxc5 14. Rd4 Rfe4 15. f3 Rxd2 16. Hxd2 a6 17. b4 Rd7 18. Df2 Re5 19. Bf1 Hac8 20. e4 Hc3 21. Re2 Hxf3 22. Dxb6 Dg5 23. Dxb7 23. … Hh3 24. Da7 Rf3+ 25. Kf2 Rxd2 – og Lputjan gafst upp. Fram- haldið gæti orðið 26. gxh3 Rxe4+ 27. Kf3 Rd2+ 28. Kf2 Df6+ og vinnur. Helgi Ólafsson heol@simnet.is Fimmtugur stórmeistari seiglunnar Skák Nafn Heimilisfang Póstfang

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.