SunnudagsMogginn - 14.02.2010, Side 49
14. febrúar 2010 49
Hreinn Friðfinnsson er
fyrstur myndlist-
armanna til að sýna í
hinu nýja sýningarrými
i8 gallerísins að
Tryggvagötu 16 en
sýning hans, er nefnist
More or Less, var opn-
uð á föstudagskvöldið.
Á sýningunni eru
forvitnileg verk,
myndbönd og skúlptúrar. Listamað-
urinn býr í Amsterdam og átti ekki
heimangengt á opnunina, þar sem hann
glímdi við flensu síðustu daga, eins og
hann sagði þegar slegið var á þráðinn
til hans. Hreinn segir að meðal annars
komi þyngdaraflið við sögu í sumum
þessum nýju verkum en annars sé
margt í gangi.
„Svona sýning verður bara til,“ segir
hann, „frekar en það sé eitthvert
ákveðið þema sem gengið var upp-
haflega útfrá.
En þarna má meðal annars sjá birtast
þau ágætu lögmál, tregðu og þyngd-
arafl, sem stjórna okkur mikið.“
Eitt verkanna byggist á fallandi lauf-
blöðum og Hreinn segir að í þeim sé
viss orka, og vöxtur. „En það er eitt-
hvað fyrir fólkið sem sér verkið að
spekúlera í.“ Hann segir að mynd-
bandsverkin tvö á sýningunni séu ekki
alveg ný af nálinni en hafi ekki verið
sýnd áður á Íslandi. Annað er „lands-
lagsmynd á vegg“. Hitt sýnir vasa sem
er forn að gerð og vísar í klassíska suð-
ur-evrópska list.
„Ég hef ekki mikið um þessi verk að
segja, þetta liggur nokkuð í augum
uppi. Fólk getur gramsað í því í sínum
kolli.“ Það má heyra hvernig listamað-
urinn, sem lætur ekki of mikið uppi,
brosir á hinum enda línunnar.
Síðasta árið hefur verið annasamt hjá
Hreini. Þessi sýning er fimmta einka-
sýningin síðan í febrúar í fyrra. Hann
hefur sýnt í Brüssel í tvígang, í Stokk-
hólmi og nýlokið er sýningu í Madríd.
„Það er búið að vera nóg að gera.
Stundum raðast sýningar svona saman
en svo getur verið rólegt á milli. Ég veit
ekki af neinu sýningastússi fyrr en í
september, en þá er kominn tími á
gamla galleríið mitt í París,“ segir
Hreinn en hann stefnir á að koma
hingað upp í lok mánaðarins. „Það eru
mannasiðir að koma að skoða sýn-
inguna og nýja galleríið,“ segir hann.
Í tilefni sýningarinnar hefur Hreinn
gert grafíkverk er nefnist Untitled
(More or Less), en stefna i8 er að í
framtíðinni búi sýnendur í galleríinu til
myndverk í tölusettu upplagi.
Stilla úr ónefndu myndbandsverk Hreins á sýningunni, af bókum í landslagi.
„Fólk getur grams-
að í sínum kolli“
Hreinn
Friðfinnsson„Frá upphafi höfum við þannig sýnt
verk eftir fjölbreytilegan hóp erlendra og
innlendra listamanna. Af sýnendum á síð-
ustu árum má til dæmis nefna þá Ernesto
Neto, Hamish Fulton og Anthony McCall.
Auk þess gerði sýningastjórinn Kitty Scott
stóra sýningu fyrir okkur. Þetta eru allt
spennandi listamenn sem passa vel við
heildarmyndina hjá okkur.
Það sem er hér til sölu er að mínu mati
undantekningalaust góð myndlist. Auð-
vitað er það hvers og eins að dæma, en við
vinnum einbeitt með það að markmiði.“
Börkur segir hóp viðskiptavina hafa
hægt og rólega farið stækkandi á þessum
fimmtán árum. Hann brosir þegar hann er
spurður að því hvort þetta sé ekki sér-
kennilegur tími til að stækka galleríið og
segir að sem betur fer sé fólk enn að kaupa
myndlist.
„Síðasta ár var miklu betra en við þorð-
um að vona. Allur listheimurinn var titr-
andi af ótta, spáð var 50% niðurskurði.
Eftir fyrstu fjóra mánuðina í fyrra stefndi í
það hjá okkur, en útkoman var mun betri
en það.
Gengið hjálpaði vissulega mikið, þar
sem við seljum mest erlendis.
Auðvitað er þetta nýja rými mikil fjár-
festing, en allt sem við gerum er langtíma-
fjárfesting. Bæði vinnan með listamönn-
unum og vinnuaðstaðan.“
’
Við höfum vaxið úr
því að vera lítið gall-
erí sem lagði frá upp-
hafi metnað í að sýna góða
myndlist, yfir í að vinna
miklu meira með lista-
mönnunum, eins og galleríi
ber að gera.
„Síðasta ár var miklu betra en við þorðum að vona,“ segir Börkur Arnarson.
Morgunblaðið/Einar Falur
yfir Canal Grande í Feneyjum og útsýnið
til Rómar í myndum sínum,“ segir Einar.
„Hugsanlega tengist þetta líka vinnu
minni sem leiðsögumaður á Ítalíu, þar sem
ég fer iðulega með farþega mína í ein-
hverskonar „Grand Tour“, en fyrst og
fremst þá er þessi sýning óður til málara-
listarinnar – þótt verkin séu kannski ekki
málverk í hefðbundnum skilningi.“
Að vissu leyti er Einar Garibaldi í hlut-
verki safnarans á þessari sýningu, en hann
segist líka vera að varpa fram spurningum
um möguleika málverksins eftir að Marcel
Duchamp skapaði sín myndverk á fyrri
hluta 20. aldar. Hin „fundnu málverk“
hans má að vissu leyti skilja sem dagbók-
arfærslur hans á því ferðalagi, með til-
vísun til listamanna sem tókust „Grand
Tour“ ferðina á hendur.
efi@mbl.is Einar Garibaldi hefur farið„Grand Tour“ um Ítalíu og safnað fundnum málverkum, einu úr hverri borg sem hann hefur komið til.
Morgunblaðið/Ernir