SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Blaðsíða 37

SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Blaðsíða 37
30. maí 2010 37 Þ egar fingur Brasilíumannsins Thiago Trinsi spretta úr spori á gítarhálsinum dettur manni einn helst í hug heimsmeistarinn í 100 metra hlaupi eða kappaksturskappi á bíl sínum. Eða ballettdansari og spretthlaupari sem einn og sami mað- urinn! Trinsi hefur nú búið í fimm ár á Íslandi en það var fyrir einskæra tilviljun að hann kom til landsins. Það má þakka því að Einar Máni Friðriksson, tölvunarfræðingur og gítarleikari í hljómsveitinni Douglas Wilson, var skiptinemi í suðurhluta Brasilíu. „Thiago er tæknilega besti gítarleikari á Íslandi. Hann er best geymda leyndarmál landsins og ætti að vera í því að halda masterclass námskeið fyrir lengra komna en ekki að kenna byrjendum,“ segir Einar í samtali við Morgunblaðið. Þegar spurt er hvort Thiago sé besti gít- arleikari landsins, svarar Einar: „Hann og Guðmundur Pétursson þurfa að hittast!“ Trinsi hefur undanfarin misseri leikið með hljóm- sveitinni Killer Queen sem sérhæfir sig í músík snilling- anna í Queen; í þessu bandi eru meðlimir Hvanndals- bræðra auk Magna Ásgeirssonar söngvara og Brasilíumannsins. Enginn gleymir kvöldstund með ábreiðusveitinni og er ástæðan ekki síst frammistaða Trinsis. Þá hefur hann vakið mikla athygli fyrir upp- tökur sem er að finna á síðunni Youtube á vefnum. Hann hefur verið iðinn við að koma sér á framfæri á þeim vettvangi og hefur nokkrum sinnum tekið þátt í keppni á netinu. Nýverið lauk gítarhátíð í Rúmeníu þar sem hann varð í 4. sæti og hann hlaut silfur í keppni í Þýska- landi fyrir ári. Keppnin fer þannig fram að þátttakendur eiga að setja saman og spila eigin útgáfu af gítarleik í ákveðnum lögum og þeir 10 bestu eru valdir í úrslit. Brasilíski Akureyringurinn hefur jafnan fengið góð viðbrögð við því sem hann setur á netið. „Sama dag og ég setti síðustu upptökuna á netið var hún skoðuð 635 sinnum og ég fékk mjög lofsamleg ummæli um hana, meðal annars frá forráðamönnum keppninnar í Rúmen- íu,“ segir hann við Morgunblaðið. Trinsi segir þá fimm daga sem hann var í Rúmeníu fyrir skömmu hafa breytt miklu fyrir sig. „Þarna voru nokkrir heimsfrægir gítarleikarar í dómnefnd; við vor- um með þeim frá klukkan 10 á morgnana til 11 á kvöldin, það var mjög lærdómsríkt og alveg frábært að fá að kynnast þessum mönnum.“ Hann nefnir hinu frægu kappa; Andy Timmons, Brett Garsed, Greg Howe (sem lék í hljómsveit Michael Jack- son og auk þess með Justin Timberlake, Laura Pauzini og Henrique Iglesias), Michael Angelo Batio, Richard Halle- beek og William Stravato. Trinsi er frá Porto Alegre í suðurhluta Brasilíu. Hann handlék gítar í fyrsta skipti barnungur, varð snemma góður (nær væri að segja undrabarn) og var ekki nema 16 ára þegar Einar hitti hann fyrir tilviljun í skólanum. Hafði verið boðið að kenna þar jafnframt því að stunda nám sjálfur. „Mig langaði að læra meira á gítar, var bent á þennan skóla og þar kunni aðeins einn maður eitthvað í ensku. Það var Thiago. Hann féllst á að kenna mér og mér féllust eiginlega alveg hendur þegar hann fór að spila. Ég hafði aldrei séð annað eins!“ Þegar þetta var kenndi Thiago frá morgni til kvölds en hafði ekki mikið upp úr krafsinu. Þegar Einar sló fram þeirri hugmynd hvort hann ætti ekki að útvega honum vinnu á Íslandi leist okkar manni vel á. „Ég hélt að ekkert yrði úr því en löngu seinna töl- uðum við saman aftur og hann spurði ég væri tilbúinn að slá til og koma svaraði ég játandi. Einar sagði mér að hann skyldi borga fyrir mig farið til Íslands og ég myndi borga honum til baka þegar ég hefði efni á,“ segir Trinsi. Einar Már bjó á þessum tíma á Akureyri og hafði verið boðin gítarkennarastaða á Ólafsfirði Hann afþakkaði en sagðist vita um mann sem ef til vill gæti þegið starfið. Hringdi því til Brasilíu og Trinsi ákvað að koma. Hann bjó fyrst á Ólafsfirði en flutti síðar til Ak- ureyrar. Kennir hins vegar 2-3 daga í viku á Ólafsfirði en hefur í nógu öðru að snúast; lauk til dæmis nýlega prófi í útsetningum fyrir hljómsveitir frá Berklee tónlistarhá- skólanum í Bandaríkjunum. Hann hlakkar mikið til að taka næstu skref og stefnir að því að semja og útsetja tónlist fyrir kvikmyndir og fleiri í þeim dúr. Hann segist þegar hafa fengið tilboð þar að lútandi, svo og til þess að útbúa kennslumyndbönd. „Margir vilja vita hvernig ég fer að því að spila eins og ég geri. Stíllinn þykir skrýtinn enda held ég að enginn annar spili svona!“ Trinsi lýsir því hvernig hann spilar; að það minni frekar hörpuleik en hefðbundinn gítarleik. En fyrst og fremst er hann ánægður með að geta lifað af því að spila á gítar. „Ég hef lagt mikið á mig og ætla að ná langt. Það er yndislegt að geta glatt fólk með því að spila fyrir það,“ segir hann. Sjón er sögu ríkari; sláið endilega inn nafn brasilíska gítarsnillingsins á youtube.com og njótið... http://www.thiagotrinsi.com/ Galdrar í gítarnum Thiago Trinsi fer hamförum á tónleikum með hljómsveitinni Killer Queen á Græna hattinum í fyrra. Thiago Trinsi býr á Akureyri og kennir á Ólafsfirði. Hann hefur nýlokið námi við Berklee og vakið mikla athygli fyrir glæsi- leg gítartilþrif á Youtube. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Thiago Trinsi: „Margir vilja vita hvernig ég fer að því að spila eins og ég geri. Stíllinn þykir skrýtinn enda held ég að eng- inn annar spili svona!“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.