SunnudagsMogginn - 20.06.2010, Qupperneq 53
20. júní 2010 53
Í
stuttu ljóð er nefnist
„Orka“ lýsir skáldið Bjarni
Bernharður hvernig ljóð
verður til:
Í tvísýnni nánd
lýstur bylgjum
að einum punkti.
Á mótum orkusviða
fæðist ljóðið.
Þetta er eitt ljóðanna í nýjustu
ljóðabók skáldsins, Undir gull-
fjöllum, en hún skiptist í tvo
hluta: Af akri orðanna og Í eld-
hólfinu. Ljóðasmíðar Bjarna
Bernharðs eru iðulega knappar
og nokkuð í anda heimsósóma-
kveðskapar. Í einu ljóðinu ham-
ast peningabullur „fastar á kefli
stundaróráðs“ við að snúa sveif
svo ekki stöðvist gangverk auð-
valdsins. Í ljóðinu „Tungan“ er
niðurstaðan sú að þjóðin „hefði
látið glepjast / inn í blindgötu /
eigin hugarfósturs / og tapað
tungunni / í fúlu straumvatni /
tuttugustu aldar.“
Algengasta yrkisefni Bjarna
Bernharðs og það sem hann tek-
ur hvað sterkustum tökum er þó
andinn og innra líf, og þar rúm-
ast bæði draumar og sköpun. Í
einu ljóði segir að þroskatréð nái
ekki að þroskast í skugga og því
„skal leitast við / að afmá fngra-
för fortíðar / af sálinni / svo þau
verði ekki hindrun / líðandi
stunda.“ Í öðru segir frá veisl-
unni – tíma frjálsra kennda og
athafna – sem hefst þegar for-
sjónin hefur vísað hugarflækjum
og sálarkröm á dyr. Tréð verður
aftur að mynd í „Lostæti and-
ans“; þar sem sáð var óburðugu
fræði svigna nú greinar „undan
lostæti andans“ – það eru tímar
sígrænnar hamingju.
Eitt besta ljóð bókarinnar er
um draumana og nefnist „Tón-
verk“:
Tónsvið draumaheimsins
rýfur hárfínt
sístreymi vitundar
tónverk næturinnar
hefst á hægum kafla
samhljómurinn
stigmagnast á óttunni
uns verkið fjarar út í
morgunsárið.
Á mótum orkusviða fæðist ljóðið
Ljóð
Undir gullfjöllum
bbmnn
Eftir Bjarna Bernharð.
Ego útgáfan 2010. 51 bls.
Einar Falur Ingólfsson
Andinn og innra líf verða Bjarna
Bernharði að yrkisefni.
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Eymundsson
1. The Short Second Life of Bree
Tanner – Stephenie Meyer
2. The Monster in the Box – Ruth
Rendell
3. 206 Bones – Kathy Reichs
4. 501 Must-Visit Cities – Bounty
Boojks
5. The Collaborator – Gerald
Seymour
6. The Doomsday Key – James
Rollins
7. Pirate Latitudes – Michael Crich-
ton
8. The Death of Bunny Munro –
Nick Cave
9. Insight Illustrated World Atlas –
Geocenter
10. Ford County – John Grisham
Waterstones
1. The Short Second Life of Bree
Tanner – Stephenie Meyer
2. Kiss of Death – Rachel Caine
3. Dead in the Family – Charlaine
Harris
4. The Lost Symbol – Dan Brown
5. Breaking Dawn – Stephenie
Meyer
6. Dead and Gone – Charlaine
Harris
7. The Return: Midnight – L.J.
Smith
8. The Passage – Justin Cronin
9. The Girl Who Kicked the Hor-
net’s Nest – Stieg Larsson
10. At Home – Bill Bryson
New York Times
1. The Girl Who Kicked the Hor-
net’s Nest – Stieg Larsson
2. Bullet – Laurell K. Hamilton
3. The Spy – Clive Cussler & Justin
Scott
4. The Help – Kathryn Stockett
5. Dead in the Family – Charlaine
Harris
6. 61 Hours – Lee Child
7. The Burning Wire – Jeffery Dea-
ver
8. Storm Prey – John Sandford
9. The Bourne Objective – Eric Van
Lustbader
10. Innocent – Scott Turow
Bóksölulisti
Barbara Kingsolver hef-
ur verið ákaflega um-
deild sem rithöfundur í
heimalandi sínu
Í vikunni var tilkynnt að
hollenska skáldsagan The
Twin eftir Gerbrand Bakker
hlyti írsku IMPAC-bók-
menntaverðlaunin, sem eru
þau ríflegustu sem sögur
fara af nú um stundir: tæpar
sextán milljónir króna.
