SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Side 14

SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Side 14
14 30. maí 2010 samt aldrei á fiðlunámið sem kvöð og bý ennþá að þeim grunni sem ég hlaut þar.“ Þegar Högni var tólf ára flutti fjölskyldan til Brussel, þar sem fósturfaðir hans starf- aði í íslenska sendiráðinu. Bræðurnir gengu í breskan skóla og Högni kunni ágætlega við sig. Og hélt áfram að læra á fiðlu. Sungið í Hamrahlíðinni Við komuna heim til Íslands þremur árum síðar ritaðist Högni inn í Menntaskólann við Hamrahlíð. „Það einhvern veginn blasti við. Eldri systkini mín tvö höfðu verið í MH og Árni afi minn kenndi þar um tíma.“ Um þetta leyti lagði hann fiðluna á hill- una. „Ég sá ekki lengur tilganginn með því námi. Ætlaði hvort eð er aldrei að verða fiðluleikari.“ MH er tónelskur skóli og tvíburarnir skráðu sig í skólakórinn fræga sem Þor- gerður Ingólfsdóttir hefur stýrt styrkri hendi um langt árabil. „Við vorum svolítið utanveltu þegar við byrjuðum í skólanum, nýfluttir heim frá útlöndum, en það breyttist fljótlega eftir að við byrjuðum í kórnum. Það vita allir sem reynt hafa að Hamrahlíðarkórarnir eru frábær fé- lagsskapur. Það býr einhver samandlegur kraftur í þeim,“ segir Högni og lýkur lofs- orði á Þorgerði stjórnanda. „Hún er ekki bara frábær tónlistarmaður, heldur hefur hún líka gott lag á því að virkja krafta ungs fólks. Líf Þorgerðar hefur snúist um að kveikja neistann hjá ungu fólki og kenna því að umgangast tónlist af umhyggju og virðingu. Hún er engri lík.“ Högni var samtals sjö ár í Hamrahlíð- arkórunum og segir það hafa verið svaka- lega skemmtilegan tíma. Hann hafi fengið mikla félagslega næringu. „Það voru for- réttindi að kynnast músíkinni sem kór- arnir voru að flytja, öllu fólkinu og síðast en ekki síst að fara með kórunum til út- landa. Ég held ég hafi farið sex sinnum, meðal annars til Eistlands, Kanada og Kína. Þetta eru skemmtilegustu ferðir sem maður fer í.“ Suðupottur fyrir krakka MH er ekki bara söngur, tónlistin blómstr- ar þar í öllum mögulegum myndum. „MH er suðupottur fyrir krakka sem hafa áhuga á tónlist og auðvelt að mynda tengsl sem duga jafnvel áratugum saman, eins og dæmin sanna,“ segir Högni sem nýtti inn- blásturinn til að kaupa sér gítar. „Ég veit ekki alveg hvers vegna gítarinn varð fyrir valinu, mig langaði bara að prófa. Ég æfði mig stíft í nokkra mánuði áður en ég skráði mig í Tónlistarskóla FÍH.“ Högni fann fljótt að gítarinn átti við hann og fór að prófa sig áfram með ýms- um hljómsveitum innan skólans. Setti meðal annars á laggirnar band ásamt Snorra Helgasyni, sem síðar stofnaði Sprengjuhöllina. Henni entist ekki aldur en kært er æ síðan með þeim Högna og Snorra. Fyrsti vísir að Hjaltalín varð einnig til í MH árið 2004 en upprunalega skipuðu sveitina, auk Högna, Axel Haraldsson trommuleikari, Guðmundur Óskar Guð- mundsson bassaleikari, Hjörtur Ingvi Jó- hannsson hljómborðsleikari og Þorsteinn Kári Jónsson söngvari. Fyrsta lag Hjaltalín var jólalag, merki- legt nokk. „Atli Bollason var að gera jóla- plötu sem hann kallaði Stúf fyrir jólin 2004 og vildi hafa okkur með. Við sömd- um því lagið Mamma kveikir kertaljós sem kom út á plötunni. Sigurður Guð- mundsson úr Hjálmum tók lagið upp og gerði það flott og „smooth“. Okkur þykir ákaflega vænt um þetta lag og höfum sungið það við ýmis tilefni.“ Bílskúrsballöðutímabilið Við hjá Hjaltalín tók „bílskúrsballöðu- tímabilið“, eins og Högni kallar það, fram til ársins 2006. „Á þessu tímabili tókum við upp allskonar lög sem við spilum aldrei í dag.“ Þreifingar stóðu sumsé yfir. „Vorið 2005 hætti ég í MH,“ segir Högni óvænt. Hættir? gríp ég fram í fyrir honum. „Nei, ég meina útskrifaðist,“ svarar Högni hlæjandi, „meira að segja af tveimur brautum, náttúrufræði og fé- lagsfræði.