SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Síða 10

SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Síða 10
10 6. júní 2010 Þ egar ég var smábarn spilaði ég klukkustundum saman spilið lönguvitleysu við móður mína heitna. Síðar tók- um við mamma til við örlítið flóknari fyrirbæri eins og ólsen-ólsen, kasínu, marías, rússa og tveggja manna bridds. Eftir að ég komst til vits og ára, hef ég oft dáðst að úthaldi mömmu, að spila þetta einfalda, langa, leiðinlega spil við yngsta barnið sitt á löngum vetrarkvöldum. Þetta var fyrir sjónvarp á Ís- landi – Kana-sjónvarp var aldrei á mínu heimili. En svona er nú móðurástin. Mæður gera oft fleira en gott og skemmtilegt þykir, til þess að hafa ofan af fyrir ungunum sínum. Hvers vegna er ég nú að rifja upp hálfrar aldar gamla sögu af sjálfri mér, barn- ungri, kunna einhverjir að velta fyrir sér. Jú, frá því að niðurstöður fengust í borgarstjórnar- kosningum um síðustu helgi, hefur þetta gamla, einfalda, leiðinlega spil, sem getur ver- ið endalaust, ef því er að skipta, hvað eftir annað kom- ið upp í huga mér. Einn aðalgrínisti landsins, Jón Gnarr og hans lið í Besta flokknum eru á góðri leið með að kalla yfir okkur Reyk- víkinga fjögurra ára lönguvit- leysu af leiðindum. Ef marka má fregnir vikunnar, þá fer vel á með þeim Degi B. Eggertssyni og Besta flokks-liðinu og þau eru á harðahlaupum að ljúka gerð málefnasamnings. Einhvern veginn er ég engu nær þótt vika sé liðin frá kosn- ingum fyrir hvað Besti flokkurinn stendur. Hann segist vera best- ur og skemmtilegastur, en ekki hafa þær staðhæfingar beinlínis skilað sér í framkvæmd, því nýkjörnir borgarfulltrúar Besta flokksins hafa verið nánast óbærilega leiðinlegir þessa viku og þar er Jón Gnarr fremstur í flokki. Hann skilar auðu í hverju viðtalinu á fætur öðru; hefur ekki skoðun á einu einasta málefni; er al- gjörlega laus við það að vera fyndinn og hvað svo sem líður allri hans meintu snilld, þá er hún í felum um þessar mundir. Það hlýtur að verða verðugt rannsóknarverkefni fyrir sagn- fræðinga framtíðarinnar og mannfræðinga að greina helstu ástæður þess að höfuðborg þessa lands tekur virkan þátt í því að leiða trúð til valda í borginni og hann heldur áfram trúðslátum sínum og gerir samstarfssamning við einhvern alleiðinlegasta stjórnmálamann sem hefur komið fram á sjónarsviðið í áratugi, Dag B. Eggertsson, sem kemur stórlaskaður út úr borgarstjórn- arkosningunum – oddvitinn og varaformaður Samfylking- arinnar, sem státar af flestum útstrikunum, en íhugar ekki einu sinni að stíga til hliðar. Dagur virðist þeirrar ónáttúru, að ef hann getur komið sjónarmiðum sínum á framfæri í tíu sinnum of löngu máli, í hvert sinn sem hann tjáir sig, þá stekkur hann á það tæki- færi og virðist aldrei láta það ónotað. Það er eins og honum finnist sem magn orðaflaumsins skipti svo miklu meira máli en innihald. Jón Gnarr lýsti sessunaut sínum, Degi B. Eggertssyni, ágætlega í Silfri Egils fyrir viku þegar hann sagði að stjórnmál væru svo leiðinleg hér á landi og orðaflaumurinn svo óskiljanlegur, að hann hefði ákveðið að ryðjast fram á völlinn og reyna að trufla líf stjórnmálamannanna, rétt eins og þeir hefðu truflað líf hans. Er Dagur hans helsta ginningarfífl við kvikmyndagerðina um valda- ránið í borginni? En hvað svo? Máltækið segir: Í upphafi skal endinn skoða. Skyldi Jón Gnarr og meðreiðarfólk hans á gandreið Besta flokks- ins hafa hugleitt endinn þegar þau hófu lönguvitleysuna? Mér er það til efs. Hafa fulltrúar Besta flokksins komið fram með eina frumlega hugmynd, sem jafnframt mun gagnast okkur borgarbúum, þ.e. að verði henni hrint í framkvæmd, muni það leiða til betri borg- ar, betra mannlífs eða bættra kjara? Ég held ekki. Hafi þau komið fram með slíka hugmynd, þá hefur hún alla