SunnudagsMogginn - 25.07.2010, Síða 4
4 25. júlí 2010
Það varð Liverpool mikið áfall að missa af sæti í
Meistaradeild Evrópu í vor, keppninni sem félagið
hefur unnið fimm sinnum (aðeins Real Madrid og AC
Milan hafa gert það oftar). Áhangendur þess ótt-
uðust líka afleiðingarnar, myndi skellurinn þýða að
helstu lykilmenn streymdu á braut og vont yrði að
ráða nýja afburðamenn til starfa?
Fyrstu vísbendingar eru góðar. Steven Gerrard fyr-
irliði er sæll og glaður og ætlar að berjast áfram fyrir
málstaðinn. Roy Hodgson kveðst heldur ekki hafa í
hyggju að hlusta á tilboð í Fernando Torres sem raun-
ar snýr laskaður heim frá Suður-Afríku – á líkama og
sál – þrátt fyrir gullið. Sem fyrr veltur gengi Liverpool
að miklu leyti á því hvort þessir menn ná sér á strik.
Álagið á Gerrard og Torres hefur talsvert verið
gagnrýnt og á dögunum steig Liverpool athyglisvert
skref í þá átt að létta þeim lífið þegar enski lands-
liðsmaðurinn Joe Cole skilaði sér í hús á Anfield á
frjálsri sölu frá Englandsmeisturunum Chelsea. Cole,
sem er 28 ára, hefur um árabil verið í hópi fræknustu
sparkenda Englands, hugmyndaríkur og djarfur mið-
vellingur. Heldur hægðist á honum í fyrra vegna erf-
iðra meiðsla en Cole mun ugglaust leggja allt í söl-
urnar til að finna sitt gamla form á Anfield.
Auk hans hafa bæst í hópinn serbneski miðherjinn
Milan Jovanović, kallaður Snákurinn vegna snerpu
sinnar, frá Standard Liege, og skoski varnarmað-
urinn ungi Danny Wilson frá Rangers.
Roy Hodgson upplýsti í gær að ekki lægi á frekari
kaupum. Þau bæri umfram allt að vanda.
Cole kemur galvaskur með Snáknum
Joe Cole slær á létta strengi á blaðamannafundi
enska landsliðsins. Hans bíður nú ný áskorun.
Reuters
E
nda þótt aflabrögð hafi verið dræm hin
síðari misseri er Liverpool ennþá afla-
hæsti togarinn á Englandsmiðum – í
sögulegu tilliti. Munar þar mest um
mokveiði á áttunda og níunda áratug síðustu
aldar. Margur hnyklaði því brýrnar þegar gamall
trillusjómaður tók sér stöðu í brúnni á dögunum
– Roy Hodgson að nafni. Afburðamaður á sínu
sviði, kom með Fulham, litla og laskaða trillu,
drekkhlaðna að landi undir vorið – enda þótt
hann missti þann stóra fyrir borð á heimstíminu.
Þessi áleitna spurning brennur nú á allra vörum:
Er Roy Hodgson jafnflinkur að stýra trillu og
togara?
Hodgson, sem verður 63 ára í næsta mánuði,
er enginn nýgræðingur í faginu, Liverpool er
þrettánda félagsliðið sem hann stýrir, auk þess
sem hann hefur í þrígang þjálfað landslið. Eins
og fyrr segir hafa þetta mest verið minni spá-
menn og kröfurnar aðrar og minni en hjá Liver-
pool. Eina sambærilega félagið sem Hodgson
hefur stýrt er Internazionale í Mílanó. Þar var
kappinn í tvígang, fyrst frá 1995-97 og aftur um
stundarsakir árið 1999. Því fer þó fjarri að Inter
hafi verið sama ferlíkið á þeim árum og við
þekkjum í dag. Paul Ince var skærasta stjarnan
og liðið hafnaði í sjöunda sæti Lígunnar fyrra ár-
ið hans Hodgsons og því þriðja seinna árið. Þá
tapaði Inter raunar úrslitarimmunni í Evr-
ópukeppni félagsliða sem þá var og hét í víta-
spyrnukeppni.
