SunnudagsMogginn - 20.06.2010, Síða 4
4 20. júní 2010
Ekki hafa aðeins verið skiptar skoðanir um hljóðfæri
Heimsmeistaramótsins, vuvuzela-lúðurinn, heldur
greinir menn einnig á um ágæti HM-boltans. Boltinn í
ár hefur fengið nafnið Jabulani sem á Zulu-
tungumálinu þýðir fögnum en leikmenn kalla hann
frekar ógæfu sín á milli. Það er Adidas sem hannar
boltann en áætlað var að búa til bolta sem myndi
þola mikinn hitamun, vatn og sólskin, væri nothæfur
í hvaða lofthæð sem er, vatnsheldur og saumlaus.
Þannig eru t.d. á ytra byrði hans fíngerðar rákir sem
nefnast Grip n’ Groove og eiga að tryggja að auðveld-
ara sé fyrir markmenn að grípa boltann.
Margir telja hins vegar að þessi ætlun Adidas hafi
ekki tekist og hafa leikmenn á köflum átt í mesta
basli með boltann. Brasilíski leikmaðurinn Luis Fa-
biano er einn þeirra sem hafa lýst undrun sinni yfir
boltanum. Hann segir að svo virðist sem boltinn vilji
ekki láta sparka í sig, eins og eitthvert yfirnátt-
úrulegt afl vaki yfir honum. Bandaríski markvörð-
urinn Marcus Hahnemann hefur einnig gagnrýnt bolt-
ann sem hann segir vera á of mikilli hreyfingu og
aldrei sé í raun hægt að vita hvert hann fari. Þá hefur
Diego Maradona að hluta til kennt boltanum um
slakan árangur liðs síns og hefur beint því til skipu-
leggjanda að vanda verði betur til verka við gerð HM-
boltans.
Það er ekkert nýtt að kvartað sé yfir HM-boltanum
en gagnrýnin virðist háværari í ár þar sem boltinn
þykir óvenju óútreiknanlegur og erfiður í meðförum.
Enginn virðist í raun vita af hverju en hönnuðir hjá
Adidas vilja að mestu kenna þunna loftinu í Suður-
Afríku um það hversu erfitt sé að leika með boltann.
Óútreiknanlegur bolti
Vandræðagripur Jabulani-boltinn þykir frekar valda
ógæfu en fögnuði meðal leikmanna.
S
íðustu daga hafa fótboltaaðdáendur
fylgst spenntir með leikjum Heims-
meistaramótsins í knattspyrnu sem nú
er haldið í Suður-Afríku. Margir veit-
ingastaðir bjóða fótboltatilboð á ýmsum mat til
að enginn þurfi að elda og veðrið hefur verið
sæmilega skýjað svo engum hefur fundist hann
vera að svíkjast um þó hann nýtti ekki góða
veðrið til að slá grasið eða sóla sig á svölunum.
Aðstæður hafa því verið góðar en þó er eitt sem
hefur gert aðdáendurna gjörsamlega brjálaða
og það er suðið. Suðið sem berst úr sjónvarpinu
og líkist einna helst hávaðanum í ógurlegu
flugnageri á leið til árásar. Hljóðið sem svo
framkallast í sjónvörpum fólks víða um heim
berst úr hinum suður-afríska vuvuzela-lúðri.
Lúðurinn er ósköp sakleysislegur að sjá og
skapar vissulega stemningu fyrir þá sem sitja á
pöllunum en gerir lítið annað en að valda höf-
uðverk sjónvarpsáhorfenda víða um heim.
Lúðraþyturinn hefur verið margumræddur
síðustu daga og sumir hafa einfaldlega slökkt á
sjónvarpinu eða tekið hljóðið af. Hljóðið ærir
líka leikmenn, þjálfara og starfsmenn sjón-
varps- og útvarpsstöðva sem hafa kvartað og
segja nær ógerlegt að tala saman á vellinum. Þó
eru litlar líkur á að lúðrarnir muni þagna en
Danny Jordaan, framkvæmdastjóri heims-
meistarakeppninnar í fótbolta í Suður-Afríku,
segir að ekki komi til greina að banna vuvu-
zela-lúðrana á leikjum keppninnar, nema þeir
verði notaðir til annars en að blása í þá. Undir
það tekur Sepp Blatter, forseti Alþjóða knatt-
spyrnusambandsins, sem segir lúðurinn hluta
af menningu hinna suður-afrísku gestgjafa og
því sé lítið hægt að gera. Hljóðstyrkur lúðurs-
ins hefur verið mældur 127 desíbil en með nýrri
gerð með endurbættu munnstykki ku dregið
úr styrknum um 20 desíbil. Vuvuzela-
lúðrinum er líkt við trompet en sá sem í hann
blæs opnar og lokar vörunum í sífellu og sendir
þannig loft niður hólkinn sem myndar hljóðið.
Hægt er að leika fallega á hljóðfærið en fót-
boltaaðdáendur þykja ekki ætíð bestu lúðra-
leikarnir og hefur það komið slæmu orði á lúð-
urinn.
Þó flestir vilji losna við lúðrana af vellinum
er ekki annað hægt að segja en að framleiðsla
þeirra hafi haft jákvæð áhrif á atvinnulíf í land-
inu. Á heimasíðu Heimsmeistaramótsins kem-
ur fram að lúðurinn hafi orðið svo vinsæll á
fótboltaleikjum að árið 2001 hafi fyrirtækið
Masincedane Sport verið sett á fót eingöngu til
að fjöldaframleiða lúðrana í hinum ýmsu litum
og merkta ólíkum fótboltafélögum.
Einn
beint á
lúðurinn
Vuvuzela ærir
fótboltaáhorf-
endur heims
Blásið til leiks Vuvuzela-lúðurinn er líka vinsæll í Brasilíu þar sem þessi mynd var tekin við upphaf mótsins.
ReutersVikuspegill
María Ólafsdóttir maria@mbl.is
Hávaði Boris Johnson, borgarstjóri London,
stóðst ekki mátið í heimsókn sinni til Cape Town.
Reuters
Klúður Lúðraómurinn er óvinsæll enda truflar
hann bæði áhorfendur, leikmenn og dómara.
Reuters
Vuvuzela-lúðrarnir eru
vinsælir meðal suður-
afrískra fótboltaaðdá-
enda en daginn sem
tilkynnt var að Heims-
meistaramótið 2010
yrði haldið í Suður-
Afríku seldu götusal-
ar um 20.000 lúðra á
einu bretti. Hljóðið úr
þeim í sjónvarpinu er
hins vegar ærandi fyr-
ir flesta, jafnt leik-
menn sem áhorf-
endur, og minnir
helst á hljóðið í
flugnageri í árás-
arhug.
Metsala á
lúðrum