SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Síða 45
30. maí 2010 45
Leikhúsin í landinu
www.mbl.is/leikhus Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið)
Sun 30/5 aukas. kl. 16:00
Tvær Grímur 2008 - Besta leikkonan - Besta handritið
Víkingaheimar
422 2000 | info@gudridur.com
Ferðasaga Guðríðar - aukasýningar í júní
Lau 29/5 aukas. kl. 20:00 U
Sun 30/5 aukas. kl. 16:00 Ö
Fös 4/6 aukas. kl. 20:00 Ö
Lau 5/6 aukas. kl. 20:00 Ö
Fös 11/6 aukas. kl. 20:00 Ö
Lau 12/6 aukas. kl. 20:00 Ö
Víkingaheimar, Víkingabraut 1, 260 Reykjanesbæ
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
IÞ, Mbl
IÞ, Mbl
EB, FblEB, Fbl
ÞJÓÐLEIKHÚSI
SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS
Ð
Fíasól (Kúlan)
Lau 12/6 kl. 13:00 Lau 4/9 kl. 15:00 Sun 12/9 kl. 15:00
Lau 12/6 kl. 15:00 Sun 5/9 kl. 15:00 Lau 18/9 kl. 13:00
Sun 13/6 kl. 13:00 Lau 11/9 kl. 13:00 Lau 18/9 kl. 15:00
Sun 13/6 kl. 15:00 Lau 11/9 kl. 15:00 Sun 19/9 kl. 13:00
Lau 4/9 kl. 13:00 Sun 12/9 kl. 13:00 Sun 19/9 kl. 15:00
Haustsýningar komnar í sölu!
Hænuungarnir (Kassinn)
Fös 10/9 kl. 20:00 Fös 17/9 kl. 20:00 Fös 24/9 kl. 20:00
Lau 11/9 kl. 20:00 Lau 18/9 kl. 20:00 Lau 25/9 kl. 20:00
Sun 12/9 kl. 20:00 Sun 19/9 kl. 20:00 Sun 26/9 kl. 20:00
Fim 16/9 kl. 20:00 Fim 23/9 kl. 20:00
Haustsýningar komnar í sölu!
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Sun 30/5 kl. 19:00 Lau 5/6 kl. 19:00 Lau 12/6 kl. 19:00 Aukas.
Fim 3/6 kl. 19:00 Aukas. Fim 10/6 kl. 19:00 Aukas.
Fös 4/6 kl. 19:00 Fös 11/6 kl. 19:00 Aukas.
Ath. sýningarnar hefjast kl. 19:00
Af ástum manns og hrærivélar (Kassinn)
Fim 3/6 kl. 20:00 Fös 4/6 kl. 20:00 Lau 5/6 kl. 20:00
Sýningin er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Listahátíðar í Reykjavík
Herra Pottur og ungfrú Lok (Kúlan)
Sun 30/5 kl. 13:00 Lau 5/6 kl. 13:00 Sun 6/6 kl. 15:00
Sun 30/5 kl. 15:00 Lau 5/6 kl. 15:00
Fim 3/6 kl. 17:00 á frönsku Sun 6/6 kl. 13:00
Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík
Rokk (Kassinn)
Fim 10/6 kl. 20:00
Athyglisverðasta áhugasýning ársins!
Ó
fáir njóta þess að fá
sér góðan kaffibolla
til að vakna á
morgnana. Það
hressir menn við og bragðast
þar að auki glimrandi vel.
Nú hafa breskir vísindamenn
fundið út að koffínið hjálpar
vaktavinnufólki ekki aðeins til
að vakna heldur dregur úr því
að það geri vitleysur í
vinnunni. Að sögn vísinda-
manna vinna 15 prósent
vinnuafls í iðnríkjum að ein-
hverju leyti á vöktum, sem
getur truflað lífsklukku við-
komandi.
Fjöldi vaktavinnufólks hefur
upplifað heilsufarsvandamál,
m.a. erfiðleika við að sofna.
Það veldur því að það er oft á
tíðum þreytt og syfjaðir í
vinnunni, og er þess vegna
líklegra til að gera vitleysur.
Eins og norski vefmiðillinn
Forskning.no greinir frá fóru
vísindamennirnir í gegnum
upplýsingar úr 13 rann-
sóknum á samhengi koffíns og
frammistöðu vaktavinnufólks.
Flestar tilraunirnar fóru fram
við tilbúnar aðstæður þar sem
þátttakendum var gefið koffín
í formi kaffis, taflna, orku-
drykkja eða koffínblandaðs
matar. Í sumum tilraununum
var ökufærni vaktavinnu-
fólksins prófuð, meðan aðrar
gengu út á taugasálfræðileg
próf.
