SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Síða 42
42 30. maí 2010
F
áir leikarar hafa byrjað með
jafnmiklum krafti og fyr-
irheitum um glæstan feril og
William Hurt. Þarna var kominn
leikari sem skar sig úr, hugsanlega full-
mikið þegar til lengdar lét. Undirrituðum
fannst hann sannkölluð opinberun eftir
minnisstæða frammistöðu hans í fyrstu
myndunum, sem voru ekki af lakari end-
anum: Þetta voru snilldarverkið Altered
States (’80), eftir Ken Russell; The Janitor
(’81) og hin magnaða Body Heat (’81),
eftir Lawrence Kasdan.
Nú, þrem áratugum síðar, stendur
gamli risinn á sextugu og er mikið til
horfinn úr hefðbundnum Hollywood-
kassastykkjum, en bregður af og til fyrir í
óháðum og oft forvitnilegum smámynd-
um. Síðan stakk hann upp kollinum í
Hróa hetti, mjög óvenjulegri mynd á hans
ferli, og stóð sig eins og hetja og áhuginn
á þessu gamla átrúnaðargoði var end-
urvakinn.
Í dag býr Hurt fjarri heimsins glaumi, í
strjálbýlum austurhluta Oregon-fylkis.
Reynir að verða sem minnst á vegi Holly-
wood-framleiðenda en brá þó fyrir á
Golden Globe-afhendingarhátíðinni í
vetur, þar sem hann var tilnefndur fyrir
sjónvarpsþættina Damages, þar sem
Glenn Close er mótleikari hans, líkt og í
The Big Chill (’72). Hún var ein af stór-
myndunum sem prýddu feril hans lengi
vel, þar sem Hurt stóð sig undantekning-
arlaust mjög vel. Í kjölfarið kom Gorky
Park (’83), mikið eftirlæti, gert af Michael
Apted með landa hans Lee Marvin, sem
mótleikara í óvenjulegri spennumynd
sem hefur ekki elst um ár.
Áfram héldu bestu hlutverkin að rúlla
inn á borðið hans. Hurt er einkar minn-
isstæður sem klæðskiptingurinn í kvik-
myndagerð leikritsins Kiss of the Spider
Woman (’85), eftir Hector Babenco. Þar
lék hann á móti Raul Julia, frábærum
sviðs- og kvikmyndaleikara sem lést
langt fyrir aldur fram. Í næstu mynd,
Children of the Lesser God, sem einnig
var byggð á heimsfrægu leikriti, lék hann
með tilþrifum kennara í málleysingja-
skóla. Hann verður ástfanginn af einum
nemenda sínum, sem er leikinn af Marlee
Matlin, sem uppskar Óskarsverðlaunin
fyrir túlkun sína. Það er ekkert lát á vel-
gengninni því næsta viðfangsefni hans
var aðalhlutverkið í hinni rómuðu
Broadcast News, eftir James L. Brooks,
eitt stærsta leikstjóranafnið á þessum
tíma (’87). Þaðan lá leiðin til Kasdans,
sem var að gera The Accidental Tourist,
sem skartar eftirtektarverðum Hurt.
Þegar hér er komið sögu er engu líkara
en Hurt bregðist bogalistin í hlutverka-
valinu. Frá 1990 til 2001 leikur hann ein-
göngu í auðgleymdu drasli og und-
arlegum verkum sem enginn nennti að
sjá. Undantekning vel með farið gesta-
hlutverk í Smoke (’95). En árið 2001 er
hann kominn í hendurnar á sjálfum Ste-
ven Spielberg, sem lét hann fá lítið en
sómasamlegt hlutverk í A.I., mikið til
mislukkaðri mynd. Þá lét hann ginna sig
út í 2008 árgerðina af Hulk, eftir Louis
Leterier, og er jafnvel fáséðari en hörm-
ungin hans Angs Lee.
Síðasta áratuginn hefur Hurt mest-
megnis leikið í furðuverkum og óháðum
myndum sem hafa oft á tíðum litla sem
enga dreifingu hlotið. Undantekningar
eru The Village (’04), eftir M. Night Shya-
malan (og kolféll í aðsókn); Hrikalega
flott innkoma í smáhlutverki í History of
Violence, eftir David Cronenberg og þá
var hann í leikarasúpunni sem prýddi
The Good Shepherd (’06), tormelta og fá-
séða mynd eftir Robert De Niro.
Þá var röðin komin að Hróa, og von-
andi vísar hann Hurt veginn út úr eyði-
mörkinni, þar sem leikarinn hefur fengið
fína dóma þó myndin þyki í meðallagi.
William Hurt var einkar minnisstæður í Kiss of the Spider Woman.
Hurt er ekki horfinn
Miklar vonir voru
bundnar við William
Hurt sem er orðinn
heldur fáséður, en
birtist óvænt í Hróa
hetti þar sem hann
sýndi gamla takta.
Sæbjörn Valdimarsson
saebjorn@heimsnet.is
Þó að leikstjórinn, leikarinn, handrits-
höfundurinn, framleiðandinn og síðast
en ekki síst goðsögnin Woody Allen,
verði 75 ára í desember, er engan bilbug á
honum að finna. Þessi afkastamikli lista-
maður á að baki 46 myndir sem hann
hefur lokið við að skapa frá A til Ö, á að-
eins 45 árum. Engin furða þó að hann
hafi marglýst því yfir að hann hati ellina.
