SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Side 55

SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Side 55
6. júní 2010 55 S öfnum er ætlað mikilvægt hlutverk í sam- félaginu. Samkvæmt gildandi safnalögum er safn „stofnun, opin almenningi, sem hefur það hlutverk að safna heimildum um manninn, sögu hans, umhverfi og náttúru landsins, standa vörð um þær, rannsaka, miðla upplýsingum og hafa þær til sýnis svo að þær megi nýtast til rannsókna, fræðslu og skemmtunar“. Í safnastarfi er gerður greinarmunur á safni, setri og sýningu, þótt í daglegu tali sé gjarnan talað um „safn“ í öllum tilvikum. Safn eða „museum“, eins og það er nefnt á erlendum tungumálum, hefur víðtækara hlutverk en setur og sýningar þótt starfsemi þeirra sé skyld og sömuleiðis mikilvæg. Söfn, sem gegna hlutverki sínu í samræmi við lög, hljóta viðurkenningu safnaráðs. Á Íslandi eru yfir fimmtíu viðurkennd söfn. Setur hafa ekki lög- bundið hlutverk á sviði varðveislu, en þar er miðl- un og fræðslu sinnt. Á sýningum fer fram fjöl- breytt miðlun sem iðulega leiðir til umræðu um margvísleg málefni. Í siðareglum Alþjóðaráðs safna, ICOM, er lögð áhersla á að söfn skuli ekki rekin til ágóða heldur til menntunar, ánægju og til þjónustu við samfélagið. Hlutverk safna í samtím- anum er mikilvægt, en söfn eru ekki stundarfyr- irbrigði heldur snýst starfsemi þeirra ekki síður um framtíðina, því þeim er ætlað að varðveita sinn safnkost svo hann verði aðgengilegur komandi kynslóðum. Þjóðminjasafn Íslands er höfuðsafn á sviði þjóð- minjavörslu og hefur forystu um mótun safna- stefnu á sviði þjóðminjavörslu. Auk Þjóðminja- safnsins starfa tvö önnur höfuðsöfn á Íslandi, Listasafn Íslands og Náttúruminjasafn Íslands. Safnastefnan er mikilvægt leiðarljós í starfsemi safna þar sem áherslur eru skilgreindar. Á næstu árum er brýnt að efla samvinnu safna, og stefna að því að sameina söfn og safnatengda starfsemi þar sem það á við. Æskilegt getur verið að setur og sýningar hafi formleg tengsl við viðurkennd söfn, til þess að árangur starfseminnar verði sem bestur og áhrif samvinnu gagnleg öllum hlutaðeigandi aðilum. Þannig má styrkja og þétta söfnin, og efla faglega þætti safnastarfs svo að saman fari; söfn- un, varðveisla, rannsóknir og miðlun. Á síðustu áratugum hefur starfsemi safna tekið miklum framförum og fjölbreytni starfseminnar aldrei verið meiri. Þar koma til ýmsir þættir, svo sem vel menntuð og fjölhæf stétt safnmanna, metnaður stjórnvalda og áhugi almennings. Frumkvæði safnmanna og árangur þeirra er einn mikilvægasti drifkrafturinn í safnastarfi á Íslandi. Mörg íslensk söfn hafa hlotið viðurkenningar hérlendis sem erlendis. Þjóðminjasafn Íslands hlaut sérstaka viðurkenningu Evrópuráðs safna (European Museum Forum) eftir endurbætur þess og opnun árið 2004 og tilheyrir það nú flokki við- urkenndra safna í Evrópu (Best in Heritage – Gro- up of Excellence). Áður hafði Síldarminjasafn Ís- lands hlotið viðurkenningu ráðsins í flokki atvinnusögusafna. Slíkar viðurkenningar eru mikilvæg hvatning safnafólki á Íslandi og hafa sannarlega beint athyglinni að vönduðu starfi safna um allt land. Íslandsdeild ICOM og Félag ís- lenskra safna og safnmanna standa að íslensku safnaverðlaununum sem veitt eru annað hvert ár. Á alþjóðlega safnadaginn 18. maí sl. var tilkynnt um tilnefningar til íslensku safnaverðlaunanna 2010. Í ár bárust meira en sjötíu ábendingar og eru þrjú söfn tilnefnd til safnaverðlaunanna 2010. Það eru Byggðasafn Skagfirðinga í Glaumbæ, Heimilis- iðnaðarsafnið á Blönduósi og Nýlistasafnið í Reykjavík. Verðlaunin verða veitt á Bessastöðum á íslenska safnadaginn 11. júlí í sumar. Allt eru þetta söfn, þar sem unnið hefur verið mikilsvert