SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Side 44
44 6. júní 2010
K
atie Melua ætti að vera Íslend-
ingum að góðu kunn og þá ekki
bara fyrir þau lög sín sem heyrast
títt í útvarpi, heldur hefur hún líka
verið iðin við að veita íslenskum blaðamönn-
um viðtöl og hefur meira að segja komið
hingað, einu sinni til tónleikahalds og einu
sinni í kurteisis- og kynningarheimsókn. Í
símaspjalli við hana fyrir stuttu þar sem ætl-
unin var að ræða nýútkomna plötu hennar,
The House, fer viðtalið eiginlega strax útaf
sporinu því hún vill endilega tala um Ísland og
hvað sé þar að gerast. Eftir að ég hef huggað
hana með því að ástandið sé nú ekki alveg eins
slæmt og efnahagshrun og eldgos gætu gefið
til kynna er henni greinilega létt og hún notar
tækifærið til að lýsa þeirri löngun sinni að
halda aðra tónleika á Íslandi og það sem fyrst.
Þegar það er frá er hægt að snúa sér að eig-
inlegu viðtali og fyrsta spurning snýr að þeirri
staðreynd að skífuna nýju, The House, vann
Melua með nýju teymi; í stað lagasmiðsins og
upptökustjórans Mike Batt kom Willam Orbit
sem kemur óneitanlega úr óvæntri átt; þekkt-
astur fyrir raftónlistarkryddaða tónlist og til-
raunakennda.
Melua tekur undir að það hafi verið við-
brigði að vinna með Orbit eftir árin með Batt,
en hún hefur unnið með honum undanfarin
átta ár. „Það er þó ekki svo að við Mike séum
hætt að tala saman,“ segir hún og hlær.
„Hann er enn umboðsmaður minn og góður
vinur og gefur plötuna mína út. Það var bara
kominn tími til að prófa eitthvað nýtt ef ég
ætlaði að bæta mig sem listamaður og ég var
meira að segja búin að segja öllum hvað stæði
til þegar Pictures kom út,“ en svo heitir þriðja
breiðskífa Katie Melua sem kom út 2007.
Á fyrstu plötu Melua átti hún tvö lög og lög-
unum hennar hefur fjölgað smám saman og á
The House vill svo til að hún semur öll lögin
nema eitt, alla jafna í samvinnu við ýmsa
lagasmiði, en tvö laganna semur hún ein síns
liðs. Textarnir á plötunni eru líka öllu per-
sónulegri en á fyrri skífum og hún játar því
fúslega að til að byrja með hafi það verið glíma
að setja þá saman, ekki síst fyrir það að hún
væri að gefa meira af sér, eins og hún orðar
það, hleypa fólki nær sér, en hún hefur gert
hingað til. „Það er erfitt að byrja að segja frá
innstu hugrenningum, en þegar maður er
byrjaður þá er það ekki svo erfitt svo fram-
arlega sem maður gætir þess að vera heið-
arlegur.“
Út í
óvissuna
Á nýrri plötu söngkonunnar Katie Melua kveður við
nýjan hljóm. Í viðtali við Morgunblaðið segir hún að
það hafi verið tími til kominn að prófa eitthvað nýtt.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Söngkonan Katie
Melua segir að
mestu skipti að
vera heiðarlegur.
Fyrirtækið Oscilloscope sem er í eigu Adams
Yauch úr Beastie Boys er nú að leggja loka-
hönd á heimildarmynd um beat-skáldið Willi-
am S. Burroughs. Myndin sem heitir William
S. Burroughs: A Man Within segir frá ævi
þessa goðsagnakennda beat-skálds sem dó
árið 1997. Burroughs skrifaði bókina Naked
Lunch árið 1959 og vann einnig með Kurt
Cobain að plötunni The „Priest“ They Called
Him. Tónlistarmenn á borð við Iggy Pop,
Patti Smith, Thurston Moore, Lee Ranaldo
úr Sonic Youth koma fram í myndinni sem
frumsýnd verður 12. júní.
Adam Yauch gerir
mynd um beat-skáld
Beat-skáldin Allen Ginsberg, Philip Whalen
og William S. Burroughs.
Stereolab er ekki komin úr fríi þó að ný
plata sé væntanleg seinna í ár.
Aðdáendur hljómsveitarinnar Stereolab geta
tekið gleði sína á ný því sveitin hefur tilkynnt
að ný plata sé væntanleg í nóvember og hef-
ur hún fengið nafnið Not Music.
