SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Page 10

SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Page 10
10 30. maí 2010 S kammirnar hafa dunið á mér undanfarna daga, raunar í heila viku, vegna pistils sem ég skrifaði hér fyrir viku undir fyrirsögninni Er ekki brandarinn að verða búinn? Mér finnst ánægjulegt að fá viðbrögð við því sem ég skrifa og ég kann alveg jafnvel að meta skammirnar eins og hólið, stundum falla mér skammirnar mun betur, því þær geta oft gefið tilefni til frekari skrifa, eða að tölvupóstum sé svarað og einhvers konar málefnaleg umræða, maður á mann, hefjist. En til þess að ég nenni að svara yfirhöfuð, þurfa skammirnar að vera málefnalegar. Ég nenni ekki að svara fúkyrðaflaumi og persónulegum svívirð- ingum, sem berast til mín símleiðis frá fólki sem er með óskráð númer og neitar að gefa upp nafn sitt. Ég nenni ekki heldur að svara tölvupóstssvívirðingum sem berast til mín frá einhverjum g-mail netföngum, með til- búnum eigendanöfnum. Nokkur dæmi úr liðinni viku: „Þú ert ekkert annað en ómerkileg íhaldstík,“ „Þú ætt- ir að hafa vit á því að halda kjafti,“ „Éttu það sem úti frýs,“ og einn lítill tölvupóstur var svohljóðandi: „Það er komið að einkavæðingar- og frjálshyggjudýrkendum eins og þér og þínum flokki að axla ábyrgð og skammast sín og láta skynsamara fólk stjórna hér landi.“ Svona sendingum nenni ég ekki að svara, enda enginn bættari með því að hefja sam- ræðu á slíku plani. En ég hef líka fengið ábendingar um að ég hafi kannski verið fullfljót á mér að afskrifa það fólk sem skipar efstu sætin á lista Jóns Gnarr, Besta flokksins. Ég hef lengi verið einlægur aðdáandi Jóns Gnarr, sem frábærs húmorista og leikara. Ég gerði allt sem ég gat til þess að missa ekki af einum einasta þætti þar sem Georg Bjarnfreðarson kom fram, hvort sem það var Næturvaktin, Dagvaktin eða Fangavaktin. Mér þóttu þættirnir frábærir, naprir, beittir og Jón Gnarr fremstur meðal jafningja. En ég sá hann einfaldlega aldrei fyrir mér sem stjórnmálamann, að nú ekki sé talað um sem leiðtoga. Hann er einhvern veginn þeirrar gerðar, að honum er eðlislægt að vera uppsigað við venjur, reglur og siði lýðræðisins. Hvernig á hann að skipta svo gjörsamlega um gír, að leiða Besta flokkinn næstu fjög- ur ár í borgarstjórn, hvort sem er við stjórnvölinn eða í stjórnar- andstöðu, án þess að glata trúverðugleika sínum sem skapandi listamaður? Ég sé ekki að það geti gerst og hef miklar áhyggjur af því að við Reykvíkingar verðum fyrir stórslysi í borgarstjórnar- kosningunum í dag. Mér hefur verið bent á að Einar Örn Benediktsson, sem skipar annað sæti lista Besta flokksins, sé afburðamaður. Það sé eiginlega sama hvað hann tekur sér fyrir hendur, allt heppnist. Guð láti gott á vita. Mér hefur líka verið bent á að Páll Hjaltason, arkitekt, sem skipar 5. sæti lista Besta flokksins búi yfir yfirgripsmikilli þekk- ingu á skipulagsmálum, sem gæti nýst okkur borgarbúum til góðs. Þetta þykja mér málefnalegar og góðar ábendingar. Og ætla þess vegna að bakka með þá ályktun mína, að kjör á fulltrúum Besta flokksins gæti orðið að fjögurra ára lélegum brandara. En ég hvika ekki frá þeirri staðföstu skoðun minni, að Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur staðið sig afburða vel sem borgarstjóri og hún hefur leitt borgarfulltrúa ólíkra flokka til árangursríks samstarfs. Á slíku þurfum við áfram að halda, enda sýndi skoð- anakönnun Morgunblaðsins á fimmtudag að flestir Reykvíkingar vilja Hönnu Birnu áfram í stól borgarstjórans. Raunar þótti mér einna merkilegast við þá könnun það afhroð sem Framsóknarflokkurinn og VG gjalda. Sennilega hafa fram- sóknarmennirnir sem efndu til samsæris gegn Óskari Bergssyni, til þess að koma höggi á Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsóknarflokksins, áttað sig á því nú, hversu vonlaust vind- högg, en um leið sjálfseyðingarhögg, það samsæri var. Líkast til er svipað uppi á teningnum