SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Blaðsíða 9

SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Blaðsíða 9
30. maí 2010 9 Þ eir sem vakna á nótt- inni til að fá sér sígar- ettu eða taka einn smók áður en þeir fara inn á baðherbergið á morgnana geta hugsanlega skellt skuldinni á erfðamengi sitt. Þetta hafa vísindamenn fundið út í stórri, alþjóðlegri rannsókn sem norski vefurinn For- skning.no segir frá. Niðurstöður hennar benda til þess að ákveðin gen á litningi 15 ýti undir miklar reykingar hjá genaberanum. Í rannsókninni voru kortlagðar reykingavenjur yfir 140 þúsund einstaklinga og þær svo bornar saman við ákveðin genaafbrigði. Markmið rannsóknarinnar var fyrst og fremst að finna út hvort þessi gen ýttu undir það að fólk yrði háð reykingum. Í framhald- inu stendur til að kanna hvort hægt sé að slökkva á reyk- ingafíkninni með klæða- skerasaumuðum lyfjum. „Það sem gerir þessa rannsókn spennandi er að hún getur stuðlað að því að finna líf- fræðilega skýringu á reyk- ingafíkn,“ segir Per Bakke, frá Háskólanum í Bergen, sem tók þátt í rannsókninni. Reykingar eru ein höfuðorsök sjúkdóma og dauðsfalla í heim- inum. Hugmyndin er þó ekki að hugsanleg meðferð komi í stað- inn fyrir fyrirbyggjandi aðferðir og herferðir gegn reykingum. „Hins vegar getur hún orðið stórreykingamönnum til gagns,“ segir kollegi Bakke, Amund Gulsvik. 500 þúsund genaafbrigði skoðuð Sömu gen og vísindamennirnir hafa tengt við reykingafíkn eru einnig talin auka hættuna á að viðkomandi fái lungnakrabba- mein og lungnaþembu. „Þeir sem eru háðastir reyknum hafa því hugsanlega stærstu ástæðuna til að drepa í,“ segir Bakke. Í rannsókninni gengu vís- indamennirnir út frá svokölluðu skammta- og viðbragða- sambandi þar sem reykingar eru annars vegar. Það þýðir að sam- hengi er á milli þess hversu mikil fíknin er og fjölda sígaretta sem viðkomandi reykir. Þeir sem voru skilgreindir sem stór- reykingamenn reyktu fleiri en tuttugu sígarettur á dag. Reyk- ingavenjur fólksins voru kort- lagðar með spurningalista og svörin borin saman við gena- mengi viðkomandi með sérstakri aðferð, þar sem vísindamenn- irnir rannsökuðu alla litninga hans með það fyrir augum hvort hægt væri að tengja ein- hver genaafbrigði við ákveðna hegðun eða sjúkdóm. Vís- indamennirnir skönnuðu í gegn um u.þ.b. 500 þúsund genatilbrigði hjá hverjum þeirra 140 þúsund manna sem tóku þátt í rannsókninni, í því skyni að staðsetja reykingagen. Fyrri rannsóknir hafa bent til samhengis milli þessara ákveðnu gena og reykingafíkn. „Núna er endanlega búið að fá þetta samhengi á hreint í gegnum þessa stóru, alþjóðlegu rannsókn þar sem tekið er tillit til upplýsinga um reykingafólk frá fjölda landa,“ segir Bakke. Fundu genið fyrir reykingafíkn Vonir standa til þess að hægt verði að þróa lyf til að auðvelda stórreyk- ingamönnum að drepa í. Morgunblaðið/Ómar Vikuspegill Bergþóra Njála Guðmundsdóttir ben@mbl.is Vísindamenn hafa fundið út hvaða gen hafa áhrif á reykingafíkn manna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.