SunnudagsMogginn - 20.06.2010, Blaðsíða 8
Síst mun ofmælt að dómur Hæstaréttar í
máli Jóhanns Rafns Heiðarssonar gegn Lýs-
ingu marki kaflaskil. Myntkörfulán eins og
margir tóku, til dæmis til bílakaupa, þegar
gengi íslensku krónunnar var hagstætt
gagnvart erlendri mynt voru ekki heimil lög-
um samkvæmt að mati dómsins. Því eru
fjármögnunarfyrirtækin í vondum málum.
Samkvæmt tölum Seðlabankans námu
gengisbundin lán heimila, fyrirtækja og
annarra 885 milljörðum króna um sl. ára-
mót. Við hrun bankakerfisins í október
2008 námu þessar skuldir 2.855 millj-
örðum og helgast lækkunin af því að búið
var að afskrifa mikið eða breyta lánunum í
íslenskar krónur.
Þetta er í annað sinn sem dómsmál er
tengjast bílum á Akureyri valda straum-
hvörfum í réttarsögunni. Sumarið 1984 var
Jón Kristinsson rakari stöðvaður af lög-
reglu fyrir að hafa ekki virt stöðvunarskyldu
á gatnamótum Byggðavegar og Þingvalla-
strætis á Akureyri. Lögregla tók skýrslu af
Jóni og fulltrúi sýslumanns tók síðan við
málinu og dæmdi í því undir lok ársins.
„Málinu virtist lokið og ekki seinna vænna,
svo ómerkilegt sem það sýndist vera,“ seg-
ir í ritinu Ísland í aldanna rás.
Jón og Eiríkur Tómasson lögmaður hans
ákváðu hins vegar að áfrýja málinu því
rannsókn þess hefði verið áfátt og dómari
hefði ekki verið hlutlaus. Á það féllst
Hæstiréttur ekki og leituðu lögmaðurinn og
skjólstæðingur hans því til Mannréttinda-
dómstóls Evrópu. Dómurinn ákvað að taka
málið fyrir en áður en til þess kom kippti
ríkisstjórnin að sér hendinni og lagði fram
lög um aðskilnað dóms- og umboðsvalds í
héraði. Í krafti þess var dómarahlutverkið
tekið af sýslumönnum og fulltrúum þeirra
og fært til sjálfstæðra dómstóla. Einfalt
umferðarlagabrot ökumanns bíls á Akureyri
varð til þess að bylta varð réttarkerfinu.
Maðurinn sigraði ríkið rétt eins og bíleig-
andinn Jóhann Rafn Heiðarsson á Akureyri
hefur lagt fjármögnunarfyrirtækin að velli.
Þess má geta að nú um helgina eru Bíla-
dagar haldnir á Akureyri.
Akureyrarmálin veltu þungu hlassi
Á Akureyri haustið 2008 þegar afhjúpaður var minnisvarði um meint brot Jóns Kristinssonar
sem varð til þess að réttarskipaninni var breytt. Jón, sem er fyrir miðri mynd, lést á sl. ári.
Morgunblaðið/Skapti
8 20. júní 2010
H
vernig Lýsing fór fram í þessu máli var
einfaldlega tilraun til þjófnaðar. Mér
var sagt ósatt og mér sendir reikn-
ingar sem áttu sér enga stoð í raun-
veruleikanum. Ég var reiður og fannst því ekki
annað koma til greina en halda þessu máli til
streitu. Fara með það fyrir dómstóla þar sem úr
yrði skorið hvor málsaðila hefði réttinn sín megin
eins og nú liggur fyrir svart á hvítu,“ segir Jóhann
Rafn Heiðarsson á Akureyri.
Á miðvikudag kvað Hæstiréttur upp úrskurð í
tveimur sambærilegum málum sem snúa að svo-
nefndum myntkörfulánum. Dómurinn kemst að
þeirri niðurstöðu að slík lán hafi verið óheimil,
þ.e. að bannað sé að lán séu verðtryggð með teng-
ingu við gengi krónunnar. Sú tenging varð til þess
að hækka höfuðstól lánanna til muna svo skulda-
byrði og afborganir urðu fjölda fólks þrautin
þyngri.