faglegt og skapandi brautryðjendastarf. Söfn eru kjarni menningarstarfs í hverjum landshluta og mikilvægur þáttur í menntun og ferðaþjónustu. Í allt sumar, þar á meðal á íslenska safnadaginn þann 11. júlí, gefst landsmönnum tækifæri til þess að heimsækja söfnin í landinu, þar sem blómleg og skemmtileg starfsemi verður í boði. Nú á tímum nýrra tækifæra er mikilvægt að huga að auðæfum sem felast í menningararfinum til nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar um allt land. Því er nauðsynlegt að almenningur og stjórnvöld hlúi að söfnunum og stuðli með því að varðveislu menningararfsins, nýrri þekking- arsköpun, betri skilningi og miðlun í nútíð og framtíð. Sjá nánar á www.thjodminjasafn.is, www.safnarad.is, www.icom.is og www.safn- menn.is. Söfn, setur og sýningar á Íslandi Í bátahúsinu í Síldarminjasafninu á Siglufirði er endursköpuð stemning síldarhafna seinustu aldar. Morgunblaðið/Golli Þankar um þjóðminjar Margrét Hallgrímsdóttir ’ Hlutverk safna í samtím- anum er mikilvægt, en söfn eru ekki stundarfyrirbrigði heldur snýst starfsemi þeirra ekki síður um framtíðina. LISTASAFN ÍSLANDS ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Sögustaðir - Í fótspor W.G. Collingwoods Myndir Einar Fals Ingólfssonar og W.G. Collingwoods Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík Klippt og skorið – um skegg og rakstur Endurfundir – Fornleifasýning fyrir alla fjölskylduna! Skemmtileg safnbúð og Kaffitár! Opið alla daga 10-17. Aðgangur ókeypis fyrir börn. www.thjodminjasafn.is – s. 530 2200 Söfnin í landinu Sýningar til 20. júní Staðir - Friederike von Rauch Það er erfitt að vera listamaður í líkama rokkstjörnu - Erling T.V. Klingenberg Sunnudag 6. júní kl. 15 - Síðdegisdjass í kaffistofu Opið 12-17, fimmtudaga 12-21, lokað þriðjudaga www.hafnarborg.is sími 585 5790 Aðgangur ókeypis AÐ ÞEKKJAST ÞEKKINGUNA 15 samtímalistamenn Umræðudagskrá lau. 5. júní kl. 15 Kaffistofa – leskró Barnahorn OPIÐ: alla daga. kl. 12-18 AÐGANGUR ÓKEYPIS www.listasafnarnesinga.is Hveragerði ÓNEFND KVIKMYNDASKOT, Cindy Sherman 16.5. - 5.9. 2010 Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík, 2010 Sunnudagsleiðsögn kl. 14 í fylgd Dagnýjar Heiðdal listfræðings. ÁFANGAR, verk úr safneign 16.5. 2010 - 31.12. 2012 EDVARD MUNCH 16.5. - 5.9. 2010 SAFNBÚÐ FERMINGAR- OG ÚTSKRIFTARTILBOÐ á listaverkabókum. Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600 OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga. Allir velkomnir! www.listasafn.is ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir. ÍSLAND::KVIKMYNDIR 1904-2009. Þróun kvikmyndagerðar á Íslandi. Um 100 íslenskar kvikmyndir, sem hægt er að skoða í fullri lengd. „Íslendingar“. Ljósmyndasýning Sigurgeirs Sigurjónssonar og Unnar Jökulsdóttur. Þjóðarsálin fönguð í myndum og texta. Þjóðin og náttúran. Íslensk dýralífsmynd fyrir börn og fullorðna. Mynd- gerð: Páll Steingrímsson. Í ljósi næsta dags. Sýning um þýðingarstörf, skáldverk og baráttumál Sigurðar A. Magnússonar, rithöfundar. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík Opið daglega kl. 11.00 -17.00. www.thjodmenning.is Listasafn Reykjanesbæjar Efnaskipti/Metabolism: Anna Líndal, Guðrún Gunnarsdóttir, Hildur Bjarnadóttir, Hrafnhildur Arnardóttir, Rósa Sigrún Jónsdóttir. Sýningin er á dagskrá Listahátíðar Byggðasafn Reykjanesbæjar Bátasafn Gríms Karlssonar Opið virka daga 11.00-17.00 helgar 13.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn VÍKINGAHEIMAR Skipið Íslendingur og sögusýning - Söguleg skemmtun VÍKINGABRAUT 1 - REYKJANESBÆ Opið alla daga frá 11:00 til 18:00 Sími 422 2000 www.vikingaheimar.com info@vikingaheimar.com

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.