SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Page 33
þess er m.a. sú að vegna erf-
iðleikanna við að saga leiðsluna
í sundur varð skurðurinn ekki
eins fínn og til stóð sem þýðir
að tappinn situr ekki nógu vel á
henni. Enn er því alls óvíst
hver árangurinn verður af
þessum aðgerðum.
Gríðarlegt áfall fyrir BP
Hlutabréf í breska olíufélaginu
British Petroleum (BP), sem
unnið hefur olíu úr borholunni,
hafa hríðfallið í verði að und-
anförnu vegna atburðanna á
Mexíkóflóa. Hefur markaðsvirði
fyrirtækisins lækkað um þriðj-
ung síðan olíuslysið átti sér
stað. Nýjustu fréttir af árang-
ursríkum tilraunum við að
koma tappa í olíuleiðsluna hafa
þó leitt til þess að bréf BP hafa
hækkað lítillega aftur. Binda
forystumenn fyrirtækisins von-
ir við að það sé upphafið að því
að það nái sér á strik aftur.
Engu að síður er ljóst að olíu-
slysið er gríðarlegt áfall fyrir BP
og hefur sett framtíð þess í
uppnám. Fyrir utan tap vegna
glataðra olíubirgða hafa for-
ystumenn BP lýst því yfir að
fyrirtækið muni standa straum
af öllum kostnaði við aðgerðir
við að hefta olíulekann og
hreinsa upp mengun af hans
völdum. Þá muni fyrirtækið
einnig bæta allt tjón sem olíu-
lekinn veldur og byggt er á
réttmætum kröfum. Ljóst er að
þegar upp verður staðið verður
heildartap fyrirtækisins vegna
olíuslyssins gríðarlegt þrátt fyr-
ir að gera megi ráð fyrir að
tryggingar muni að einhverju
leyti bæta tjónið. Forystumenn
BP hafa sagt að til þessa sé tapið
um einn milljarður bandaríkja-
dala.
Ofan á beint fjárhagslegt tjón
bætist að bandarísk stjórnvöld
hafa lýst því yfir að höfðað
verði dómsmál gegn BP og
rekstraraðila borpallsins fyrir
vanrækslu í rekstri hans og brot
gegn öryggisreglum sem valdið
hafi sprengingunni sem felldi
pallinn. Fyrirtækin tvö hafa
brugðist við með því að ásaka
hvort annað um að bera ábyrgð
á því hvernig fór.
Hrist upp í stjórnvöldum
Ljóst er að olíuslysið á Mexíkó-
flóa hefur hrist mjög upp í
bandarískum stjórnvöldum.
Þannig hafa þau lýst því yfir að
ekki verði heimilað að reisa
fleiri borpalla í bandarískri lög-
sögu fyrr en fyrir liggur hvað
hafi valdið sprengingunni í
borpalli BP. Þá hefur Barack
Obama Bandaríkjaforseti notað
olíuslysið til þess að leggja á
það áherslu að Bandaríkjamenn
geti ekki treyst á olíu sem
orkugjafa framtíðarinnar. Olía
gæti aðeins þjónað því hlut-
verki tímabundið en varanleg
lausn á orkuþörf Bandaríkjanna
felist í hreinni orku. Áherslan á
olíuna væri ógn við öryggi
landsins og setti samhliða því
umhverfi þess og efnahag í
hættu.
„Við getum aðeins haldið
slíkri framleiðslu áfram ef hún
er örugg og aðeins ef hún er
hugsuð sem tímabundin lausn á
meðan skipt er yfir í efnahagslíf
sem byggir á hreinni orku,“
sagði Obama.