Jóhann Rafn keypti Galloper-jeppa með 650
þúsund króna bílaláni frá Lýsingu í mars 2006.
Þegar gengi krónunnar hafði fallið um himinhæðir
sá Jóhann sér ekki lengur fært að borga af láninu
og svo fór að Lýsingarmenn tóku bílinn aftur í
mars á síðasta ári. „Þegar hér var komið sögu var
ég búinn að borga 400 þúsund krónur af bílalán-
inu. Það sem mér fannst hins vegar blóðugast var
að í eftirleiknum fékk ég tæplega 700 þúsund
króna reikning vegna viðgerða á bílnum. Mér
fannst ýmislegt í þessum reikningi tortryggilegt
og leitaði upplýsinga hjá lögfræðingi Lýsingar sem
var bara fúll á móti. Bíllinn var á nýlegum og
ágætum dekkjum en þegar ég fékk reikninginn var
kostnaðurinn meðal annars vegna nýrra dekkja.
Ég setti mig í samband við þau verkstæði sem
starfað hafa fyrir Lýsingu og þannig komst ég að
því að aldrei hafði verið gert við bílinn eins og lög-
fræðingurinn staðfesti við mig þegar ég gekk á
hann. Reikningurinn sem mér var sendur átti sér
því aldrei neina stoð í raunveruleikanum og upp-
spuni frá rótum. Með því að grennslast frekar fyrir
um málið fann ég svo út að Lýsing hefði selt bíl-
inn, sem er árgerð 2000, til Pólverja fyrir 150 þús-
und sem er algjört hrakverð,“ segir Jóhann sem í
framhaldi af þessu leitaði til Ólafs Rúnars Ólafs-
sonar, lögfræðings á Akureyri, og bað hann að
kanna rétt sinn og stöðu í málinu. Og niðurstaðan
er afdráttarlaus. Myntkörfulánin reyndust óheimil
skv. dómi Hæstaréttar og áður hafði Héraðsdómur
Reykjavíkur komist að þessari sömu niðurstöðu.
„Við fjölskyldan áttum annan bíl sem einnig var
fjármagnaður með láni frá Lýsingu. Það lán var í
íslenskum krónum og því viðráðanlegra. Ég borg-
aði það lán upp um sl. áramót og er því núna að
öllu leyti skuldlaus gagnvart fyrirtækinu sem á
hins vegar eftir að leiðrétta sín mál gagnvart mér
og þúsundum annarra Íslendinga. Mér finnst
merkilegt að allur sá fjöldi lögfræðinga sem fjár-
málafyrirtækin höfðu á sínum snærum skyldi ekki
geta lesið það sama út úr lögunum og dómstólar
hafa nú gert; það er að sjá að bannað hafi verið að
verðtryggja lán með tengingu við gengi krón-
unnar. Mér finnst þetta allt mjög sérstakt þótt ég
léti mér aldrei detta í hug, þegar ég fór af stað með
þetta mál og leitaði réttar míns, hvaða óskaplegu
ormagryfju ég væri í raun og veru að opna.“
Maðurinn sem sigraði fjármálafyrirtækin. Jóhann Hreiðarsson er mat-
reiðslumaður á Bjargi, sem er vinnustaður fyrir fatlaðra á Akureyri.
Skapti Hallgrímsson
Maður sem opn-
aði ormagryfju
Vann mál gegn Lýsingu og
myntkörfulánin dæmd ólögleg
Vikuspegill
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Þegar hagstæðu myntkörfulánin buðust var bílasala
góð. Þegar krónan lækkaði má segja að salan hafi
stöðvast og það ástand varir í rauninni ennþá.
Morgunblaðið/Skapti
Myntkörfudómarnir sem féllu i
Hæstarétti sl. miðvikudag voru
tveir. Þótt niðurstaða liggi fyrir
er þó óljóst hvernig brugðist
verður við. Hafa reglur þar um
ekki verið settar. „Er varla of
mikið að fara þess á leit að
stjórnvöld komi að málinu og
leggi einhverjar línur að úr-
lausn þess,“ segir FÍB. Víða var fundað um dóminn í gær.
Morgunblaðið/Kristinn.
Stjórnvöld leggi
línur að lausn