vega farið framhjá mér. Eða telja þau að hugmynd þeirra um að tekjutengja leikskólagjöld í Reykjavík og auka þar með álögur á skattpínda Reykvíkinga sé slík hugmynd?! Langavit- leysa og leiðindi Agnes segir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Jón GnarrDagur B. ’ Er Dagur hans helsta ginningarfífl við kvikmynda- gerðina um valda- ránið í borginni? Róbert Traustason er þjálfari og einn stofnenda líkamsræktar- stöðvarinnar Boot Camp við Suðurlandsbraut. Hann segir sumarið vera annatíma hjá stöð- inni og sjálfur stjórni hann nán- ast öllum æfingum og sinni rekstri og samskiptum við við- skiptavini þess á milli eftir fremsta megni. Þá er hann faðir 16 mánaða gamallar stúlku sem hann sér ekki sólina fyrir að eig- in sögn. Það er því í nógu að snúast á venjulegum degi hjá Róberti. 05:30 Vakna og fæ mér morgunmat. Kíki á helstu net- miðla svo maður sé ekki alveg úti að aka í samræðum þennan daginn. Oft fyrstur að lesa nýj- ustu fréttirnar! 06:30 Mættur til vinnu og sendi morgunhanana af stað í æfingar. Eins gott að enginn mæti seint og skemmi morg- ungleðina. 09:30 Anna, konan mín, sem var að klára æfingu býður mér að koma í sund fyrir hádegis- tímann. Get ekki hafnað þessu boði enda ekki oft sem við náum að gera eitthvað svona tvö sam- an á daginn. Gríp mér bara ávöxt og próteindrykk á leiðinni út. 10:00 Erum mætt upp í Ár- bæjarlaug og slökum og teygjum á í pottinum. Plönum kvöld- matinn og væntanlega útskrift hennar næstu helgi. Ákveðum að hafa bara eitthvað létt og notalegt fyrir fjölskylduna. 11:30 Skýst heim og skelli í mig kjúklingi og grænmeti, fá smá orku fyrir hádegið. Heyri aðeins í mömmu í símanum. 12:30 Hádegisæfingin í full- um gangi, sólin skín úti og svit- inn farinn að leka af fólkinu. Mitt hlutverk þennan daginn felst í að nýta aðstöðuna inni svo ég þarf að húka inni í góða veðr- inu. 13:30 Biggi meðeigandi minn hringir í mig og við ræðum þau vinnumál sem þarf að ræða þennan daginn. Náum oft að af- greiða flesta hluti svona og för- um svo í að koma þeim í verk. 14:00 Tek æfingu dagsins með öðrum Boot Camp- þjálfurum. Það er ekki annað hægt heldur en að fara út í svona veðri og við hlaupum góðan hring. 15:30 Reyni að svara nokkr- um tölvupóstum á meðan ég næri mig áður en næsti æf- ingahópur mætir. Yfirleitt eru póstarnir of margir og of langir til að hægt sé að redda því á nokkrum mínútum svo þeir þurfa að bíða til kvölds … eða lengur. 16:00 Anna kíkir aftur við með stelpuna okkar, Katrínu Klöru sem er 16 mánaða. Henni finnst mjög gaman að fylgjast með æfingunum og tekur upp sitt fyrsta lóðapar og reynir að herma eftir! 19:15 Legg af stað heim, venjulegum vinnudegi lokið. Hringi í Daníel bróður minn og bið hann um að láta mig vita hvað gerist í bikarleiknum milli FRAM og ÍR. 19:30 Kominn heim til stelpnanna minna, Katrín á leið- inni í bað og í banastuði. Anna búin að undirbúa matinn svo við klárum að baða Katrínu og skellum á grillið. Fæ sms frá bróður mínum, Framararnir komnir yfir í leiknum! 21:00 Svara tölvupóstum, sinni heimilisstörfum og horfi á einn þátt í sjónvarpinu með öðru auganu á meðan. Fleiri sms koma í símann, staðan í leiknum er 2:0, svo 2:1 og svo er leik lok- ið. Framarar komnir áfram í næstu umferð! 22:30 Kominn tími til að fara upp í rúm svo ég nái góðum svefni fyrir átök næsta dags. Ef ég rotast ekki við það eitt að leggjast á koddann kíki ég ör- stutt í bók eða tímarit og það gerir þá galdurinn. Næsti dagur, hér kem ég! kjartan@mbl.is Dagur í lífi Róberts Traustasonar, þjálfara og annars eigenda Boot Camp. Róbert fylgdist spenntur með bikarleik Framara í gegnum sms frá bróður sínum. Hans menn stóðu uppi sem sigurvegarar, 2:1. Morgunblaðið/Jakob Fannar Les fyrstur fréttirnar

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.