SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Side 47
30. maí 2010 47
LÁRÉTT
1. Slot stjórnmálaflokks þar sem oft er kosið?
(7)
3. Bikar stórs er vegna hættuspils. (11)
6. Plássið sinnum ess. (7)
9. Sigurjón er á mörkum þess að vera meiri í
kíkinum. (10)
11. Ennþá fangar hest fyrir spæjara. (9)
12. Grisjað land verður fyrir einhvers konar lækk-
un. (7)
13. Sníkjudýr sem birtist stundum á þingi. (9)
14. Raðið fyrir hóp í stafgöngu. (7)
15. Strá hjá KSÍ missir brodd sinn hjá dreng. (7)
18.Illa gerður hlutur fyrir vopn. (10)
20. Lærdómur listamanns er tekja. (8)
23. Kvenfatnaðurinn sem kvelur okkur? (10)
24. Hellir aleinn en samt með manni. (8)
25. Prestur sem horfir á upphaf. (4)
26. „Röskur“ æptu rugluð hjónaefni. (10)
29. Bæta bardaga með árás. (6)
30. Músin fær haminn einhvern veginn í mann-
gildisstefnunni. (11)
31. Eins í partíi. (6)
LÓÐRÉTT
1. Birta Gústafs fæst með tæki. (8)
2. Við meginlínur erum við ekki að finna brydd-
ingu. (6)
3. Rám fraus með ryki úr stofnunum. (8)
4. Án kvenna og karla er slíkur eðlilegur (9)
5. Klessa með yndi í einhvers konar kirkjuhátíð
(11)
7. Grænmeti gamalla manna? (9)
8. Illt mas ruglast vegna efnis. (7)
10. Áll fær rop og rok til baka frá hermanni. (9)
16. Sverta grjót með lampa. (9)
17. Rykið er skást með einföldu línunni. (10)
18. Truflist fyrir einn pastor. (6)
19. Beygði Artúr sig og fór í ferðalag? (9)
20. Snúningur á gresju er amerískt listform. (9)
21. Nei, gul snýr við eftir staf í glóandi ögn. (10)
22. Fer mín út af vegna tíma. (6)
27. Stutt sneypa. (5)
28. Kæra Dísa, gefðu mér grænmeti. (6)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn með nafni og heim-
ilisfangi ásamt úrlausninni í umslagi
merktu: Krossgáta Morgunblaðsins,
Hádegismóum 2, 110 Reykjavík.
Frestur til að skila úrlausn kross-
gátu 30. maí rennur út fimmtudag-
inn 3. júní. Nafn vinningshafans birt-
ist í blaðinu 6. júní. Heppinn þátttakandi hlýtur bók í
vinning. Vinningshafi krossgátunnar 23. maí sl. er
Ingunn Hjaltadóttir. Hún hlýtur í verðlaun bókina
Kvöldverðurinn eftir Herman Koch. JPV gefur út.
Krossgátuverðlaun
Mikið vatn hefur runnið til sjáv-
ar síðan hinn 14 ára gamli Gata
Kamsky baðst hælis í Bandaríkj-
unum eftir Opna New York-
mótið 1989. Þetta var mikill
uppsláttur í Bandaríkjunum á
þeim tíma og voru þó fréttir af
sovéskum andófsmönnum nán-
ast daglegt brauð á níunda ára-
tugnum. Gata þótti svolítið
þunglyndislegt ungmenni og
margir vildu rekja það til pabb-
ans Rustam, fyrrverandi hnefa-
leikakappa sem augljóslega
hafði tekið við nokkrum þung-
um höggum um dagana. Hann
vildi auðvitað drengnum vel en
vissi jafnframt að til að ná ár-
angri á skáksviðinu þyrfti að
herða hann til átaka og var haft
fyrir satt að drengurinn hlyti
það sem kallað hefur verið
spartanskt uppeldi. Feðgarnir
voru býsna umtalaðir í skák-
heiminum fram eftir tíunda ára-
tugnum og stundum bárust
fréttir af samskiptum Rustam
við aðstoðarmenn Gata sem
þegar verst lét þurftu að flýja af
vettvangi. Eftir marga frækilega
einvígissigra á tíunda áratugn-
um yfir mönnum á borð við An-
and, Kramnik og Salov tefldi
Kamsky um FIDE-heimsmeist-
aratitilinn við Karpov í Elista
1996 en tapaði, 7 ½: 10 ½. Eftir
það hætti hann keppni, lauk
laganámi og hóf svo aftur at-
vinnumennsku árið 2004, dálít-
ið ryðgaður i fyrstu en vann svo
frækilegan sigur á heimsbik-
armóti FIDE í Khanty Manyisk
árið 2007 þar sem hann lagði að
velli í stuttum einvígjum meðal
annarra Peter Svidler, Ruslan
Ponomariov, Magnús Carlsen og
loks Alexei Shirov. Hann tapaði
fyrir Topalov í einvígi um rétt-
inn til að tefla við Anand um
heimsmeistaratitilinn en hefur
engu að síður tryggt sér þátt-
tökurétt í átta manna áskor-
endakeppni FIDE sem fram fer á
næsta ári. Stíll Kamsky virðist í
fljótu bragði fremur hversdags-
legur. Hann vinnur margar
skákir í löngum og ströngum
endatöflum, er þolinmóður og
sennilega sterkari á taugum en
gengur og gerist. Á bandaríska
meistaramótinu sem lauk á dög-
unum var lengi beðið eftir upp-
gjöri hans og meistarans frá
2009, Nakamura sem er einn
hugmyndaríkasti stórmeistari
heims í dag. Á þessu móti hófu
24 skákmenn keppni og eftir sjö
umferða mót með svissneska
kerfinu komust fjórir efstu
áfram, þ. á m. Kamsky og Na-
kamura. Sá síðarnefndi féll úr
keppni við fremur óvænt tap
fyrir Shulman. Úrslitaskák
Kamsky og Shulman fór svo
fram með því sérkennilega fyr-
irkomulagi að Kamsky dugði
jafntefli með svörtu í at-skák til
að vinna titilinn. Það gekk síðan
eftir. Hér á eftir fylgir ein
skemmtilegasta skák þessa
meistaramóts. Nakamura lendir
í flóknu afbrigði franskrar varn-
ar. Fléttan í lokin er afar
óvenjuleg, 25. fxg5 – í stað 25.
Dxg5 – dugir skammt dugir því
eftir 25. … Rf5! fær hvítur ekki
við neitt ráðið. Aðalvilla Na-
kamura lá í leiknum 23. Hh2, 23.
Df6 var nánast þvingað t.d. 23.
… Dxf6 24. exf6 Rf5 25. Hh3 eða
25. g4 og staðan ætti að vera í
jafnvægi.
Bandaríska meistaramótið
2010:
Hikaru Nakamura – Jurí
Shulman
Frönsk vörn
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4.
e5 c5 5. a3 Bxc3+ 6. bxc3 Da5 7.
Bd2 Da4 8. Rf3 Rc6 9. h4 cxd4
10. cxd4 Rge7 11. h5 Rxd4 12.
Bd3 h6 13. Kf1 Rxf3 14. Dxf3 b6
15. Dg3 Ba6 16. Dxg7 Bxd3+ 17.
cxd3 Hg8 18. Dxh6 Dd4 19. He1
Dxd3+ 20. Kg1 Hc8 21. Bg5 Df5
22. f4 Hc2 23. Hh2 Dd3 24. Df6
Hxg5 25. Dxg5
25. … Dd4+ 26. Kh1 De3
– og hvítur gafst upp.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Gata Kamsky skák-
meistari Bandaríkjanna
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang