SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Side 22

SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Side 22
22 6. júní 2010 G eir Kristinn á ættir að rekja í hið kunna Bakkasel við rætur Öxnadalsheiðar, og í Bótina á Akureyri. Hann kemur úr stórri fjölskyldu og til gamans má geta að afar hans eru báðir goðsagnapersónur í höfuðstað Norðurlands; Skóda-Geiri og Dóri skó sem hann segir báða mikil áhrif hafa haft á sig. Sá síðarnefndi er faðir Odds Helga, stofnanda L-listans og bæj- arfulltrúa hans síðustu þrjú kjörtímabil. Nýr oddviti L-listans er 35 ára, árinu eldri en sambýliskonan Linda Guð- mundsdóttir. Bæði eru þau viðskipta- fræðingar, Geir starfar sem rekstrarstjóri Vodafone á Norðurlandi en Linda í Ís- landsbanka. Þau eiga tvo stráka, Jason Orra 13 ára og Viktor Erni sjö ára. Körfubolti í stað kartaflna Íþróttir skipa stóran sess í lífi fjölskyld- unnar. Geir er gamall handboltamaður, Þórsari í húð og hár en lék einnig með KA í eitt ár og hefur þjálfað 2. flokk samein- aðs liðs félaganna, Akureyrar – hand- boltafélags síðustu ár. Eplið fellur ekki langt frá þeirri eik sem hann er; strák- arnir hoppa gjarnan á trampólíni á lóð- inni, eru þar í fótbolta, golfi og körfu- bolta! „Hluti lóðarinnar var kartöflugarður en ég gróf tvo metra niður í fyrra og setti körfuboltavöll í staðinn. Það er til nóg af kartöflum í búðunum og skemmtilegt að leika sér með börnunum á lóðinni,“ segir Geir þegar blaðamaður Morgunblaðsins sækir hann heim í kjölfar sögulegs stórsigurs Lista fólksins. „Þegar ég gekk inn í Verkmenntaskól- ann um klukkan 10 á laugardagskvöldið fannst mér ég vera að koma inn í sjón- varpsþátt. Fyrstu tölur eru alltaf spenn- andi, ég hafði oft fylgst með þessu augna- bliki fyrir framan sjónvarpið heima en nú var ég þátttakandi á staðnum og það var hálf-óraunverulegt,“ segir Geir, beðinn um að lýsa því hvernig honum leið þegar fyrstu tölur voru birtar. „Skoðanakannanir höfðu sýnt mikið fylgi við okkur, jafnvel að stutt væri í að við næðum hreinum meirihluta, en ég hélt jafnvel að þá myndi einhverjum þykja komið nóg og ákveða að kjósa frek- ar „sinn“ flokk, en fólk fylkti sér enn bet- ur en áður á bak við okkur.“ Sumir hafa nefnt L-listann í sömu andrá og Besta flokkinn í Reykjavík og telja hann nýjan af nálinni en það er hann sannarlega ekki; Oddur Helgi Hall- dórsson, móðurbróðir Geirs Kristins, var fyrst í bæjarstjórn fyrir Framsókn- arflokkinn en stofnaði L-listann fyrir kosningarnar 1998 og er nú að hefja fjórða kjörtímabilið um borð í þeirri skútu. Geir Kristinn sleit barnsskónum á Ak- ureyri og hefur raunar slitið flestum skóm sínum þar í bæ. Hann gekk að vísu um höfuðborgina veturinn 1996-97 og aftur í nokkur misseri áratug síðar og þau Linda dvöldu á Húnavöllum einn vetur þegar Jason var nýfæddur. Geir tók þá að sér kennslu þar, 22 ára gamall, og ljómar þegar hann rifjar upp þann tíma í Húna- vatnssýslunni. „Tíminn þar var æðislegur. Þar kynnt- ist ég í fyrsta skipti annarri hlið á Íslandi en ég var vanur; þarna var rólegt, allir mjög innilegir og mér þótti orðið vænt um alla 100 krakkana í skólanum eftir mán- uð! Þau voru öll svo orginal. Það þjappaði fjölskyldunni vel saman að vera á Húna- völlum, okkur þykir mjög vænt um stað- inn og förum oft þangað í heimsókn.“ Eftir veturinn á Húnavöllum nam Geir viðskiptafræði í Háskólanum á Akureyri, hóf eftir það störf á skrifstofu fyrirtækis Odds frænda síns, Blikkrás, og nokkrum árum síðar létu þau Linda gamlan draum rætast og fluttu utan. Héldu til náms í Ár- ósum. Hann segir þau ekki hafa viljað búa í stórborg, Árósar séu reyndar stór borg „en mjög skemmtilega sveitaleg. Þar er ekki vottur af stressi,“ segir Geir. Þau bjuggu í útborginni Lystrup, hann fór í mastersnám í markaðsfræðum en Linda lauk BS-námi í viðskiptafræðum. Hugurinn bar þau hálfa leið til Ak- ureyrar að námi loknu en þar var ekki vinnu að hafa þá þannig að þau settust að í Reykjavík. Geir fékk vinnu hjá Vodafone en ári síðar ákváðu þau Linda að flytja í heimahagana „og ég var svo heppinn að vinnuveitendur bjuggu þá til nýtt starf handa mér hér fyrir norðan. Ég er þeim gríðarlega þakklátur fyrir það.“ Langbesta hernaðarlistin Margir hafa velt því fyrir sér hvers vegna framboðið náði þeim árangri sem raun ber vitni. Geir er beðinn um að meta stöðuna; má rekja útkomuna til góðrar stefnu eða uppgjörs fólks við hefðbundnu flokkanna, jafnvel hvors tveggja? „Ég held að hvort tveggja hafi skipt máli en að aðalatriðið sé þó annað,“ segir hann. „Stefnan var ekki verulega frá- brugðin stefnu annarra en hernaðarlist okkar var hins vegar langbest, gríðarlega vel úthugsuð og við vorum með frábæran kosningastjóra, Preben Jón Pétursson.“ Athygli vakti að kosningaskrifstofa L- listans var í verslunarmiðstöðinni Gler- ártorgi. „Með því vildum við koma til fólksins og það heppnaðist einstaklega vel. Fólk fann að það var mjög velkomið; það var eins og að koma í saumaklúbb að ganga inn til okkar, ekki eins og í stóra, þunga ríkisstofnun – með fullri virðingu fyrir hinum flokkunum.“ Geir segir frambjóðendur L-listans hafa sammælst um að hvar sem þeir kæmu fram yrði aðeins L-listinn til umræðu. „Óhjákvæmilegt var auðvitað að fjalla um það sem hefur verið gert en við vorum aldrei með skítkast út í aðra. Ég veit að margir hnýttu í okkur og það er auðvitað allt í lagi ef menn vilja en ég held að okkar aðferð falli fólki betur í geð. Ég hef reynd- ar lengi velt því fyrir mér hvort virkilega sé ekki hægt að vera í pólitík án þess að tala illa um aðra.“ Miklu máli skiptir, segir Geir, að tala mannamál, eins og hann tekur til orða. „Ég lenti stundum í því á borgarafundum í aðdraganda kosninga að fólk með miklu meiri reynslu en ég talaði mál sem ég skildi varla. Ég var engu nær eftir frasana eða talnarunur um prósentur. Ég held að fólk hafi betur kunnað að meta mín stuttu og einföldu svör, á venjulegri íslensku.“ Engin nefndarsæti í verðlaun Geir nefndi að stefnuskrá L-listans hefði ekki verið ýkja frábrugðin annarra fram- boða. En hverju svarar hann þegar spurt er fyrir hvað L-listinn stendur? „Við þurfum ekki að eyða tíma í að vinna fyrir neinn flokk; allur okkar tími fer í að vinna fyrir Akureyri og það greinir okkur frá öðrum. Í flokkunum er frábært fólk en það vinnur undir stórri flokks- maskínu og ekki er hægt að horfa framhjá því að það hefur áhrif.“ „Við viljum hlusta á raddir alls fólksins í bænum og ljóst að við þurfum að hafa fyrir því að heyra sumar því þær eru mjög lágværar. En við munum leggja okkur fram um að heyra þær.“ Geir segir L-listann ætla að koma á móts við minnihlutann við röðun í nefndir, með því að gefa eftir sæti í ein- hverjum þeirra; rétta minnihlutanum þannig völd. „Við höfum vald til að breyta því hvernig bænum er stjórnað og mun- um gera allt sem við getum til þess að gera skilin á milli minnihluta og meirihluta sem minnst; við viljum að allir 11 í bæj- arstjórn verði sem eitt lið.“ Hann lofar því að fólkið í bænum verði virkjað. „Ég held að það séu vinnubrögð sem ekki hafi verið iðkuð hér áður. Fólk á eftir að sjá fljótlega að við erum raun- verulegur listi fólksins – ekki bara í kosn- ingabaráttunni.“ Hann gefur dæmi: „Helsta áhersluatriði okkar varðandi nefndir er að í hverri ein- ustu verði fólk með brennandi áhuga á málefninu, jafnvel menntun. Við munum ekki verðlauna einhvern með setu í nefnd fyrir að standa sig vel við að hjálpa okkur í kosningabaráttunni.“ Fyrst verði eðlilega skyggnst um í hópi L-listafólks, því margir hafi komið til starfa þar vegna sérstaks áhuga á einstaka málaflokkum, „en ég hef þegar fengið fjölda símtala frá góðu fólki sem hefur boðið sig fram og er nokkuð viss um að nokkuð stór hluti þess hóps kemur til með að starfa.“ Hann minnir á að L-listinn hafi lengi viljað að ráðinn verði faglegur bæjarstjóri og sá draumur verði fljótlega að veru- leika. „Ég held að það verði stórt skref fyrir Akureyri því við teljum heillavæn- legt að aðskilja ákvörðunarvald og fram- kvæmdavald. Við teljum faglega ráðinn bæjarstjóra betur til þess fallinn en póli- tískan að vera málsvari allrar bæj- Fjölskyldan heima á lóð; Jason Orri, Geir Kristinn, Viktor Orri og Linda Guð- mundsdóttir. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Pólitík á mannamáli Ekki er ofsagt að Geir Kristinn Aðalsteinsson kom, sá og sigraði – með yfirburðum – í kosningum til bæjarstjórnar á Akureyri. Hann er nýliði en var efstur á Lista fólksins, sem náði meirihluta. Það hefur engu framboði tekist áður. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.