SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Side 52

SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Side 52
52 6. júní 2010 M ér er það minnisstætt að vestur í bæ, þar sem ég sleit barnsskónum, var hæsta rennibraut á Íslandi. Hún var svo há að ég fékk fiðring í maganum þegar ég sá hana álengdar og það að sitja efst í henni og horfa niður í hyldýpið var eiginlega nóg; stundum langaði mig til að fara aftur niður tröppurnar, það var eig- inlega nóg spenna að horfa og ekki endi- lega þörf á að renna. Það var mér nokkur vonbrigði þegar ég sá rennibrautina aftur þegar ég sneri aftur í Vesturbæinn eftir útlegð í Austurbænum og sá hvað rennibrautin var í raun lítil; hvað var ógnarbrautin sem hér stóð? Síð- ar gerði ég mér grein fyrir því að svo er þetta einmitt með flest það sem maður horfir á frá sjónarhorni barnsins og að minningar um ægileg mannvirki og mikla menn eru kannski ekki svo nákvæmar eftir allt. Ein af skýringum þess hvers vegna gott er að eiga margt í minning- unni og láta vera að velta þeim of mikið fyrir sér. Mikið hefur verið rætt um teiknimynda- fígúruna Tinna í fjölmiðlum undanfarið enda eru menn að deila um hann í Belgíu þar sem Belgi af kongóskum uppruna freist- ar þess að fá bókina Tinni í Kongó bannaða þar sem hún sýni upprunaland hans í háðulegu ljósi. Hér heima hafa menn ekki deilt um Tinna heldur fagnað honum og því að bækurnar um hann, sem Fjölvi gat út á sínum tíma í snilldarþýðingum Lofts Guðmundssonar, eru nú endurútgefnar hjá Forlaginu. Ofangreind saga um rennibrautina miklu rifjaðist upp fyrir mér þegar ég fékk í hendurnar nýju Tinnabækurnar, enda sýndist mér þær í mun minna broti en þær sem Fjölvi gaf út á sínum tíma. Að þessu sinni var það þó ekki minning sem villti fyrir; það gat ég sannreynt á ein- faldan hátt með því að draga fram gamla Tinnabók út safninu og bera saman við þá nýju. Ekki er til nein lögbundin stærð á myndasögubókum, en óneitanlega eru teikningarnar tíkarlegri ekki stærri en þetta. Hergé var meistari þess að segja mikið í fáum strikum og þó Tinnabæk- urnar verði seint kallaðar listaverk vegna teikninganna þá eru þær meistaralega gerðar og þegar búið er að þjappa þeim svo saman dregur eðlilega nokkuð úr áhrifamættinum. Að því sögðu þá er mér minnisstætt er ég leit málverkið Mona Lisa í fyrsta sinn í Louvre-safninu í París. Það fyrsta sem ég hugsaði var „Er þetta allt og sumt?“, enda er myndin ekki stór um sig, 77 sm × 53 sm – kannski fín stærð á Tinnabók. Minni Tinni Orðanna hljóðan Árni Matthíasson arnim@mbl.is ’ Þó Tinna- bækurnar verði seint kallaðar listaverk vegna teikninganna þá eru þær meistaralega gerðar L eikskáldið mikla William Shakespeare lést í apríl 1616 og sjö árum eftir andlát hans gáfu félagar hans og samstarfmenn út safn verka hans, þar af ýmislegt sem birtist í fyrsta sinn. Á þeim tíma virðast menn hafa verið með það á hreinu hver Shakespeare var og hvað hann skrifaði, en undir lok nítjándu aldar tóku ýmsir fræði- og áhugamenn upp á því að draga það í efa að hann hafi í raun skrifað verkin. Þeir sem nefndir hafa verið sem hugsanlegir höfundar leikrita og ljóða Shakespeares eru Francis Bacon, Chri- stopher Marlowe, Edward de Vere og William Stanley svo dæmi séu tekin. Röksemdirnar fyrir því að þeir hafi skrifað verkin eru fjölbreyttar og sumar býsna ævintýralegar, en alla jafna rétt- ara að kalla þær getgátur frekar en rök. Fræðimenn eru