Síðast fyrir nokkrum vikum á Cannes,
þar sem hann frumsýndi nýjustu mynd-
ina sína, You Will Meet a Dark Stranger,
með toppleikurum að venju, þeim Naomi
Watts, Josh Brolin, Antonio Banderas og
Anthony Hopkins fremstum í flokki. Al-
len hefur tekið sér fáa frídaga á æfinni og
er þegar farinn í gang með glænýtt verk,
Midnight in Paris, sem á að frumsýna að
ári. Þar er mannskapurinn ekki heldur af
verri endanum, nú síðast bættist Ósk-
arsverðlaunahafinn Adrien Brody (The
Pianist), í hóp þeirra Marion Cotillard,
Kathy Bates, Rachel McAdams, Owen
Wilson, Michael Sheen og sjálfrar for-
setafrúarinnar, Cörlu Bruni-Sarkozy.
Það er vel við hæfi að Allen eigi kvik-
myndaklassík vikunnar:
HANNA OG SYSTUR HENNAR – HANN-
AH AND HER SISTERS (́86)
Aðalpersónurnar í bestu mynd Allens eru
þrjár systur í New York (að sjálfsögðu) og
fjallar myndin á fyndin og hlýjan hátt um
fjölskyldur þeirra á tveggja ára tímabili.
Sviðsljósið beinist þó einkum að einum
eiginmanninum (Michael Caine), sem
giftur er Hönnu (Mia Farrow), og ást-
arsambandi hans við yngstu systurina
(Barbara Hershey). Margar hliðarsögur
fléttast inní framvinduna, sú fyndnasta
snýst um ímyndunarveikan sjónvarps-
myndaframleiðanda, sem Allen leikur
einsog honum er einum lagið. Hér sjá
menn svart á hvítu hvílíkur snillingur
hann er í leikaravali. Michael Caine, þeim
ágætisleikara, hafði því miður sárasjald-
an verið treyst í burðarmikil hlutverk.
(Það átti heldur betur eftir að breytast,
myndin varð upphaf að nýjum og enn
glæstari ferli sem stendur enn.) Allen
vissi betur og Caine sýnir og sannar það
hér, líkt og í Educating Rita, hvað í hon-
um býr. Aðrir leikarar eru afbragðsgóðir,
með Diane West í fararbroddi og hún
hlaut Óskarinn að launum. Allen leik-
stýrir af kunnu öryggi og skopskyni en
tekst jafnvel enn betur upp sem leikari og
höfundur, handritið geislar af hnyttnum
setningum, speki og skynsemi.
Kvikmyndaklassík Hanna og systur hennar *****
Geislar af speki
Woody Allen í kunnuglegri stellingu í Hönnu
og systrum hennar.
Við Íslendingar getum
ekki stært okkur af
mörgum Holly-
woodstjörnum í gegnum
tíðina. Þær Anna Bjorn
og María Ellingsen áttu
sín augnablik í kvik-
myndaborginni en um
þessar mundir eigum við engan fulltrúa
sem eitthvað kveður að, aðra en hina há-
norrænu og glæsilegu Anitu Briem. Og
hún á einmitt afmæli um helgina (29.5.),
er í blóma lífsins, verður 28 ára gömul.
Við sendum henni okkar bestu kveðjur og
óskir um velgengni í lífinu.
Anita er frægust fyrir hlutverk sitt í þrí-
víddarmyndinni Leyndardómum Snæfells-
jökuls, eða Journey to the Center of the
Earth, útgáfunni sem var sýnd hérlendis
síðla árs 2008. Hún átti lítið skylt við
bókina, en naut það mikilla vinsælda hér
sem annars staðar, að fyrir nokkrum dög-
um birtist frétt í The Hollywood Reporter,
um að framhaldsmynd væri í bígerð og
við skulum rétt vona að hlutverkið sem
Anita lék, Hannah Ásgeirsson, haldist
inni.
Anita, sem er dóttir Gunnlaugs Briem
trommuleikara, kemur fram í a.m.k.
tveimur Hollywood-myndum í ár; Everyt-
hing Will Happen Before You Die, og Dyl-
an Dog: Dead of Night, þar sem hún leik-
ur m.a. á móti heillakarlinum Peter
Stormare.
Hún á afmæli í dag!
Fréttir
Sunnudagur 30. maí kl. 21.30 (RÚV)
Hér er um að ræða sjónvarpsmynd frá
2008, sem byggð er á víðfrægu og marg-
kvikmynduðu leikhúsverki eftir Friedrich
Dürrenmatt. Það fjallar um heimsókn vell-
ríkrar konu til gamla þorpsins síns. Ástæð-
an fyrir förinni er að ná fram hefndum á
manninum sem sveik hana í tryggðum fjór-
um áratugum áður. Leikstjóri er Nikolaus
Leytner og meðal leikenda eru Lisa Kreu-
zer, Michael Mendel, Muriel Baumeister,
Christiane Hörbiger og Dietrich Holl-
inderbäumer. Leikritið hefur verið sett upp
um allan heim, m.a. á fjölum borgarinnar, í
Iðnó, undir nafninu Sú gamla kemur í
heimsókn, ef ég man rétt og aftur í Borg-
arleikhúsinu í fyrra undir heitinu Millj-
arðamærin. Þá er minnisstæð þýsk-fransk-
bandarísk kvikmyndagerð frá árinu 1964,
sem ber nafnið The Visit, og var sýnd í
Nýja bíó. Þar fóru stórstjörnurnar Ingrid
Bergman og Anthony Quinn með aðal-
hlutverkin undir handleiðslu Bernhards
Wicki og aukahlutverk voru einkar vel
mönnuð. Ingrid lék þá rosknu sem setur
gamla þorpið sitt á annan endann þegar
fréttist af ferðum hennar. Allir vona að hún
verði gjafmild á auð sinn, þó svo að hún
hafi verið hrakin þaðan kornung eftir að
hún eignaðist barn með ástmanni sínum
(Quinn).
Myndir vikunnar í sjónvarpi
Sú gamla kemur í
heimsókn – Der Be-
such der alten Dame
Kvikmyndir