Í apríl á síðasta ári tilkynntu meðlimir
sveitarinnar að þau væru á leið í ótímabund-
ið frí frá tónlist til að sinna öðrum verk-
efnum. En stuttu áður náði plata þeirra
Emperor Tomato Ketchup ofarlega á lista
Amazon.com yfir hundrað bestu indí-plötur
allra tíma. Fréttirnar þurfa þó ekki endilega
að þýða að fríi sveitarinnar sé lokið því efnið
á væntanlegri plötunni var tekið upp á sama
tíma og platan Chemical Chords sem kom út
fyrir nokkrum árum.
Ný plata, gamalt
efni frá Stereolab
Ætli það séu ekki liðin um það
bil 12 ár frá því að ég heyrði
mitt fyrsta lag með sænsku
indí-hljómsveitinni Bob Hund í
stofunni hjá félaga mínum í
vesturbænum. Eftir að hafa
heyrt þetta fyrsta lag hófst leit
að meira efni með sveitinni.
Lítið var til í plötubúðum hérna heima og
ákveðin hræðsla við að panta í gegnum
internetið stoppaði þær tilraunir. En
stuttu seinna fannst loksins uppspretta af
Bob Hund plötum í kjallara plötubúðar í
hliðargötu einni í Kaupmannahöfn og
varð breiðskífan Omslag: Martin Kann
sú fyrsta sem fjárfest var í.
Sveitin var sett á laggirnar haustið 1991
í Stokkhólmi af þeim Thomas Öberg, Jo-
hnny Essing, Conny Nimm-
ersjö, Mats Hellquist, Jonas Jo-
nasson og Mats Andersson og er
Omslag önnur breiðskífa Sví-
anna.
Á Omslag hefur hljómur
sveitarinnar aðeins breyst frá
fyrri plötum. Má kannski segja
að hann sé orðið örlítið fágaðri, en á sama
tíma er hann háværari en áður. Lögin eru
drifin áfram af skemmtilega poppuðum
gítarleik, hröðum bassa og hljóðgervlum
sem eru eitt helsta einkenni sveitarinnar
ásamt rödd Thomas Öberg sem að sjálf-
sögðu syngur allt á sænsku. Platan er for-
vitnileg blanda af hávaða og poppi sem
gerir það að verkum að lög eins og
„Förträngda Problem“ og „Düsseldorf“
eru frábærlega fjölbreytt og á köflum út
um allar trissur, tónlistarlega séð. Það er
ekki hægt að skrifa um Omslag án þess
að minnast á ballöðuna „Upp, Upp, Upp,
Ner,“ en hver hlustun á því yndislega lagi
fær hárin til að rísa og gæsahúðin sprett-
ur fram á fyrstu nótu og helst til loka
lagsins.
Í fyrstu stóð til að gefa plötuna út án
titils. Eftir smá umhugsun fannst með-
limum sveitarinnar að það væri kannski
ekkert sniðugt að gefa út nafnlausa plötu
sem erfitt væri að greina frá eldri út-
gáfum. Var því ákveðið að nefna plötuna í
höfuðið á ljósmyndaranum og hönn-
uðinum Martin Kann sem unnið hefur
með sveitinni í fjölmörg ár.
Matthías Árni Ingimarsson
Poppklassík Bob Hund – Omslag: Martin Kann
...Vildi að ég kynni sænsku
Katie Melua fæddist í Grúsíu en
fluttist til Englands með for-
eldrum sínum átta ára gömul.
Hún sýndi snemma tónlist-
arhæfileika og gekk í tónlistar-
skóla í Croydon í Lundúnum, þar
sem upptökustjórinn Mike Batt
kom auga á hana. það var um það
leyti sem æði fyrir Eva Cassidy
gekk yfir Evrópu og Batt var að
leita að söngkonu sem svipaði til
Cassidy. Hann samdi obbann af
lögunum á fyrstu plötum henn-
ar, stýrði upptökum og mótaði
tónlistina með góðum árangri:
Katie Melua er sjöundi auðugasti
ungi tónlistarmaður Bretlands.
Fjórða plata og fyrsta sólóplatan?
Hin nýja
Eva Cassidy
Tónlist
Á meðan hljómsveitin Modest Mouse undir-
býr sig fyrir tónleikaferðalög í sumar hefur
forsprakki sveitarinnar, Isaac Brock, endur-
vakið sóló-verkefnið sitt Ugly Casanova. Níu
lög frá Ugly Cassanova verða á plötu með
tónlistinni úr heimildarmyndinni 180 Gráður
Suður og kemur platan út 22. júní næstkom-
andi. Það er útgáfufyrirtæki Jack Johnsons,
Brushfire sem gefur út tónlistina úr mynd-
inni sem fjallar um útivistarfólk á Padagonia-
svæðinu í Chile.
Söngvari Modest Mouse hvefur endurvakið
sóló-verkefnið sitt Ugly Casanova.
Nýtt frá Isaac Brock