SunnudagsMogginn - 20.06.2010, Blaðsíða 6

SunnudagsMogginn - 20.06.2010, Blaðsíða 6
6 20. júní 2010 Kobe Bryant var aðeins 17 ára gamall þegar gerði samning við Los Angeles Lakers árið 1996. Hann gekk til liðs við liðið strax eftir menntaskóla. Bryant hafði verið stjarna í Lower Merion- skólanum í Pennsylvaníu, sló met sem Wilt Chamberlain hafði sett þegar hann spilaði fyrir Overbrook-menntaskólann í sama ríki. Þjálfari Bryants í Lo- wer Merion skólanum sagði að hann gæti hæglega orðið jafnoki Michaels Jordans. Kobe Bean Bryant fæddist 23. ágúst 1978. Faðir hans, Joe Bryant, var í NBA í átta ár og lék síðan á Ítalíu og í Sviss í átta ár. Bryant ákvað að fara ekki í háskóla, heldur beint í NBA, líkt og Kevin Garnett árið áður. Bryant varð þrívegis meistari ásamt Shaquille O’Neal árin 2000 til 2002 og nú hefur hann unnið titilinn tvö ár í röð. Enginn leikmaður Lakers hefur skorað fleiri stig en hann. 2006 skoraði hann 81 stig í leik og hefur að- eins Chamberlain gert betur, 100 stig í einum og sama leikn- um. Bryant vann gullverðlaun með bandaríska landsliðinu á ól- ympíuleikunum 2008. Glæstur körfuboltaferill Bryant í búningi Lower Merion-menntaskólans. Reuters Þ egar lokaflautan gall valhoppaði Kobe Bryant um völlinn ær af fögnuði, fimmti meistaratitillinn var í höfn. Hann hafði gert lítið úr því að lokarimman í NBA væri við erkióvininn, Boston Celtics, sem oftar en ekki hefur lagt stein í götu Los Angeles Lakers. Fyrir þessa rimmu höfðu liðin mæst 11 sinnum og Lakers aðeins unnið tvisvar. Einu gilti um fortíð- ina, sagði Bryant, engu skipti hvort andstæðing- arnir væru Celtics eða eitthvert annað lið. En þegar hann var spurður hvort þessi titill hefði skipt meira máli en fyrri titlar vegna rígsins á milli Lakers og Celtics og nú hefði hann getað hefnt fyr- ir ósigurinn gegn Celtics í úrslitunum 2008 sagði hann: „Ég var að ljúga að ykkur [um ríginn við Celtics]. Þegar stundin rennur upp verður að ýta slíku til hliðar, annars tapar maður sér í látunum, spilar ekki sinn besta körfubolta. En þið vitið hvað ég þekki leikinn vel. Ég þekki hverja einustu úr- slitaviðureign Lakers. Ég var með Lakers á heil- anum og þekki hverja einustu rimmu við Celtics, þekki alla tölfræðina. Þetta skipti mig öllu máli, en ég gat ekki einblínt á það, ég varð að einbeita mér að því að spila.“ En það var ekki bara sigurinn á Boston sem var sætur. Þegar hann var spurður hvaða þýðingu tit- illinn hefði svaraði hann: „Bara að nú er ég með einum fleiri titla en Shaq,“ sagði hann og átti við Shaquille O’Neal, sem hann vann þrjá titla með hjá Lakers. „Ég get lagt það inn á reikninginn. Þið vit- ið hvernig ég er. Ég gleymi engu.“ Hann man þá sennilega líka að nú er hann kominn með jafnmarga titla og Magic Johnson, sem gerði Lakers að stórveldi á níunda áratug liðinnar aldar, og vantar einn meistaratitil til að jafna titlafjölda Michaels Jordans. Á fimmtudagskvöldið tók Bryant við verðlaununum úr hendi Bills Russells, stjörnu Celtics á sjöunda áratugnum. Það er þó ekki víst að rifjast hafi upp fyrir Bryant að Russell vann 11 titla á árunum 1957 til 1969. Ýmsir leikmenn Los Angeles Lakers svöruðu kall- inu í viðureigninni við Boston, hinn óþreytandi Derek Fisher, katalóninn Pau Gasol, hinn óút- reiknanlegi Ron Artest. En án Bryants hefði liðið aldrei orðið meistari. Í viðureigninni við Boston skoraði Bryant 28,6 stig að meðaltali, tók átta frá- köst og gaf 3,9 stoðsendingar. Hann var útnefndur maður úrslitakeppninnar og átti það fullkomlega skilið. Til að verða meistari þarf fjóra sigra og það þurfti sjö leiki til að útkljá viðureigina milli Los Angeles og Boston. Bryant hefur í áranna rás mátt heyra að hann væri ekki leiðtogi, hann væri sjálfselskur og eigingjarn og sundraði liði sínu frekar en að sam- eina það. Hafi þessi gagnrýni einhvern tímann átt rétt á sér hefur Bryant nú rekið af sér slyðruorðið. Stundum tók hann völdin á vellinum, en stundum sýndi hann að hann gat treyst félögum sínum og þá gekk liðinu best. Gott dæmi um þetta kom undir lok úrslitaleiksins. Lakers voru með þriggja stiga forskot. Bryant gat tekið tveggja stiga skot, en ákvað að gefa á Artest, sem var galopinn rétt fyrir utan þriggja stiga lín- una. Artest lét skotið ríða af, skoraði þrjú stig og munurinn var orðinn sex stig. „Hann treysti okk- ur og lét okkur líða svo vel,“ sagði Artest eftir leikinn. „Og hann gaf boltann á mig. Hann gefur boltann aldrei á mig og hann gaf boltann á mig. Kobe gaf boltann á mig og ég skoraði þrist.“ LA Lakers eru stórveldi Bryants Sigurinn á Boston í sjö leikjum var sætur fyrir fyrirliðann Úrslitaleikurinn var mjög harður og verða engin fegurðarverðlaun veitt fyrir hann. Hér er Kobe Bryant á leiðinni í gólfið í baráttunni um boltann. Reuters Kobe Bryant hjá LA Lakers hampar verðlaununum fyrir að vera besti leikmaður úrslitaviðureignarinnar. Reuters Vikuspegill Karl Blöndal kbl@mbl.is „Við vildum það meira,“ sagði Jerry Buss, eigandi LA Lakers eft- ir að lið hans hafði orðið meistari í 16 skipti, og greip til þekktustu klisju íþróttanna. Ekkert er hins vegar hefðbundið við Ron Artest, hvorki innan vallar né utan. Hann lék lykilhlutverk í sigri Lakers í sjöunda leiknum og eftir leikinn sagði hann: „Ég vil þakka geð- lækninum mínum.“ Ég vil þakka geðlækninum mínum www.noatun.is Nóatúni Nýttu þér nóttina í Verslanir Nóatúns eru opnar allan sólarhringinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.