líka flestir á því að Shakespeare sé rétt skráður höfundur verkanna: Í könnun New York Times fyrir þremur árum voru ríflega 80% Shakespeare-fræðinga á því að ekki væri ástæða til að efast. Hvað er upprunalegt Þó það sé almennt viðurkennt að Shakespeare hafi skrifað þau verk sem hann er sagður hafa skrifað er fjölmargt óljóst um höfundarverk hans, ekki síst vegna þess að ekki eru til eiginhandar- handrit hans að leikritum eða ljóðum og svo einnig að ekkert var gefið út á meðan hann lifði. Texta- og Shake- speare-fræðingar hafa líka dundað sér við það að rífast um það hvort þessi eða hin hendingin sé upprunaleg, hvaða útgáfa af Hamlet sé „réttust“ og hversu mikið Shakespeare átti í þeim leikritum sem hann á að hafa samið með öðrum. Fyrir nokkrum árum var mikið deilt um erfiljóð sem sumir fræðingar töldu eftir Shakespeare eftir að hafa tölvu- greint textann, talið orð og orða- sambönd og þannig sannað að ljóðið, eins illa samið og það annars var, væri eftir Shakespeare. Þau rök urðu að engu þegar menn loks settust niður og lásu textann rækilega og sáu þá að til- tekin orð í erfiljóðinu voru notuð öðru- vísi en Shakespeare notaði þau, því á þeim tíma voru fleiri afbrigði af ensku máli við lýði en á okkar döpru dögum. Nýtt leikrit! Fyrir stuttu sauð svo uppúr enn og aft- ur þegar Arden, sem er fremst í fræði- legri útgáfu á Shakespeare, gaf út „nýtt“ leikrit eftir skáldið mikla – Double Falsehood, sem mætti kannski snara sem Lygi á lygi ofan. Leikritið sem um ræðir er ekki bein- línis glænýtt í augum Shakespeare- vina, því það bar fyrst á góma 1727 þegar leikskáldið Lewis Theobald, sem frægt var fyrir falsanir, sagðist hafa fundið þrjú handrit að leikriti sem byggt væri á sögu Cervantes af Don Quixote / Dón Kíkóta. Leikritið var svo sett á svið stuttu síðar og þá allbreytt frá upprunalegu handriti, að sögn Theobalds; hann hefði neyðst til að „endurbæta“ leikritið (og þá erfitt að gera sér í hugarlund hversu slæmt það var áður en hann tók til hendinni, því það er óttalegt klastur). Handritin þrjú komust svo aldrei fyrir manna sjónir því þau urðu víst eldi að bráð í þremur ótengdum óhöppum. Samtímamenn Theobalds tóku stað- hæfingar hans ekki trúanlegar og nægir að nefna að í frægri bjánakviðu Alex- anders Pope, Dunciad, er Theobald konungur kjánanna. Að því sögðu þá hafa menn mikið velt því fyrir sér hvort vera mætti að Theobald hefði séð eitt af týndum leikritum Shakespeares, en þau eru nokkur, og skrifað upp eftir minni eða eftir einhverju handriti. Með tímanum hafa svo ýmsir orðið til þess að halda því fram að það sé líklegt að Shakespeare hafi samið Lygi á lygi of- an, nei annars, það er ekki líklegt; það er næsta víst! Eða hvað? Þegar rýnt er í rökin fyrir því að leikritið laka sé eftir skáldið mikla virðast þau helst byggjast á því að sitt- hvað í textanum minni á Shakespeare og þá eins og engum hugkvæmist að Theobald gæti verið að stæla Shake- speare, nokkuð sem hann gerði iðulega. Svonefnd Chandos-mynd af William Shakespeare - líkastil ófölsuð. Lygi á lygi ofan William Shakespeare hefði orðið 446 ára 26. apríl síðastliðinn ef hann hefði lifað. Þó svo langt sé frá því hann samdi leikverk sín og ljóð eru menn enn að rífast um arfleifð hans og þær deilur blossuðu upp fyrir skemmstu þegar birt var „nýtt“ leikrit eftir Shake- speare. Árni Matthíasson arnim@mbl.is Lesbók

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.