SunnudagsMogginn - 20.06.2010, Qupperneq 47
20. júní 2010 47
LÁRÉTT
1. Ljóðskáld er betur statt en útvarpsstöð eins og
best er að sjá. (4, 2, 4, 6)
8. Jafn elskaðar og hreinar. (9)
9. Ræðupappír er eintak. (8)
10. Ás hrökk við vegna hyllinga að sögn. (5)
11. Silfur nuddi þrátt galla. (5)
12. Draga saman í drykkjarvél. (6)
13. Tækin til að smíða stólinn. (5)
14. Óska eftir merki frá grænmeti frá þverhausum.
(9)
16. Skipta með sér kind út af gagnrýni. (6)
17. Kveðið á um bátinn. (6)
19. Hún notar grískan bókstaf bersýnilega til að of-
sækja einhvern. (8)
22. Ákærir ílát goða. (6)
23. Einhvern veginn er gert at að glennu. (6)
26. Illgjörn ef flækist um öræfi. (10)
28. Mánaðarleg án risaeðlu. (8)
29. Fuglinn sýnir hálfgerðan franskan dans við
knæpu. (6)
30. Afi myndi daður þótt það rynni saman í af-
skræmdan. (10)
31. Lærðu og finndu blíðmæli. (7)
32. Ákvað kona verðgildi bakka með fatnaði. (10)
LÓÐRÉTT
1. Skreppa með konu. (6)
2. Slík er hvöss og óbifandi (8)
3. Maka til baka í sál sem fæst við dómsmál. (7)
4. Kærasti Barbie fær drykk og ryk frá furðuskepn-
um. (8)
5. Tafl skóflu er þynna á skóflu. (8)
6. Sort fær slag út af lífshættulegum sjúkdómi. (11)
7. Félausari með meiri gljáa. (8)
10. Fjöll utan um alið og hluta fótar fela í sér þær
sem eru léttar á fæti. (12)
15. Ó, rumdi og iðki. (7)
16. Drengir áðu einhvern veginn hjá fyrrnefndri. (10)
18. Glúrin sá kím í einhvers konar tekju. (11)
20. Hvetja rjóða í blóma. (10)
21. Föt og leður enda í gúmmíi. (8)
24. Það er alrangt með eitthvað af ákveðinni stærð
og flækju þess. (8)
25. Kuldatímabil hrörnar. (7)
27. Við fjaðurmagnaðan málm gubbi af framburð-
arfráviki. (7)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta
lausn krossgátunnar. Senda
skal þátttökuseðilinn ásamt úr-
lausninni í umslagi merktu:
Krossgáta Morgunblaðsins, Há-
degismóum 2, 110 Reykjavík.
Frestur til að skila úrlausn
krossgátu 20. júní rennur út
fimmtudaginn 24. júní. Nafn
vinningshafans birtist í blaðinu 27. júní. Heppinn
þáttakandi hlýtur bók í vinning. Vinningshafi
krossgátunnar 13. júní er Brynjólfur Magnússon.
Hann hlýtur í verðlaun bókina Morgnar í Jenín eft-
ir Susan Abulhawa. Forlagið gefur út.
Krossgátuverðlaun
Hjörvar Steinn Grétarsson vann
góðan sigur í flokki alþjóðlegra
meistara á First Saturday-
mótinu sem lauk í Búdapest um
helgina. Hjörvar hlaut átta
vinninga af 11 mögulegum og
varð einum fyrir ofan Banda-
ríkjamanninn Takashi Iwamoto
sem hlaut sjö vinninga en í 3.
sæti varð Ungverjinn Bela Len-
gyel með sex og hálfan vinning.
First Saturday-mótið hefst
eins og nafnið bendir til fyrsta
laugardag í hverjum mánuði og
er því einhvers konar skák-
móta-hringekja í fjölmörgum
flokkum sem stendur yfir allt
árið og er hugarfóstur og „eign“
Ungverjans Laszlos Nagys. Ís-
lenskir skákmenn hafa oft gert
góða hluti þarna og má nefna
ágæta frammistöðu Dags Arn-
grímssonar, Guðmundar Kjart-
anssonar og Stefáns Kristjáns-
sonar á liðnum árum. Mótið er
upplagt fyrir skákmenn í leit að
alþjóðlegum áföngum og margir
skákmenn ferðast langan veg til
þess að taka þátt í því.