The Twin er fyrsta bók
höfundarins og þetta því
þriðja árið í röð sem frum-
raun hlýtur þessi eftirsóttu
verðlaun.
Bókin segir frá hol-
lenskum sem neyðist til að
leggja háskólanám á hilluna
og snúa aftur á búgarð æsku
sinnar þegar bróðir hans
ferst í bílslysi; sætta sig við
það að þurfa að eyða ævinni
undir kýrrassi eins það er
orðað í bókinni. Helstu at-
burðir í sögunni verða svo
þrjátíu árum síðar þegar
kemur að uppgjöri í fjöl-
skyldunni. Í breska dag-
blaðinu The Guardian kem-
ur fram að hugmyndin að
bókinni hafi vitrast Bakker í
sumarleyfi á Korsíku fyrir
nokkrum árum; þar sem
hann gekk á fjöll sá hann
fyrir sér son sem hefði í
hyggju að gera föður sínum
mein. Upp úr því spratt bók.
Á stuttlista verðlaunanna
voru, auk The Twin, The
Elegance of the Hedgehog
eftir Muriel Barbery, In
Zodiac Light eftir Robert
Edric, Settlement eftir Chri-
stoph Hein, The Believers
eftir Zoë Heller, Netherland
eftir Joseph O’Neill, God’s
Own Country eftir Ross Ra-
isin og Home eftir Marilynne
Robinson.
Bakker verðlaunaður
Kápa enskrar útgáfu The Twin,
sem er einmitt sú útgáfa sem
var verðlaunuð.
röðinni á náttborðinu á eftir nýjustu
bók sagnfræðingsins Antonys Beevors,
D-Day, en ef hún er á pari við hinar
ótrúlegu bækur hans um Berlín og
Stalíngrad þá er ljóst að hún verður
ekki lengi ólesin.
Lesarinn er spenntur fyrir nýjustu bók
breska höfundarins Davids Mitchells.
Mikið var deilt um Ulysses, meistaraverk
James Joyce, þegar bókin kom út fyrir 88 ár-
um. Hún var fljótlega bönnuð vestan hafs og
Joyce átti einnig erfitt með að koma henni út
á Bretlandseyjum. Með tímanum hefur bókin
þó unnið sér sess með helstu bókmenntaverk-
um tuttugustu aldar og í Dyflinni, heimaborg
Joyce, er haldinn sérstakur Bloom-dagur 16.
júní ár hvert til heiðurs bókinni, enda gerist
hún öll á einum degi; 16. júní 1904.
Ný vandamál
Smám saman virðist bókaútgáfa færast á raf-
rrænt form og ný tækni skapar ný vandamál
eins og það nú nýverið að Apple gerði at-
hugasemdir við teiknimyndaútgáfu Ulyssess
fyrir iPad vegna þess að í henni sæist teikning
af brjóstum og af nöktum manni.
Teiknimyndaútgáfan heitir Ulysses Seen og
gerð af fyrirtækinu Throwaway Horse. Hún er
ókeypis fyrir iPad-notendur, en ekki er kom-
inn nema fyrsti kafli bókarinnar.
Apple hafði óskað eftir því við höfunda
verksins að þeir breyttu tveimur síðum þann-
ig að ekki sæist í bert hold og þeir breyttu því
sem breyta þurfti og reyndar einni síðu til
sem Apple-starfsmönnum hafði greinilega yf-
irsést.
Nýja útgáfan var þó varla komin í loftið
þegar forsvarsmönnum Apple snerist hugur.
Samkvæmt frétt í Washington Post segir tals-
maður Apple að starfsmenn hafi ekki áttað sig
á um hvaða verk væri að ræða, en um leið og
það kom í ljós höfðu menn þar á bæ samband
við höfundana og bentu þeim á að þeir mættu
birta upprunalega útgáfu bókarinnar.
Það er svo við hæfi að geta þess að hug-
myndin að teiknimyndinni varð til á krá í
Dyflinni fyrir fjórum árum þar sem aðstand-
endur sátu yfir Guinness-kollum.
Ulysses bannaður
fyrir nýja tækni,
eða hvað?
Ein af hinum umdeildu myndasíðum í teikni-
myndaútgáfu Ulysses James Joyce.