SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Blaðsíða 28

SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Blaðsíða 28
28 30. maí 2010 R axi, mig langar að lenda aftur.“ Nei, Einar, ertu vitlaus? Nú fer að koma fal- legasta birtan á gosið, sagði ég. Við Einar Dagbjartsson, flugstjóri hjá Icelandair, vorum á flugi yfir Fimmvörðuhálsi að taka myndir af eldgos- inu. Ég sá að Einar iðaði allur í skinninu þar sem hann sat fyrir framan mig í Super Cub-flugvél flugklúbbsins Þyts. Hann langaði greinilega að lenda aftur í brekkunni á jöklinum við hliðina á hrauninu sem hafði runnið þar síðustu daga. Við flugklúbbsfélagarnir, Arnar Jónsson, Stefán Davíð Helgason og Einar Dagbjartsson, erum allir þaulvanir flugmenn og höfðum skipst á að fljúga í kringum gosið og myndað. Við vorum að skrá Íslandssöguna í mynd- um. Það er frábært að hafa svona félagskap þar sem all- ir eru boðnir og búnir að koma í flug við þessar að- stæður og að fljúga áhyggjulaus með öruggum flugmönnum sem vita upp á hár hvað þeir eru að gera. Super Cub-flugvélin er tveggja sæta á risastórum dekkjum þannig að hægt er að lenda henni nánast hvar sem er. Það var einmitt það sem Einar hafði gert nokkru áður, við lentum á jöklinum upp smá brekku þannig að flugvélin stöðvaðist um leið og hún snerti. Við biðum smá stund eftir því að það færi að rökkva til að spara bensín. Við vorum búnir að skoða lending- arstaðinn áður. Þá höfðum við keyrt á jeppa upp á jök- ulinn til að hafa allt á hreinu. Einar iðaði allur í skinninu, vildi lenda aftur á jökl- inum en ég barðist á móti því, vildi ekki missa af neinu. „Raxi, ég er að míga á mig,“ sagði Einar allt í einu og iðaði enn meira í sætinu. Ég sá hvað hann langaði að lenda aftur þar sem hann horfði löngunaraugum á lendingarstaðinn okkar. Ertu ekki með flösku sem þú getur migið í? spurði ég hann. „Nei, hann er of stór. Ég verð að lenda aftur,“ svaraði Einar. Ég reyndi að tefja eins lengi og ég gat, við erum báðir stríðnir en ég varð að láta undan eftir smá þref. Allt í lagi, lentu þá til að míga. Ég hafði varla sleppt orðinu þegar við vorum komnir í krappa beygju og dýfu niður að jöklinum. Með glampann í augunum lenti Einar með stæl eins og hann er vanur að gera. Það voru nokkrir hneykslaðir ferðalangar á jeppum sem gláptu úr sér augun þegar lítil flugvél lenti upp brekkuna og út steig maður sem kveikti sér í vindli, meig út í loftið og horfði á gosið um leið. Það gerist ekki betra í bíómynd. Ég held að sumir þeirra sem voru á jeppum á jökl- inum hafi verið í meiri hættu en við á flugvélinni yfir honum. Við flugum í nokkra hringi og tókum myndir af gígn- um. Degi var tekið að halla og ljósið eins fallegt og það getur orðið. „Ég er að míga á mig aftur,“ kallaði Einar. Ertu með blöðrubólgu? kallaði ég til hans. „Já, ég held það,“ svaraði hann hlæjandi. Það er ekki hægt að mótmæla Einari, það er alltaf líf og fjör í kring- um hann. Við lentum því þrisvar í viðbót, Einar var alltaf að míga á sig, eða svo sagði hann. Ég vissi að hann langaði bara að lenda nokkrum sinnum á jökl- inum, ég sá það á glottinu. Honum fannst það ekki leiðinlegt. „Ertu ekki kominn með góðar myndir? Þú hefðir aldrei náð þeim ef ég hefði ekki lent til að míga,“ sagði Einar við mig og glotti út í annað. Jú, svei mér þá, ég held það bara, sagði ég og glotti á móti. Heyrðu, Einar, á meðan ég man. Ég hringdi í lækni, vin minn, og pantaði tíma út af blöðrunni í þér ... Á flugi yfir gígnum í ljósaskiptunum. Ofarlega til hægri má greina mann á gangi. Náttúran kallar Sagan bak við myndina Ragnar Axelsson rax@mbl.is ’ Með glampann í augunum lenti Einar með stæl eins og hann er vanur að gera. Það voru nokkrir hneykslaðir ferðalangar á jeppum sem gláptu úr sér augun þegar lítil flugvél lenti upp brekkuna og út steig maður sem kveikti sér í vindli, meig út í loftið og horfði á gosið um leið. Það gerist ekki betra í bíómynd.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.