SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Qupperneq 36

SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Qupperneq 36
36 30. maí 2010 Þ orbjörg Marinósdóttir er fædd 1984 í Reykja- vík en ólst upp í Kópavogi þar sem hún býr enn. Þorbjörg, sem gjarnan er þekkt sem Tobba Marinós, er dóttir Marinós Björns- sonar, bílasala í Heklu, og Guðbjargar Jónsdóttur. Hún á tvær systur, þær Rebekku Rut, 16 ára, og Reg- ínu Sif, 18 ára, auk bróðurins Jóns Ragnars sem er 29 ára. Tobba gekk í Kársnesskóla og Smáraskóla í Kópa- vogi en sumarið eftir tíunda bekk fór hún til Brasilíu sem skiptinemi og var í ár. Þegar heim var komið var hún við nám í Verslunarskóla Íslands í tvö ár þar sem hún lauk verslunarpróf en skipti svo yfir í Fjölbrauta- skóla Garðabæjar þar sem fjölmiðlafræði átti hug hennar allan. Þaðan útskrifaðist hún með stúdentspróf árið 2005 af félagsfræðibraut. Eftir framhaldsskólann tók Tobba sér rúmlega árs frí frá námi áður en hún hélt til Bretlands í BA-nám í fjöl- miðlafræði við Háskólann í Derby. Þaðan lauk hún prófi í janúar 2009. Síðan þá hefur hún starfað á sviði fjölmiðla. Hún er blaðamaður á ritstjórn Séð og heyrt og í janúar 2010 tók hún við sem annar tveggja þáttastjórnenda Djúpu laug- arinnar á Skjá einum. Nú í maí kom út fyrsta skáldsaga Tobbu, „Makalaus“ sem Forlagið gefur út. Bókin er byggð á hugmynd sem hún fékk við bloggskrif en hún hefur haldið úti einu vinsælasta blogginu hjá dv.is í rúmlega ár og byggjast skrif hennar að miklu leyti á broslegum samskiptum kynjanna. Tobba er maka- og barnlaus en að eigin sögn er hún þó alls ekki húmorslaus. Barna- og makalaus en ekki húmorslaus Myndaalbúmið Þorbjörg Marinósdóttir er vinsæll bloggari og nýbakaður rithöfundur. Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Uppáhaldsbarnamynd Tobbu af sjálfri sér. Þótti ekki nógu sæt nokkurra mánaða gömul að eigin sögn og myndin því fegruð með blómum. Í Þýskalandi með Jóni bróður og mömmu. Gallasamfestingurinn var lengi uppáhalds- flíkin sem mikil eftirsjá var að. Móðir Tobbu lærði hár- greiðslu svo hún var oft best greidda barnið á jólaböllum. Regína Líf, yngri systir Tobbu, í heimsókn á námsárunum í Derby. Við útskrift frá University of Derby árið 2009 með vinkonu hennar, Elenu. Í sínu fínasta pússi með yngstu systur sinni Rebekku Rut. Með nýjan varalit og perm- anent fyrir ferminguna en út- koman var betri í minningunni. Fjölskyldan við altaristöfluna í Flateyrarkirkju. Systirin Rebekka Rut með hundinn Ellu í fanginu og foreldrar Tobbu, Marinó og Guðbjörg. Í Stóra eplinu, New York, þar sem hún fór á eyðslufylleríi með Rebekku á dögunum. Við giftingu foreldranna, Marinós Björnssonar og Guðbjargar Jónsdóttur þegar Tobba var sex ára. Eldri bróðirinn Jón Ragnar Marinósson glansandi fínn í kjólfötunum.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.