SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Side 22
22 30. maí 2010
Andri Snær Magnason
Karfavogur 16, 104 Reykjavík.
Sunnudaginn 30. maí kl. 16
Birta, ofbirta og óbirta efnið
Andri Snær býður heim í stofu í
Karfavogi þar sem hann ætlar að
lesa úr áður óbirtum verkum, öðr-
um sem aldrei verða birt og ein-
hverju sem er orðið máð af ofbirt-
ingu. Sagt verður frá hugmyndum
sem aldrei komust í orð og orðum
sem vantaði stærri hugmynd. Þarna
verða ljóð og ljóðabrot, sögur og
sögubrot. Texti verður lesinn áfram
og afturábak. Höfundurinn lofar
fullkomnu gegnsæi, hann kemur til
dyranna eins og hann verður
klæddur - fjölskyldualbúm liggja
frammi og sokkaskúffur opnar.
Húslestur
Húslestur var áður fyrr mikilvægur þáttur í ís-
lenskri menningu. Þá safnaðist fólk saman á
kvöldin í baðstofu og hlýddi á upplestur úr góðri
bók. Þessi siður verður endurvakinn nú um
helgina á Listahátíð í Reykjavík þegar þjóðkunnir
rithöfundar opna heimili sín og efna til húslestrar.
Þetta er annað árið í röð sem íslenskir höfundar
bjóða heim til sín. Höfundarnir hafa nokkuð
frjálsar hendur í húslestrinum og munu lesa upp
úr ljóðum, sögubrotum, barnabókmenntum, jafnt
útgefnu efni sem nýskrifuðu.
Eins og gefur að skilja er sætaframboð takmarkað
en hægt er að panta miða á vef Listahátíðar og
kosta þeir þúsund krónur.
Ljósmyndir: Kristinn Ingvarsson kring@mbl.is
Auður Jónsdóttir
Drafnarstígur 2a, 101 Reykjavík.
Laugardaginn 29. maí kl. 16
Auðug veröld
Í kaffisamsætið mæta þeir sem eru og þeir sem
voru, lifendur og dauðir, þeir eru sögurnar sem rata
á blað í þessu húsi þetta árið. Bakkelsið með kaffinu
Íslandssögur og Reykjavíkursögur. Sögur af fólki
sem safnast saman í sögu. Hver veit nema gestir og
gangandi eigi eftir að finna sig í sögunni, já, sam-
sætið gæti endað í bók. Það er undir gestum komið.
Guðrún Helgadóttir
Túngata 43, 101 Reykjavík.
Sunnudaginn 30. maí kl. 14
Í barnaskapi hjá Guðrúnu
Það getur ýmislegt gerst í stofunni þar sem
sögupersónur hafa orðið til og gera sig stund-
um heimakomnar. Það er óvíst hverjar þeirra
mæta til leiks að þessu sinni, en í það minnsta
verður lesið um lifið hans Gúnda sem vantaði
svo sárlega handagúndavél. Auk þess verður
myndum varpað á vegg eftir því sem við á.
Sigrún Eldjárn
Fjölnisvegur 12, 101 Reykjavík.
Laugardaginn 29. maí kl. 14
Krókófílar, krakkar og
kellingar
Þrítugir krókófílar spígspora um
veggi og gólf. Dularfullar eyjar á
floti, á flugi og í kafi. Krakkar og
gamlar kellingar flengjast um
geiminn með torkennilegum
verum. Það er allt í plati!
Kristín Ómarsdóttir
Vesturgata 33b, 101 Reykjavík.
Sunnudaginn 30. maí kl. 15
Vélmenni fer í sumarfrí
Lesin verða gömul ljóð og ný, og
nokkrar stuttar sögur fá að fylgja
með. Húslesturinn er tileinkaður
árstíðinni, þegar vorið er að
breytast í sumar, tíminn hættir
að vera til, því morgunbirtan er
óljós og líkist jafnmikið birtunni á
öðrum stigum sólarhringsins.
Kristín mun setja sig í fótspor
vélmennis sem horfir upp eftir
sumarvegi, finnur undarlega
angan af gróðri, heyrir suð í flug-
um, og söng í nýjum fuglum,
sumum herskáum, öðrum við-
kvæmum, jafnvel einrænum
fuglum sem gæta eggja sinna.