Í ljós kom að koffínið dró úr
fjölda vitleysa í samanburði
við þá sem fengu platkoffín
eða tóku stutta lúra. Frammi-
staðan batnaði í taugasál-
fræðilegu prófunum sem m.a.
prófuðu minni, athygli og
skilning þátttakenda.
Þótt slys væru ekki sér-
staklega skoðuð telja vís-
indamennirnir ekki ólíklegt að
samhengi sé á milli færri vit-
leysa og færri slysa á fólki við
vinnu.
Meðalaldur þátttakenda í
flestum tilraununum var milli
20 og 30 ár en þar sem lífs-
klukkan breytist með aldr-
inum leggja vísindamennirnir
áherslu á að þörf sé á frekari
rannsóknum á þessu sviði.
Ekki fylgir sögu hverjir
kostuðu rannsóknina, sem
gerð var við London School of
Hygiene & Tropical Medicine í
Bretlandi.
Klárari í
hausnum
með koffíni
Koffín í t.d. kaffi getur bætt
vinnuhæfni hjá vaktavinnufólki,
samkvæmt breskri rannsókn.
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir
ben@mbl.is
Kaffi heldur vaktavinnufólkinu við efnið.
Morgunblaðið/Arnaldur
Föstudagur
Unnur Ösp Stefánsdóttir fékk frá-
bærar fréttir í dag! Og svei mér ef
ég er ekki loksins búin að ákveða
hvað ég ætla að kjósa á morgun,
púff...
Fimmtudagur
Kristján Valur Jónsson borðar að
jafnaði allt of lítið kjötfars.
Miðvikudagur
Úlfur Eldjárn er búinn að fá nokkr-
ar fljúgandi kisur inn um gluggann í
dag.
Mánudagur
Birgir Jóakimsson og Bob Dylan
eiga ammæli í dag 24. maí. Við
verðum að heyja í dag.
Sunnudagur
Bergþóra Jónsdóttir Schubert var
örugglega rauðhærður!
Fésbók
vikunnar flett
Suður-Afríka er í startholunum
fyrir heimsmeistaramót í knatt-
spyrnu. Í sjónvarpsauglýsingum
er sungið „Hello Africa, tell me
how yoúre doing?“ og við taka
litrík myndskeið frá daglegu lífi
með fjörugri tónlist.
Í Cape Town er líka nóg að
gera, það er verið að bæta vega-
kerfið svo allir geti nú komist-
leiðar sinnar á gríðarstóran leik-
vanginn sem byggður hefur verið
í borginni. Miðar á mótið hafa
ekki selst eins og skyldi en
stemning í landinu sjálfu er
áþreifanleg. „Auðvitað hlökkum
við öll til og bæjaryfirvöld ætla
að setja upp stóra skjái á íþrótta-
völlum bæjarins svo að sem
flestir geti horft á leikina ókeyp-
is,“ segir bæjarstjórinn í Paarl,
borg í grennd við Cape Town, við
matarborðið heima hjá sér þang-
að sem hópi Íslendinga hefur
verið boðið í mat.
Ókeypis er mikilvægt í Suður-
Afríku þar sem margir eiga allt
en enn fleiri eiga lítið sem ekk-
ert. Fótbolti er gulls ígildi fyrir
börnin sem leika sér í fátækra-
hverfum bæja og borga. Slíkt
kemur Íslendingi spánskt fyrir
sjónir en þau þekkja ekkert ann-
að og brosa breitt í heitri Afríku-
sólinni þar sem þau hlaupa um í
ærslafullum leik. Leikurinn sam-
einar þau með líminu sem mun
innan skamms líma saman ólíkar
þjóðir um hríð.
Það er einmitt þetta lím sem
virðist vanta dálítið í daglegt líf
íbúa Suður-Afríku. Þar límir
fótboltinn ekki alla saman því í
Suður-Afríku er fótbolti frekar
íþrótt fátæka mannsins. Þar eru
engar fótboltaeiginkonur á
háum hælum á flottum bílum.
Þær eru á pólóvellinum þar sem
hvítir Suður-Afríkubúar etja
kappi í einni uppáhaldsíþrótt
fyrrverandi nýlenduherra
landsins. Á meðan er fótbolti
leikinn berum fótum á opnum
svæðum fátækrahverfanna þar
sem flest allt er tækt sem fót-
bolti. Jafnvel uppblásinn
smokkur með plastpoka utan
um og nóg af límbandi.
maria@mbl.is
Íþrótt fátæka mannsins
Varningur tengdur HM til sölu í Soweto. Mótið hefst eftir um hálfan mán-
uð og er sá íþróttaviðburður sem mest sjónvarpsáhorf fær af öllum.
Reuters
Aðdáandi S-Afríku fagnar á leik
gegn Kólumbíu í Jóhannesarborg.