hjá VG. Liðsmenn þeirrar hreyfingar eru sennilega búnir að átta sig á því, að það kann ekki góðri lukku að stýra, að láta kvenfasistann Sóleyju Tómasdóttur, sem lýsti því yf- ir opinberlega að hún „var mjög lengi að jafna sig á því að eiga strák“, leiða listann í borginni. Ætli margir strákar sem hafa kosn- ingarétt og menn, eða við mæður sem elskum og dáum syni okkar, hafi í hyggju að leiða Sóleyju til frekari áhrifa í borginni? Af gagnrýni og skömmum Agnes segir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Hanna Birna Sóley Tómasdóttir ’ það kann ekki góðri lukku að stýra, að láta kvenfasistann Sóleyju Tómasdóttur leiða listann í borginni. 8:30 Vaknaði klukkutíma á eftir áætlun. Við nánari eft- irgrennslan kom í ljós að raf- magnið hafði farið af húsinu um nóttina með þeim afleiðingum að vekjaraklukkan núllstilltist. Þetta er nú ekki besta leiðin til að byrja vikuna. 8:45 Express-morgunverður í formi espresso-bolla, ristaða brauðið verður að bíða. 9:05 Fundur hjá fram- kvæmdastjórn fyrirtækisins. Þetta er fyrsti fundur í nokkuð langan tíma þar sem flestir okk- ar hafa verið meira og minna erlendis. Við höfum nýlokið þátttöku í tveimur stórum ráð- stefnum. Sú fyrri var á vegum Microsoft í Atlanta. Sú seinni var okkar eigin partner- ráðstefna þar sem við stefndum 140 samstarfsaðilum víðs vegar að úr heiminum til fundar í Prag. Næsta verkefni er að vinna úr öllum þeim upplýs- ingum og góðu ráðleggingum sem við fengum á þessum við- burðum. 11:50 Að sjálfsögðu gleymdi ég að melda mig í mat, var reyndar ekki sá eini. Sem betur fer er persneski veitingastað- urinn Eldhrímnir í næsta húsi sem einfaldar málið, enda afar heilsusamlegur. 12:30 Fundur með Sveini Áka, formanni Íþróttasambands fatlaðra, sem reyndar er líka sölustjóri fyrirtækisins. Við þurfum að finna leið til að loka nokkuð stórum samningi niðri í Dúbaí. Formaðurinn er búinn að kokka upp plan sem lítur al- veg hreint ágætlega út. 13:30 Við erum nýflutt í nýtt húsnæði í Borgartúninu. Því fylgja nokkrir byrjunarörð- ugleikar eins og t.d. þegar raf- magnið slær út í server- herberginu. Þá virkar tölvu- pósturinn ekki lengur. Það er ekki gott þegar fólk fær ekki póstinn sinn. 15:20 Ameríkudeildin er mætt á svæðið. Rúnar, sölustjóri Ameríkumarkaðar, er í heim- sókn. Menn hugsa stórt þarna fyrir „Westan“. Núna er planið er leggja undir sig Las Vegas, nánast eins og hún leggur sig að mér skilst. Menn ætla samt að reyna að borða þetta einn bita í einu – eða frekar eitt hótel í einu. 17:00 Stutt símtal við ætt- móðurina. Það er útskrift á laugardaginn og við þurfum að finna einhverja gjöf. Svona stúdínugjafir eru reyndar ekki mín sterkasta hlið. Ættmóðirin fellst á að taka verkefnið að sér. 17:45 Mættur á æfingasvæði Golfklúbbsins Keilis í Hafn- arfirði. Golfkennari ársins 2009, Úlfar Jónsson, ætlar að halda áfram við að reyna að kenna okkur að spila golf. Úlfar er góður kennari en við erum frekar slakir nemendur. Hann er reyndar fljótur að laga húkk- ið þannig að restin af tímanum fer í stutta spilið, sem er að sögn lykillinn að velgengni bæði á golfvellinum og í einkalífinu. 20:05 Matur með þremur kollegum á Þremur Frökkum. Ég hef alltaf verið hrifinn af þessum stað – enda „no- nonsense“ að öllu leyti. Einn úr hópnum er danskur bæj- arfulltrúi frá Fredensborg, vara-varaborgarstjóri að eigin sögn. Upp hefjast áhugaverðar umræður um sveitarstjórnarmál og kosningarnar um næstu helgi. 22:15 Örstutt skoðunarferð um miðborgina sem endar á Vínbarnum. Það er fátt fegurra en vorkvöld í Reykjavík. 23:40 Mættur heim í must- eri menningar og neyslu. Auð- vitað gleymdi ég að setja þvottavélina í gang í morgun. Það stefnir sem sagt allt í skyrtulausan miðvikudag á morgun. Dagur í lífi Daða Kárasonar, framkvæmdastjóra þróunarsviðs LS Retail Daði Kárason nýtur síðustu hreinu skyrtunnar í bili. Morgunblaðið/Ómar Slakur golfnemandi

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.