SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Blaðsíða 44

SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Blaðsíða 44
44 30. maí 2010 Margir tónlistaraðdáendur hafa eflaust beð- ið lengi eftir að heyra ný lög frá hljómsveit- inni Arcade Fire, en liðin eru þrjú ár frá því að plata þeirra Neon Bible kom út. Í vikunni endaði biðin þegar sveitin birti brot úr tveim lögum af nýrri plötu. Stuttu seinna voru lögin svo komin í heild sinni inn á heimasíðu sveitarinnar sem tilkynnt hefur að platan The Suburbs komi út í ágúst og er hægt að panta hana í forsölu á netinu. Fyrir þá sem vilja heyra fleiri fréttir af sveit- inni má hlusta á viðtal við Will og William Butler hjá NPR útvarpstöðinni. Arcade Fire tjáir sig um nýja plötu Platan The Suburbs með Arcade Fire er væntanleg í byrjun ágúst. Söngvarinn Zack de la Rocha er ekki hrifnn af nýrri löggjöf í Arizona-ríki. Tónlistarfólk og hljómsveitir á borð við Ka- nye West, Sonic Youth, Conor Oberst, Tena- cious D, Cypress Hill, Rage Against the Machine og fleiri hafa hótað að sniðganga Arizona-ríki í Bandaríkjunum eftir að umdeild innflytjendalög voru samþykkt þar nýverið. Lögin gefa lögregluyfirvöld í ríkinu auknar heimildir til að handtaka og færa til yf- irheyrslu fólk sem grunað er um að vera ólöglegir innflytjendur. Söngvari Rage Against the Machine, Zack de la Rocha, fer fyrir hópnum sem kallar sig Tónlist í verkfalli, og hafa fjölmargir sveitir neitað að koma fram á tónleikum í ríkinu svo lengi sem lögin eru í gildi. Hóta að sniðganga Arizona-ríki Árið 2006 gaf LCD Soundsys- tem út plötuna 45:33 í samstarfi við Nike. Hugmyndin á bak við plötuna var að semja tónlist sem var ætluð hlaupurum. Platan átti þannig að vera full- komna tónlistin til að skokka við. Hún byrjar á rólegu lagi sem smám saman verður hraðara og launar langhlauparanum góða spretti með rólegri köflum inni á milli. LCD Soundsystem vann plötuna í samstarfi við íþróttasálfræðinga hjá Nike sem lögðu grunn að uppbyggingu plötunnar, þ.e. í hraða og sveiflu. LCD Soundsystem samdi svo hina eiginlegu tónlist ofan á þessa beinagrind sem lá fyrir. Platan dregur nafn sitt af lengd sinni, eða svo segir LCD Soundsys- tem. Platan er hinsvegar í raun ekki fjörutíu og fimm mínútur og þrjátíu og þrjár sekúndur heldur fjörutíu og fimm mín- útur og fimmtíu og átta sek- úndur. Platan ætti þannig að heita 45:58. Margir hafa velt því fyrir sér hvaðan nafnið komi þá í raun en helsta getgátan er sú að nafn plötunnar sé einhverskonar skírskotun til píanóverks Johns Cage sem ber nafnið „4:33“. En það verk er í alvöru fjórar mínútur og þrjátíu og þrjár sekúndur. Aðrir vilja meina að nafnið sé dregið af tónleikaupptöku Daft Punk Alive 1997 en sú plata er fjörutíu og fimm mínútur og þrjátíu og þrjár sekúndur að lengd. Þó svo að platan hafi opinberlega verið miðuð að hlaupurum er það almennt tal- ið að James Murphy hafi einfaldlega vilj- að fá tækifæri og peninga til að semja plötu sem væri eitt samfellt tónverk í anda E2-E4 eftir Manuel Göttsching. Plötuumslagi 45:33 svipar óumdeilanlega til þeirrar plötu en báðar plöturnar eru köflóttar að framan með smáu letri. Nike komst að þessu eftir útgáfu plötunnar og breytti því umslagi plötunnar í endur- útgáfu hennar ári síðar. Eitt af þeim tónverkum sem má finna á 45:33 var notað sem grunnur að laginu „Someone Great“. Það lag er eitt vinsæl- asta lag LCD Soundsystem og var síðar gefið út á plötunni Sound Of Silver. jonasmargeir@mbl.is Poppklassík 45:33 - LCD Soundsystem Aðeins lengra en 45:33 E f fyrsta plata hljómsveitar slær í gegn myndast strax mikil pressa á plötu númer tvö. Ef plata númer tvö verður ennþá stærri en sú fyrri, þá er heldur betur komin pressa á hljómsveitina fyrir plötu númer þrjú. Það var því vitað mál að það yrði erfitt fyrir