Frægastur er Hodgson vitaskuld fyrir árangur
sinn með svissneska landsliðið, sem hann þjálf-
aði á árunum 1992-95. Kom liðinu meðal annars
í lokakeppni HM sumarið 1994, í fyrsta skipti í
tæp þrjátíu ár. Svisslendingar komust upp úr
riðlinum en lutu í gras gegn Spánverjum í sextán
liða úrslitum. Hodgson skilaði Svisslendingum
líka inn á EM í Englandi 1996 en var tekinn við
Inter þegar lokamótið fór fram.
Stærsta verkefni Hodgsons í Englandi fram að
þessu var að stýra Blackburn Rovers, 1997-98,
en Blackburn var hlutfallslega mun stærra félag á
þeim tíma en nú, varð til að mynda meistari
vorið 1995, með kempur á borð við Alan Shea-
rer, Colin Hendry og Stuart Ripley innanborðs.
Væntingar voru því miklar og umtalsvert fé í
sjóðum Jacks heitins Walkers.
Brotlenti í Blackburn
Hodgson byrjaði svo sem ágætlega á Ewood
Park, liðið hafnaði í sjötta sæti. Veturinn eftir
missti hann hins vegar allt niður um sig. Tuttugu
milljónum sterlingspunda var varið til leik-
mannakaupa um sumarið, meðal annars á mið-
herjann Kevin Davies sem fann sig engan veg-
inn. Meiðsli lykilmanna og ólga í
leikmannhópnum hjálpuðu heldur ekki til og
aumingja liðið ráfaði í myrkrinu. Þegar Black-
burn skall með brambolti á botninum var Wal-
ker nóg boðið og sagði Hodgson upp störfum.
Orðspor kappans var í molum og fáir bjuggust
við því að hann kæmi aftur til starfa í Englandi.
Útlegðin varð líka löng – níu ár. Eftir viðkomu á
Ítalíu, Sviss, Ítalíu aftur, Sameinuðu arabísku
furstadæmunum, Noregi og Finnlandi sneri
Hodgson hins vegar aftur heim, tók við Fulham.
Þar var hann raunar í sömu sporunum og áður,
liðið virtist kirfilega læst niðri í kjallara úrvals-
deildarinnar. Ekki byrjaði okkar maður heldur
vel, fékk aðeins níu stig úr fyrstu þrettán leikj-
unum. Fulham var dauðadæmt. Þá kom hins
vegar óvæntur kippur í líkið og tólf stig af fimm-
tán mögulegum björguðu því með ævintýra-
legum hætti frá falli. Menn báru Hodgson á
höndum sér á Craven Cottage.
Síðan lá leiðin upp á við. Veturinn eftir, 2008-
09, náði Fulham áður óþekktum hæðum, sjö-
unda sæti og sigldi seglum þöndum inn í Evr-
ópudeildina. Þar sló liðið eftirminnilega í gegn á
liðnum vetri, féll við hinstu hindrun í sjálfum
úrslitaleiknum gegn Atlético Madrid. Komst, vel
að merkja, skrefinu lengra en Liverpool.
Gamli skúrkurinn var orðinn hetja og var að
launum valinn knattspyrnustjóri ársins í Eng-
landi með fáheyrðum yfirburðum.
Skyndilega var Hodgson á allra vörum og eftir
afleitt gengi enska landsliðsins á HM í Suður-
Afríku vildu margir að hann tæki við því. Fabio
Capello var hins vegar endurráðinn og Liverpool
gekk á lagið.
Nú er bara spurningin: Er gamli jaxlinn vand-
anum vaxinn?
Andlát og
upprisur
Er Roy Hodgson
rétti maðurinn
fyrir Liverpool?
Roy Hodgson baðar sig í sviðsljósinu á Anfield. Hvernig mun rauða hernum vegna undir hans stjórn?
ReutersVikuspegill
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Roy Hodgson fæddist
í Lundúnum 9. ágúst
1947. Hann er
kvæntur, tveggja
barna faðir sem talar
norsku, sænsku og
ítölsku reiprennandi,
auk enskunnar. Þá er
hann víst giska sleip-
ur í þýsku, dönsku,
frönsku og finnsku.
Ekki veitir víst af hjá
fjölþjóðlegum her
eins og Liverpool hef-
ur á að skipa í seinni
tíð. Hodgson er líka
virtur sparkskýrandi í
sjónvarpi.
Fjöl-
tyngdur
flakkari
ódýrt og gott
Grillaður kjúklingur og Pepsi
eða Pepsi Max, 2 l
998kr.pk.