Að þessu sinni var Hjörvar að-
eins hálfum vinningi frá áfanga
að alþjóðlegum meistaratitli.
Hann hóf mótið með því að
hljóta 3½ vinning úr fyrstu fjór-
um skákum sínum, tapaði
næstu tveimur en kom sterkur
til baka og hlaut 4½ vinning úr
síðustu fimm. Hann hefði
sennilega átt að vinna allar
þessar skákir. Hjörvar hefur nú
unnið fjögur mót á innan við ári
og gerir þ.a.l. sterkt tilkall til
þess að vera valinn í íslenska ól-
ympíuliðið sem teflir í Khanty
Manyisk í haust.
Í lokaumferðinni dugði hon-
um jafntefli til að verða einn
efstur en hugleiðingar um slíkt
voru víðsfjarri. Skákin er gott
dæmi um kraftmikinn stíl
Hjörvars.
Búdapest 2010; 11. umferð:
Hjörvar Steinn Grétarsson –
Nicolas Tavoularis
Hollensk vörn
1. d4 f5 2. g3 Rf6 3. Bg3 g6 4.
Rf3 Bg7 5. 0-0 0-0 6. b3 d6 7.
bb2 e5 8. dxe5 Rg4 9. Ra3 Rxe5
10. Rxe5 dxe5 11. Dxd8 Hxd8 12.
Rb5 Ra6 13. Had1 He8 14. Bd5+
Kh8 15. Bf7! Hf8 16. Ba3!
Með þessu nær hvítur fram
veikingu á hornalínunni h1-a8
og þó einkum d5-reitnum. Þá
öðlast riddarinn ákjósanlegan
reit á d6, 16. … Hxf7 strandar á
17. Hd8+ Bf8 18. Bxf8! og vinnur.
16. … c5 17. Bc4 Bf6 18. Rd6
Rb4 19. c3 Rxa2 20. Bxc5 b6 21.
Ba3 Rxc3 22. Hc1 e4 23. Rb5!
Annar snjall leikur, svartur
verður að láta skiptamun af
hendi.
23. … Rxb5 24. Bxf8 Bd7 25.
Bb4 a5 26. Bd2 Rd4 27. Bc3 Bc6
28. Hfd1 Hd8 29. e3 Rf3+ 30.
Kg2 Hf8
31. Hd8!
Laglegur lokahnykkur. Nú er
31. … Hxd8 svarað með 32.
Bxf8+ og svartur stendur eftir
hrók undir. Hann gafst því
upp.
Jóhanna Björg og Lenka
efstar á Íslandsmóti kvenna
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og
Lenka Ptacnikova urðu jafnar og
efstar á Íslandsmóti kvenna sem
lauk sl. fimmtudagskvöld. Þær
munu tefla tvær aukaskákir um
sæmdarheitið Skákmeistari Ís-
lands. Jóhönnu dugði jafntefli í
lokaumferðinni en þá mætti hún
Lenku og tapaði. Lenka hafði í
umferðinni á undan lotið í lægra
haldi fyrir Hallgerði Helgu.
Lokaniðurstaðan varð þessi:
1.-2. Jóhann Björg Jóhanns-
dóttir og Lenka Ptacnikova 4 v.
(af 5). 3. Hallgerður Helga Þor-
steinsdóttir 3½ v. 4. Sigurlaug
Friðþjófsdóttir 2 v. 5. Hrund
Hauksdóttir 1 v. 5 Elsa María
Þorfinnsdóttir ½ v.
Fjórar efstu hafa ásamt Tinnu
Kristínu Finnbogadóttur verið
valdar í kvennalið Íslands fyrir
næsta ólympíumót.
Helgi Ólafsson | helol@simnet.is
Hjörvar sigraði á First
Saturday-mótinu
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang