SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Síða 51

SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Síða 51
30. maí 2010 51 leysi og óöryggi, ef eitthvað kemur fyrir, ef ég fót- brotna eða missi röddina þá er ég talgjörlega tekju- laus,“ sagði Bjarni Thor. Hann telur þó kostina vega upp á móti, yfirleitt fá lausráðnir söngvarar hærri tekjur og þá skemmtun að fá að kynnast heiminum. Hættulegt starf Lífið á óperusviðinu er ekki alltaf dans á rósum, það gengur á ýmsu og menn þurfa ávallt að vera búnir undir hið óvænta þó að óperumeiðsl séu kannski ekki mjög algeng þá henda slysin þar eins og ann- arsstaðar. Söngkonan Sophie Koch fékk að kynnast því á sýningu með Bjarna Thor er hún fékk óvænt olnbogaskot frá listagyðjunni fyrr í vikunni. „Í upp- hafi sýningarinnar er sjóðandi heit ástarsena þar sem Markskálksfrúin og Octavian, sem sungin er af mezzo-sópran eru í brennidepli. Í hita leiksins rak markskálksfrúin olnbogann svo hressilega í andlit elskhuga síns að stöðva þurfti sýninguna, huga að meiðslum og byrja svo sýninguna aftur. Allt fór þetta nú samt vel og söngkonan hlaut ekki varanlegan skaða af“, segir Bjarni með bros á vör og er greinilega örlítið skemmt yfir óförum félaga sinna. Söngskemmtanir fyrir ferðamenn Í sumar myndast gat í dagskránni hjá Bjarna Thor og frekar en að „sitja og telja á sér fingurna,“ hyggst hann standa fyrir daglegum söngskemmtunum sem hugsaðar eru fyrir erlenda ferðamenn í Reykjavík. „Það er ekki svo mikið á boðstólum í söngheiminum heima á sumrin, einstaka sönghátíðir úti á landi kannski en ekki í Reykjavík og það er leiðinlegt fyrir allt það hæfileikaríka söngfólk sem við höfum,“ sagði Bjarni Thor. Í salarkynnum Söngskóla Sigurðar De- mentz úti á Granda munu efnilegir söngvarar kynna íslenska tónlist fyrir erlendum ferðamönnum í þrem- ur mismunandi dagskrám. Þar verður boðið upp á perlur íslenskra einsöngslaga, Draumalandið, Á Sprengisandi og Í fjarlægð til að nefna nokkrar. Tón- skáldin verða kynnt og ef við á tilurð laganna. Önnur kvöld verður boðið upp á karlakvartett sem mun flytja íslensk þjóðlög, ættjarðarljóð og hugsanlega sálma án undirleiks og á þriðju dagskránni verða það síðan sópransöngkona, tenórsöngvari og gít- arleikari sem fara yfir íslenska tónlistarsögu. „Það virðist vera mikill áhugi á þessu innan ferðaþjón- ustunnar og síðan kemur bara í ljós hvernig þetta mun ganga. Meiningin er að hafa þetta aðgengilegt fyrir allan almenning,“ segir Bjarni Thor að lokum en hann mun hafa yfirumsjón með verkefninu og eins að leiðbeina söngvurunum eða eins og hann segir sjálfur frá þá mun hann „hlutast til um hvernig söngvararnir syngja þetta og það má kannski líta á það sem einskonar námskeið fyrir þá.“ Að lokinni tapasmáltíðinni heldur Bjarni Thor út á Römbluna í Liceu óperuna til að liðka radd- böndin. Hann er ánægður með dvölina í Barcelona og í haust taka síðan við önnur hlutverk í öðrum erlendum óperuhúsum.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.