SunnudagsMogginn - 20.06.2010, Blaðsíða 30

SunnudagsMogginn - 20.06.2010, Blaðsíða 30
30 20. júní 2010 D ýrafjarðarræða Jóhönnu verður sjálf- sagt nokkuð lengi í minnum höfð. Reyndar kemur svo sem engin minn- isstæð ræða frá henni upp í hugann. Sjálfsagt er hægt að telja forsætisráðherranum sitt- hvað til tekna, en ræðuskörungur er hún naumast talin. Flestir þeir sem flutt hafa margar ræður um dagana eiga sína hortitti sem þeir vildu gjarnan gleyma. Oftar skjótast þeir fremur upp í óskrif- uðum ræðum en þrælunnum hátíðarræðum, sem margir hafa lesið yfir. Og þeir eru mjög misóheppi- legir. Á 17. júní, á Austurvelli er einkar kauðskt að upplýsa að hvorki forsætisráðherrann sjálfur né ráðuneyti hans þekktu fæðingarstað Forsetans, af- mælisbarns dagsins, sjálfstæðishetjunnar sjálfrar. Þetta var svo afburða klaufalegt að jafnvel ungling- ar á Austurvelli fóru hjá sér. En þó flokkast atvikið ekki undir meiri háttar slys. Vont en annað verra En það gerir hitt óhappaatvik dagsins hins vegar. Sú gjörð utanríkisráðherrans, sem með þegjandi samþykki ríkisstjórnarinnar knúði á um að mál Ís- lands gagnvart Evrópusambandinu væri tekið til afgreiðslu á þjóðahátíðardegi Íslendinga, var í senn smekkleysa og ósvífni. Þar eiga við orð eins þekkt- asta utanríkisráðherra sögunnar, Talleyrands: Þetta var ekki glæpur, þetta var verra en glæpur, þetta var heimska. Hráskinnaleiknum um Evrópusambandsaðild þarf að ljúka. Hann hófst á sögulegum svikum. Hann er byggður á fölskum forsendum. Þær voru undirstrikaðar enn á ný þann 17. júní síðastliðinn. Aðildarviðræðurnar snúast ekki um „hvað Íslend- ingar geti fengið“ eins og látið var. Þær snúast ein- vörðungu um hversu fljótt Íslendingar geta lagað sig að reglum sambandsins. Talsmenn Evrópusam- bandsins hafa ekki farið í neinar felur með þá stöðu. Hvers vegna skyldu þeir gera það? Hún liggur á borðinu og hún liggur í augum uppi. En talsmenn íslensku þjóðarinnar kjósa hins vegar farveg falsana og ósanninda af því þeir óttast rétti- lega að leið sannleikans sé þeim kirfilega lokuð. Það voru mikil vonbrigði að sjá hvernig formaður samninganefndar Íslands, embættismaður í utan- ríkisráðuneytinu, kaus að haga orðum sínum, eftir að fréttirnar bárust frá Brussel. Embættismaðurinn virðist telja að honum sé óhætt að miða trúverð- ugleikastig sitt við það sem gildir um yfirmanninn, utanríkisráðherrann. Enginn embættismaður hins íslenska stjórnkerfis getur leyft sér að setja markið svo lágt vilji hann halda í þó ekki væri nema bút af æru og virðingu. Fréttir allra þeirra erlendu fjöl- miðla sem um málið fjalla af einhverri alvöru og þunga bera með sér að ranglega er frá málum skýrt af hálfu hins íslenska embættismanns. Jafnvel þar sem þeir vitna beint í orð hans sjálfs má berlega sjá, að hann svarar þar öðru vísi en gagnvart „heima- markaðnum“. Þetta er mjög dapurlegt að sjá, en því miður í góðu samræmi við allan annan mála- tilbúnað í málinu. Skrítið viðtal Vegna samþykktar ESB hafði Mbl.is allítarlegt við- tal við Össur Skarphéðinsson. Það var skrítið viðtal og næstum því óþægilegt aflestrar. Ráðherrann talaði eins og upp úr nokkurra ára gömlum áróð- ursbæklingi Evrópusambandsins. Þar fór hann ekki bara fjarðavillt eins og foringinn í forsæt- isráðuneytinu heldur öfugt og afturábak með allt sem nú er að gerast í Evrópu. Þess vegna hlaut áróðursbæklingurinn sem hann las upp úr að vera orðinn gamall og snjáður, því sambandið sjálft myndi ekki í dag láta öll þau öfugmæli frá sér fara. Efnahagur fjölmargra ESB- og evruríkja er á brauðfótum. Kenningar um að hin sameiginlega mynt myndi tryggja sameiginlegan styrk eru á fót- um sömu gerðar. Háværar kröfur eru um að skerða verði það velferðarstig sem stjórnmálamenn töldu sig hafa tryggt í álfunni. Atvinnuleysi er komið yfir 20 prósent í einstökum löndum og ungt fólk býr við allt að 40 prósent atvinnuleysi. Ungdómur Evrópu er því í senn vonlaus og vonsvikinn. Stuðningur við evruna fer þverrandi í aðildarlönd- unum og víðast kominn meirihluti fyrir því að leggja hana af og taka hinar gömlu heimamyntir upp á ný. Evrópufræðingar, sem svo eru kallaðir, benda hins vegar á, með öðru orðalagi þó, að leið- togar Evrópu hafa aldrei gert neitt með afstöðu fólksins í einstökum Evrópulöndum. Því sé álit þess ekki í raun alvarleg hættumerki fyrir gjald- miðilinn. Óviðráðanlegur vandi En öðru er erfiðara að horfa fram hjá. Þannig hefur Seðlabanki Evrópu þegar varið 47 milljörðum evra til kaupa á skuldabréfum á Grikkland, Portúgal og Írland. Þjóðverjar halda því fram að franskir bank- ar hafi notað tækifærið og dengt slíkum bréfum yf- ir á seðlabankann, á meðan þýskir bankar hafi látið sig hafa það að halda sínum pappírum í samstöðu- skyni. Þetta sé skrítin framkoma og sýni litla tryggð á sama tíma og frönsk yfirvöld hamra á þýskum með áskorunum um að þau taki þátt í björgunaraðgerðum vegna evrunnar. En svo vondar sem þessar deilur eru og önnur merki um sundrungu á svæðinu er hitt verra að matsfyr- irtækið Fitch segir þessa 47 milljarða evra sem not- aðir hafa verið í uppkaupin aðeins dropa í hafið. Hundruð milljarða evra þurfi að koma til svo kerfið hrynji ekki. Slíkar fjárhæðir vilja þýskir ekki sam- þykkja, hvorki stjórnmálamenn í Berlín, né þeir sem sitja í bankastjórninni í Frankfurt. Í ljósi alls þessa eru ummæli íslenska utanríkisráðherrans furðuleg og fjarstæðukennd. Vel má vera að hann viti ekki betur. Sé svo er hann örugglega eini utan- ríkisráðherrann í hinum vestræna heimi sem er Reykjavíkurbréf 18.06.10 Dýrara en Dýrafjörður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.