SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Qupperneq 2

SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Qupperneq 2
2 6. júní 2010 18 Alltaf á sjó Gömul plata, þar sem Þorvaldur Halldórsson syngur sjómannalög, endurútgefin. En hefur söngvarinn einhvern tíma verið á sjó? 22 Kom, sá og sigraði Hver er Geir Kristinn Aðalsteinsson, efsti maður á Lista fólksins á Ak- ureyri, sem náði meirihluta í kosningum til bæjarstjórnar? 25 Gamanleikararnir taka völdin Í stuttu máli vann grínframboð kosningarnar, skrifar Einar Már Guð- mundsson, en grínurunum er að vísu full alvara. 32 Ógnar umhverfi og efnahagslífi Erfiðlega hefur gengið að stöðva olíulekann í Mexíkóflóa. 34 Hverjir hljóta Grímuna? Ýtarlega farið yfir tilnefningarnar að þessu sinni. 40 Eldhús Evrópu Matsveinninn ungi Jón Rúnar Sigurðsson lagðist í ferðalög í byrjun kreppu og hyggst kynna sér eldhús álfunnar. Lesbók 48 Óvinur meðalmennskunnar Á táningsaldri var Gert Hof settur í fangelsi fyrir að hlusta á Rolling Stones og Bítlana. Nú ætlar hann að lýsa upp íslenskan jökul. 52 Lygi á lygi ofan Menn eru enn að rífast um arfleifð Williams Shakespeare 446 árum eftir að hann fæddist. 55 Söfn, setur og sýningar Þankar þjóðminjavarðar, Margrétar Hallgrímsdóttur. 24 28 Efnisyfirlit Forsíðumyndin er af Rick Bender. Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudags- moggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Hólmfríður Gísladóttir, Ingveldur Geirs- dóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir. Augnablikið S ýningin er ekki fyrir viðkvæma. Ekki frekar en líf unglingsins. Eða kannski er hún einmitt fyrir viðkvæma, því þá er til- ganginum náð, að fá þá til að hlæja eða hneykslast – eða engjast í innri baráttu um hvort þeir geti leyft sér að hlæja að svona ósmekk- legheitum. Viðkvæmir í þessu tilfelli eru fullorðnir, klyfj- aðir af ríkri ábyrgðartilfinningu og pólitískri rétt- hyggju. Þeir liggja vel við höggi. Anna Svava stendur á sviðinu á Café Rosenberg. Í kvöld er hún ekki Fransína mús, sem skemmtir krökkunum. Það er bara á daginn. Núna horfir hún fram í salinn, les gamlar játn- ingar úr gelgjudagbókinni sinni, Dagbók Önnu Knúts. Það kemur fram strax í upphafi að hún sé hvorki ljóshærð né dökkhærð, heldur með ljótt hár. Svo bendir hún á blaðamann, sem situr fremst og á sér einskis ills von: „… eins og þú!“ Fólkið á Rosenberg hlær dátt og innilega. Dæmigert. Unglingar geta verið alveg óþolandi. Þegar ég fór aftur í gamla gagnfræðaskólann minn fyrir nokkrum árum og skrifaði grein um heimsóknina, orðinn rígfullorðinn blaðamaður, að mér fannst, þá elti mig piltur um gangana sem sagði alltaf þeg- ar ég leit við, alveg svipbrigðalaus: „Ég drep þig.“ Addi Knúts, eldri bróðir Önnu Svövu, stendur nálægt sviðinu og skemmtir sér konunglega. Enda er hann ekkert alls ólíkur systur sinni. Þegar hann bauð sig fram sem ritstjóri Verslunarskólablaðsins á sínum tíma, þá var auglýsingaplakatið krúttleg æskumynd af honum, þar sem hann stóð og piss- aði, og undir var slagorðið: „Kjóstu mig, eða ég pissa á þig!“ Þetta fannst unglingunum svo fyndið, að þeir kusu hann sem ritstjóra blaðsins. Anna Svava ljóstrar upp ólíklegustu leyndar- málum þetta kvöld. Hún segist til dæmis eiga fullt af ættingjum, „en það eru bara níu sem tala sam- an …“ Þegar kallað er úr salnum: „Er þetta sem sagt allt satt?“ þá svarar hún forviða: „Þetta er dagbókin mín.“ Hún hristir höfuðið og bætir við: „Ég skil ekki spurninguna.“ Rosenberg hæfir vel uppistandinu, sem ferðast um landið í sumar, í föruneyti Fransínu músar, sem verður á kreiki á daginn. Það eru bækur á veggjunum. Og titlarnir forvitnilegir fyrir gelgjur á öllum aldri: „Sýndu mér ást þína“, „Eldheit ást“, „Hamingjudraumar“, Brennandi ástarþrá,“ og „Vald ástarinnar“. Á meðal þeirra fyrstu til að sýna á sér fararsnið að lokinni sýningu er Bergur Ingólfsson leikari. Það kemur upp úr dúrnum að hann á unglinga í Bústaðahverfinu. pebl@mbl.is Anna Svava með gelgjudagbókina sína á Café Rosenberg. Ekki fyrir viðkvæma 5. júní Flugsýning Flugmálafélags Íslands verður í dag á Reykjavíkurflugvelli við Hótel Loftleiðir. Þar verða sýndar flugvélar af öllum stærðum og gerð- um en á himni verður boðið upp á flugsýningu. Á meðal þess sem er á dagskrá er fallhlífarstökk, svifflug, flugmódelflug, listflug, hópflug, lág- flug, þyrluflug, fisflug, paramótorflug, sýningaratriði frá Landhelgisgæsl- unni, keppni milli bíls og flugvélar auk annarra atriða. Flugsýning á Reykjavíkurflugvelli Við mælum með … 5. og 6. júní Alasdair Roberts flytur skoska þjóð- lagasöngva í Leikhús- inu á Möðruvöllum á sunnudag. Tónleikarnir eru haldnir í samvinnu við Amtmannssetrið á Möðruvöllum. Roberts tróð upp ásamt Benna Hemm Hemm, í Ha- varí í gær og í Íslensku óperunni í fyrradag þar sem þeir fluttu verk Benna, Ryk á Book, á Listahátíð í Reykjavík. Í dag endurtaka þeir fé- lagar leikinn í Ket- ilhúsinu á Akureyri en þeir tónleikar eru á vegum AIM- tónlistarhátíðarinnar. Þá verður ljós- myndasýningin Hestar og menn opnuð á Hótel Varmahlíð á morgun þar sem myndefnið er fjölbreytt og spannar liðlega hundrað ár í sögu hestsins. Sýningin verður uppi í allt sumar. fyrir heimilið 50%afsláttur kr. kg Lúxus grísakótilettur, beinlausar 998 Verð áður 1998 kr./kg

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.