SunnudagsMogginn - 20.06.2010, Page 38
38 20. júní 2010
Matur
É
g fer ekki ótilneydd í útilegu og
þaðan af síður í gönguferðir um
fjöll og firnindi. Mín útivist tak-
markast því að mestu við laut-
arferðir og þess háttar. En mér finnst
alltaf jafngott að borða úti, það er að segja
þegar viðrar til þess.
Kannski er það fyrir áhrif frá Enid Bly-
ton. Eins og allir vita sem lásu bækur
hennar á viðkvæmu aldursskeiði er þar
mikið borðað, einkum og sér í lagi í úti-
legum, og frasinn „allur matur bragðast
betur utandyra“ kemur þar stundum
fyrir. Reyndar var sá matur sem borð-
aður var utandyra í bókum Blyton ekki
svo ýkja fjölbreyttur: Samlokur (oftast
með skinku ef ég man rétt), nautatunga,
ferskjur, harðsoðin egg, ávaxtakaka – jú,
kannski eitthvað fleira en ég man ekki
eftir því. Svo að fullyrðingin um að „allt“
bragðaðist betur utandyra byggðist
kannski ekki á mikilli reynslu þegar bet-
ur er að gáð.
Hvort sem allur matur bragðast betur
úti eða ekki er víst að hann hentar misvel
sem nesti í útilegur og lautarferðir. Það er
um að gera að velja eitthvað sem hægt er
að fullelda og útbúa heima og geymist í
a.m.k. 1-2 daga í kæliboxinu og gjarna
eitthvað sem hægt er að borða með
höndunum og þarf ekki hnífapör til. Þess
vegna finnst mér matur sem er vafinn í
eitthvað eða hafður sem fylling mjög
heppilegt nesti, hvort heldur er í laut-
arferðum eða útilegum. Og jafnvel þótt
eigi að elda eða hita mat þegar farið er í
útilegu er gott að vera líka með eitthvað
sem má borða kalt – það getur komið sér
vel þegar komið er seint á áfangastað og
allir svangir.
Fyllt brauð
Ég gerði oft svona brauð fyrir svona 10-15
árum, yfirleitt til að setja á hlaðborð í
samkvæmum af ýmsu tagi því það er lit-
ríkt, skemmtilegt og gott en það er líka
einstaklega hentugt sem nesti. Kannski
ekki í bakpokaferðir eða lengri göngu-
ferðir en það hentar mjög vel í tjaldferð-
ina eða sumarbústaðinn eða þegar farið er
í lautartúr. Það þarf bara að muna eftir að
taka með sér hníf til að skera brauðið …
Í sjálfu sér er hægt að setja næstum
hvaða álegg sem er inn í brauðið, það þarf
bara að gæta þess að það sem valið er
passi saman. Ég hef, auk þess sem hér er
talið upp, notað margs konar kjötálegg,
kjúkling, harðsoðin egg, gúrku, steiktar
eggaldinsneiðar, ýmiss konar ost, ólífur
og fleira.
1 brauð, kringlótt eða sporöskjulaga
salatblöð
skinkusneiðar
1 tómatur, vel þroskaður
½ kúla ferskur mozzarella-ostur
nokkur basilíkublöð
nokkrar sneiðar af salamipylsu
salatblöð
¼ lárpera, vel þroskuð
¼ paprika
2 msk ólífuolía
nýmalaður pipar
Skerðu lok ofan af brauðinu og holaðu
bæði neðri hlutann og lokið að innan en
skildu þó eftir gott lag af brauði innan við
skorpuna. Dreifðu salatblöðum á botn-
inn, leggðu skinkusneiðar ofan á, þá
tómatsneiðar, mozzarellasneiðar, basil-
íku, pylsusneiðar, lárperusneiðar, meiri
salatblöð og nokkra paprikuhringi.
Dreyptu olíunni yfir og kryddaðu með
nýmöluðum pipar á 1-2 stöðum milli laga
(t.d. ofan á mozzarellaostinn). Leggðu
lokið ofan á, þrýstu því dálítið niður og
pakkaðu brauðinu inn í álpappír.
Geymdu það í kæliboxi, gjarna undir dá-
litlu fargi. Skerðu það svo í þykkar sneið-
ar (ég endurtek: ekki gleyma hnífnum
heima).
Tvenns konar kjúklingur
Kjúklingur er hentugt nesti í ferðalög
og hægt að matreiða hann á ýmsan hátt.
Hér eru tveir kjúklingaréttir sem henta
vel sem nesti, því báða má borða eins og
þeir koma fyrir og þarf engin hnífapör –
bara eitthvað til að þurrka af fingrunum á
eftir. Ef börn eru með í för er tilvalið að
útbúa báða réttina því að annar höfðar
líklega meira til fullorðna fólksins og
hinn fremur til barnanna. Reyndar höfða
báðir jafnmikið til mín en ég hef heldur
aldrei orðið almennilega fullorðin.
Kjúklingavefjur
3 kjúklingabringur
1 msk olía
½ tsk kummin
½ tsk kóríander (duft)
pipar
salt
4 hveititortillur
sítrussósa (sjá uppskrift)
salatblöð
kóríanderlauf
1 lítil lárpera, vel þroskuð
Það er gott að pressa fyll-
inguna vel saman, bæði í svona
brauði og sumum samlokum.
Matarhöfundurinn M.F.K. Fis-
her segir í einni bóka sinna frá
samlokum sem fjölskylda henn-
ar tók alltaf með sem nesti á
ströndina og á leiðinni var sá
feitasti í hópnum látinn sitja á
samlokunum til að pressa þær.
Þessi marglitu silíkonform eru ekki
bara mjög þægileg í notkun, þau eru
líka sumarleg og setja skemmti-
legan lit á tilveruna.
Þessar tortillur má líka
nota sem pinnamat. Þá
eru þær skornar í þykk-
ar sneiðar og tann-
stöngli stungið gegn-
um hverja sneið til að
halda vefjunni saman.
Allt bragðast
betur
utandyra
Í útileguna eða gönguferðina er best að útbúa
mat sem geymist vel í kæliboxinu og hægt er að
borða með guðsgöfflunum úti í náttúrunni.
Nanna Rögnvaldardóttir