“ Það hljómar betur! Leiðin lá beint í Myndlistarskóla Reykjavíkur. „Ég hef alltaf haft brenn- andi áhuga á fagurfræði listarinnar og þegar ég var yngri langað mig að verða myndlistarmaður. Fór til dæmis mikið á söfn og sýningar meðan ég bjó í Brussel. Á þessum tímapunkti flögraði ekki að mér að helga mig tónlistinni.“ Högni var spenntur í byrjun en áhug- inn dvínaði er leið á veturinn. „Við skul- um ekkert vera að skafa af því, ég var bara latur,“ segir hann. Það breyttist skyndilega þegar Högni fékk þá hugmynd að leysa verkefni í skólanum með því að gera örplötu með klámvísum. „Ég fékk þessa hugmynd á miðvikudegi og var tilbúinn með verk- efnið á fimmtudegi. Kennarinn minn, Finnur Arnar myndlistarmaður, var ekki vanur þessum afköstum frá mér og kall- aði mig á sinn fund.“ Efnislega sagði Finnur eitthvað á þessa leið: „Högni, hvers vegna ferð þú ekki í tónlist? Svo virðist sem hún liggi mun betur fyrir þér en myndlistin.“ Högni velti þessu fyrir sér um stund en ákvað svo að taka Finn Arnar á orðinu. Skráði sig í tónsmíðanám í Listaháskól- anum um haustið. Fjölin var fundin. Í Kastljósinu Áfram starfaði Hjaltalín í fylgsni sínu og vorið 2006 fengu þeir félagar afdrifaríkt símtal. Það var frá Kastljósi Sjónvarpsins sem vildi fá Hjaltalín til að koma fram í þættinum. Þegar hér er komið sögu var Þorsteinn Kári söngvari genginn úr skaftinu en hann leggur nú stund á nám í hags- fræðiheimspeki í Kaupmannahöfn. „Það var í mesta bróðerni enda erum við mikl- ir mátar. Þorsteinn Kári hoppar stundum á svið með okkur á tyllidögum,“ segir Högni sem tók sjálfur við hljóðnemanum. „Það bara æxlaðist þannig,“ segir hann brosandi. Síðar bættist söngkonan Sigríður Thorlacius í hópinn. Í stað þess að troða upp sem kvartett í Kastljósi söfnuðu félagarnir liði, bættu við blásturshljóðfærum og strengjum. „Við höfðum verið að velta þessu fyrir okkur og ákváðum að nota þetta tækifæri til að láta slag standa,“ útskýrir Högni sem samdi nýtt lag fyrir tilefnið The Trees Don’t Like the Smoke við texta eft- ir Óskar Arnórsson arkitekt í New York sem hann fann á netinu. Upptroðsla Hjaltalín í Kastljósi mæltist vel fyrir og síminn tók við sér. Fleiri gigg voru bókuð, meðal annars á Airwaves- hátíðinni að frumkvæði húsbænda. „Það gladdi okkur vegna þess að við höfðum sótt um að spila á hátíðinni árið áður en verið synjað,“ segir Högni kíminn. Plata í uppsiglingu Í kjölfarið lagðist hann undir feld og samdi fleiri lög með Airwaves í huga. Einir tónleikar ráku aðra, meðal annars í Tjarnarbíói með Benna Hemm Hemm. Nú áttu Rebekka Bryndís Björnsdóttir, fa- gott, Grímur Helgason, klarínetta, Viktor Orri Árnason, fiðla og Þorbjörg Daphne Hall, selló orðið fast sæti. Og enn snerust hjólin. „Benna Hemm Hemm hlýtur að hafa litist sæmilega á okkur því hann fór að tala um plötu,“ segir Högni. „Okkur fannst það alls ekki galin hugmynd enda er Benni vanur karl sem veit hvað hann syngur.“ Í upphafi ræddu menn um litla plötu, í mesta lagi fimm lög, og settist Gunnar Tynes múmari við takkaborðið. „Við vorum mjög ánægð að fá þá til liðs við okkur,“ segir Högni. Sumarið 2007 óx vegur Hjaltalín enn þegar lagið Goodbye July/Margt að ugga fór í spilun í útvarpi. Hægt og bítandi vatt verkefnið upp á sig, lögunum fjölgaði og ljóst var að Hjal- talín var með plötu í fullri lengd í hönd- unum. „Ég var stöðugt að eiga við út- setningarnar, bæta inn kórum og öllu mögulegu. Gunni hefur örugglega verið að verða brjálaður á mér,“ segir Högni hlæjandi. „En það sást ekki á honum enda er Gunni alveg dásamlegur maður.“ Á bekk með Páli og Mugison Frumburður Hjaltalín Sleepdrunk Sea- son kom út í desember 2007 og féll í frjó- an jarðveg hjá gagnrýnendum. „Platan fékk fimm stjörnur í Fréttablaðinu og fjórar hjá ykkur,“ rifjar Högni upp. Salan Hjaltalín: Viktor Orri Árnason, Högni Egilsson, Hjörtur Ingvi Jóhannsson, Rebekka Bryndís Björnsdóttir, Guðmundur Óskar Guðmundsson, Sigríður Thorlacius og Axel Haraldsson. Morgunblaðið/Ómar Högni og Sigríður Thorlacius í essinu sínu á tónleikum. Morgunblaðið/Eggert

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.