LCD Soundsystem og heilann á bakvið sveitina, James nokkurn Murphy, að fylgja eftir plötunni Sound of Silver sem kom út árið 2007. Tónlist- arpressan og aðdáendur sveitarinnar víðsvegar um heim töluðu lengi vel um að allt sem kæmi á eftir Sound of Silver gæti bara hreinlega ekki toppað hana, slíkt meistaraverk væri þar á ferð. En Murphy sannar það enn og aftur að tónlist- arleg snilligáfa hans er engum takmörkum bundin. Á nýjustu plötu LCD , This Is Happen- ing sem kom út fyrir stuttu er Murphy ekki að fjarlægjast LCD hljóminn of mikið þó að vissu- lega hafi ákveðin skiljanleg þróun átt sér stað í tónlist hans. Murphy spólar samt ekki í sama farinu alltof lengi. Svo er það líka bara oft þann- ig, að þegar hlutirnir virka, þá þarf ekkert endi- lega að hamast við að gera við þá. Murphy sem verður fertugur á árinu er fædd- ur og uppalinn í úthverfinu Princeton Junction í New Jersey-ríki, bæ með um 2000 íbúa. Að námi loknu ákvað Murphy að yfirgefa æsku- slóðinar og flytja til New York borgar. Árið 1999 vann hann við gerð plötunnar Bow Down To The Exit Sign með breska tónlistarmann- inum David Holmes og þá fór boltinn að rúlla. Meðan á þeim upptökum stóð kynntist hann öðrum Breta, Tim Goldsworthy, fyrrverandi meðlim U.N.K.L.E. og stofnuðu þeir saman plötuútgáfuna og pródúseratvíeykið DFA. Murphy stofnaði svo LCD fyrir sína eigin tónlist og hefur hann fengið fjölda tónlistarmanna úr ýmsum sveitum til að vinna með sér. Ásamt því að pródusera plötur fyrir fjölda tónlistar- manna. Stuttu áður en platan kom út var Murphy spurður í viðtali við Drowned in Sound við hverju fólk mætti búast. Sagðist hann vera full- ur af ótta þegar hann hugsaði um plötuna. Hann væri vanur að setja mikla pressu á sjálfan sig við upptökur og að árangurinn væri oft á tíðum misjafn. Hann ætti það til að ofhugsa tónlistina en á This Is Happening, þrýsti hann næginlega fast og náði því fram sem hann vildi. Það væri erfitt að segja hvernig plata þetta yrði, Mikið gæti breyst fram að útgáfudegi plötu. Þessi ótti Murphys virðist hafa verið að óþörfu. Því This Is Happening er á góðri leið með að komast á sama stall og fyrri plötur LCD. Enda virðist flest sem Murphy kemur við slá í gegn. Þetta er að gerast Þriðja hljóðversplata Brooklyn dans-pönk sveit- arinnar LCD Soundsystem sannar að vinsældir fyrri platna voru sko engin heppni. Matthías Árni Ingimarsson matthiasarni@mbl.is James Murphy flúði úthverfið Princeton Junction í New Jersey-ríki, settist að í New York og stofnaði hljómsveitina LCD Soundsystem. Í nýlegum viðtölum hefur James Murphy ýjað að því að This is Happening gæti orðið síðasta plata LCD Soundsystem. Hann að segir LCD hreinlega yfirtaki líf hans þegar hann vinnur að tónlistinni og færi á tónleika- ferðalög, það væri ekki það sem hann vildi. Öll vinnan á bak við LCD gerði það að verkum að hann hefði ekki tíma til að sinna DFA-útgáfunni, taka upp aðrar sveitir, semja kvikmynda- tónlist, hvað þá að skrifa bækur. Það verður þó ekki tekið af Murphy að hann hefur gefið út þrjár frábærar plötur og ef hann vill hætta, þá verður að virða þá ákvörðun hans. LCD Soundsystem á Coachella. Ljósmynd/MÁI Svanasöng- ur LCD? Tónlist Hljómsveitin The Faces sem áður hét Small Faces býr sig nú undir sitt fyrsta tónleika- ferðalag frá því að hún hætti árið 1975. Í fyrra kom sveitin saman á góðgerðartón- leikum og fékk þá með sér á svið Mick Hucknall söngvara Simply Red. Nú ætlar sveitin að koma saman aftur, en litlar líkur eru taldar á að söngvarinn Rod Stewart verði með að þessu sinni. Sveitin hefur staðfest tvenna tónleika í sumar en Ian McLagan hljómborðsleikari segir að þeim muni fjölga. Rod Stewart syngur líklegast ekki með The Faces á komandi tónleikum. The Faces án Rod
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.