SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Síða 2

SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Síða 2
2 30. maí 2010 22 Húslestur Listahátíð í Reykjavík gengst fyrir dagskrá um helgina þar sem þjóð- kunnir rithöfundar opna heimili sín og lesa úr verkum sínum. 24 Hef aldrei kallað mig söngkonu Kolbrún Bergþórsdóttir ræðir við Svanhildi Jakobsdóttur. 27 Engin hrekkjusvín í bekknum Krakkarnir í 12 ára E í Austurbæjarskólanum, sem útskrifuðust 1944, hittast nokkrum sinnum á ári, borða eða ferðast saman. 28 Nei, hann er of stór! Ragnar Axelsson segir söguna bak við myndina. 32 Troðið út úr dyrum Fjórða Skjaldborgarhátíðin er nú að baki og örugglega ekki sú síðasta ef marka má hljóðið í aðstandendum. 37 Gítargaldrar Thiago Trinsi býr á Akureyri og kennir gítarleik á Ólafsfirði. Hann þykir eitt best varðveitta leyndarmál lands- ins. Lesbók 48 Ólst upp ættingjalaus Rithöfundurinn Christina Sunley, sem er af íslenskum ættum, er væntanleg hingað til lands nú um helgina að kynna nýja bók. 49 Hanga eða fljóta Ljóð eftir Berg Ebba Benediktsson úr Tími hnyttninnar er liðinn. 52 Seljast eins og heitar lummur Gott framboð er af þýddum norrænum glæpasögum hér á landi. Þær einkennast yfirleitt af raunsæi og töluverðum drunga. 34 Efnisyfirlit Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudags- moggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Hólmfríður Gísladóttir, Ingveldur Geirs- dóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson. Augnablikið A ðkomumönnum hefur oft verið kennt um það sem miður fer á Akureyri og enn einu sinni gerðu þeir heimamönnum í höf- uðstað Norðurlands skráveifu í fyrra- kvöld. Að þessu sinni var reyndar hvorki um ólög- legt né ósiðlegt athæfi að ræða, „bara“ sigur í knattspyrnuleik. Augnablikið á myndinni að ofan gerði hugsanlega út um Íslandsmótið, Pepsídeildina, þrátt fyrir að sumarið sé í reynd ekki komið norður. Meistarinn Valur lagði Þór/KA að velli. Stúlkurnar að norðan gerðu í fyrsta skipti tilkall til meist- aratignar í fyrra og ætluðu sér að stíga skrefið til fulls í sumar. Fyrstu mínútur leiksins minntu á kvæði lista- skáldsins góða, Óhræsið: Valur er á veiðum, vargur í fuglahjörð, veifar vængjum breiðum, vofir yfir jörð Valurinn missti af rjúpunni í kvæði Jónasar en hún slapp þó ekki með skrekkinn, vel að merkja. Ólíklegt er að Valurinn á Íslandsmóti kvenna láti nokkra bráð sleppa í sumar ef marka má frammistöðuna til þessa. Það var hrollkalt í kvæði Jónasar og hitinn ekki nema fimm gráður þegar flautað var til viðureignar toppliðanna tveggja á Þórsvellinum. Húfur, treflar, vettlingar og úlpur komu sér vel en utanbæj- armönnum hlýnaði aðeins um hjartarætur nokkr- um mínútum síðar. Valur gerði þá fyrsta markið. Á móti norðanvindinum, meira að segja. Valur í vígahuga varpar sér á teig, eins og fiskifluga fyrst úr löngum sveig hnitar hringa marga; hnýfill er að bíta; nú er bágt til bjarga, blessuð rjúpan hvíta! Hvítklæddir heimamenn voru greinilega særðir; lykilmenn hafa glímt við meiðsli og liðið átti erfitt uppdráttar. En rétt áður en fyrri hálfleik lauk braust sólin fram úr skýjunum og ekki var að sök- um að spyrja að lið Þórs/KA jafnaði, enda Norð- lendingar vanari því að sólin leiki við þá en ekki. Svo skoruðu þeir aftur og áhorfendur brostu í hléinu. Valsmenn jöfnuðu á ný þegar nokkrar mínútur voru liðnar af seinni hálfleik og þá dró að sjálfsögðu fyrir sólu aftur ... Útslagið gerði svo mark hinnar bráðefnilegu Dagnýjar Brynjólfsdóttur. Siguröskrin úr búningsklefa aðkomuliðsins sögðu sína sögu í leikslok. Þögn ríkti í hinum enda stúkunnar. skapti@mbl.is Titillinn tryggður? Dagný Brynjarsdóttir, til hægri, fagnar eftir að hún náði forystu fyrir Val á Akureyri undir lokin. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Valur er á veiðum 3. júní Næstkomandi fimmtudag mun nýtt tón- og textaverk eftir tónlistarmann- inn Benedikt H. Hermannsson verða frumflutt á Listahátíð. Benni og skoski söngvarinn Alasdair Roberts munu syngja persónulega texta á ís- lensku og skosku, en undir sönginn spilar Blásarasveit Reykjavíkur. Tón- leikarnir verða endurteknir 5. júní í Ketilhúsinu á Akureyri. Tónleikarnir í Reykjavík verða hins vegar í Íslensku óperunni og hefjast kl. 20. Nýtt verk Benna Hemm Hemm Við mælum með… 29. og 30. maí Það verður mikið um að vera á Listahátíð í Reykjavík um helgina. Laugardag og sunnu- dag verða haldnir húslestrar heima hjá rithöfundum og hefjast þeir á klukkutíma fresti. Aðeins ör- fá sæti eru í boði á hverjum stað. Um helgina verða einnig fjórar sýn- ingar á tónævintýrinu Herra Pottur og ungfrú Lok í Kúlunni í Þjóðleik- húsinu. Þetta er skemmtileg barnasýning þar sem fram koma hljóðfæra- leikarar, brúður og sögumaður. Á sunnudeginum flytja Ágúst Ólafsson barítón og Gerrit Schuil píanóleik- ari Svanasöng Schuberts í Fríkirkj- unni kl. 11, en tónleikaröð þeirra á Listahátíð hefur hlotið einróma lof áheyrenda. www.listahatid.is Leikarinn Gary Coleman lést úr heilablóðfalli á föstudag. Hann var barna- stjarna og lék í ógrynni af bandarískum sjónvarpsþáttum og ófáum kvik- myndum. Hér sést hann ásamt klámmyndaleikkonunni Mary Carey, en þau buðu sig bæði fram til embættis ríkisstjóra Kaliforníu í október 2003. Reuters Barnastjarna fallin frá Veröldin Forsíðumyndina tók Eggert Jóhannesson af Högna Egilssyni.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.