SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Blaðsíða 13
30. maí 2010 13
Morgunblaðið/Eggert
’
Pabbi er
mjög mús-
íkalskur
maður,“ segir
Högni. „Mamma
er það raunar
líka enda þótt
hún leiki ekki
sjálf á hljóðfæri.
Hún hefur spilað
Bach, Mozart,
Händel og hina
gömlu meist-
arana í botni frá
því ég man eftir
mér.
Sveitarstjórnarkosningar fara fram á Íslandi í
dag (laugardag) og Högni Egilsson er spurður
hvort hann sé pólitískur.
„Ég er meðvitaður,“ svarar hann að bragði,
„og reyni eftir bestu getu að fylgjast með og
taka þátt í umræðunni um hluti sem mér þykja
skipta máli. Við lifum á undarlegum en um
leið skemmtilegum tímum. Gap hefur myndast
í íslenskri pólitík og fyrir vikið eiga nýir, spenn-
andi og skrýtnir hlutir upp á pallborðið.“
– Áttu þar við Besta flokkinn?
„Já, þar er mjög forvitnileg samfélagsleg til-
raun á ferðinni. Besti flokkurinn hefur hrist
duglega upp í kosningabaráttunni og mun
örugglega hrista vel upp í borgarstjórn þegar
hann hefur komið mönnum þar að. Mér finnst
ekkert að því að gera hlutina með öðrum
hætti en við erum vön. Forsenda þróunar er
að prófa nýja hluti. Hlutir sem virka óþægilegir
við snertingu eru oftar en ekki hlutirnir sem
koma okkur áfram. Það er eðli þróunarinnar
að hún er óþægileg fyrst. Það gildir um stjórn-
mál alveg eins og vísindi og list.
Ég hef ekki hugmynd um hvort þessi breyt-
ing í borginni kemur til með að virka – kannski
fer allt í bál og brand og borgarstjórastóllinn
gengur milli manna – en við komumst ekki að
því öðruvísi en að prófa. Stundum er betra að
gera eitthvað en ekki neitt.“
– Þú kvíðir því sum sé ekki að nýtt afl komi
með svona afgerandi hætti inn í borgarpólitík-
ina, eins og skoðanakannanir benda til?
„Alls ekki, svo lengi sem það verður gott
samtal þarna á milli. Það er eðlilegt að fólk ríf-
ist í borgarstjórn og stjórnsýslunni almennt og
sé ekki sammála um alla hluti en það verður
að geta unnið saman að sameiginlegum hags-
munamálum.“
Fagnar hugmyndinni
– Þýðir þetta að þú munt kjósa Besta flokk-
inn?
„Það er ekki endilega víst. Ég fagna samt
hugmyndinni og því að svona margir í sam-
félaginu virðast vera tilbúnir að taka þátt í
þessari tilraun. Besti flokkurinn segist ætla að
vinna af heilindum og sjá hlutina í öðru ljósi
en við eigum að venjast. Því ber að fagna.“
Forvitnileg samfélagsleg tilraun
N
B
I
h
f.
(L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
),
k
t
.
4
7
1
0
0
8
-
0
2
8
0
.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
17
6
0
Einkabankinn í
símann þinn á l.is
EINKABANKINN | landsbankinn.is | 410 4000
Nú getur þú sinnt bankaviðskiptum í símanum þínum, hvar og hvenær sem er.
Það er einfalt að skoða yfirlit yfir stöðu reikninga og kreditkorta, framkvæma
millifærslur, kaupa inneign fyrir GSM síma, sækja PIN-númer fyrir VISA kreditkort,
greiða inn á kreditkort og fletta upp í þjóðskrá.
Farðu inn á l.is og prófaðu Einkabankann í símanum þínum. Innskráning er með
sama hætti og þegar farið er í Einkabankann í tölvunni þinni. Þú skráir notendanafn,
lykilorð og auðkennisnúmer og þar með er fyllsta öryggis gætt.