SunnudagsMogginn - 25.07.2010, Page 8
8 25. júlí 2010
Þ
að er margtuggin klisja, ekki síst í íþróttum, að
eins dauði er annars brauð. Í mörg ár bar Tiger
Woods ægishjálm yfir aðra kylfinga og vann
mót eftir mót án þess að keppninautarnir ættu
sér mikillar viðreisnar von. Heimslistinn í golfi ber þess
enda skýr merki; Tiger Woods hefur trónað í efsta sæti
hans undanfarnar 267 vikur í röð eða í rúm fimm ár. Allt í
allt hefur efsta sætið verið hans í 609 vikur á ferlinum.
Hrakfarir Tígursins í einkalífinu sem allur heimurinn
hefur fengið ýtarlegar fréttir af höfðu því ekki aðeins áhrif
á Woods sjálfan sem hefur ekki borið barr sitt síðan
framhjáhaldsmálin komu upp, heldur á golfheiminn all-
an. Nú í fyrsta skipti í lengri tíma inniheldur listi yfir lík-
lega sigurvegara fyrir risamótin fjögur fleiri en eitt nafn.
„Fyrir hvert einasta risamót eru nú um það bil 25 kylf-
ingar sem hafa fulla trú á að þeir geti unnið mótið,“ segir
Andrew Chandler, einn umsvifa- og áhrifamesti um-
boðsmaðurinn í atvinnugolfinu. Chandler þessi hefur á
snærum sínum Suður-Afríkumanninn Louis Oosthuizen
sem kom öllum að óvörum þegar hann sigraði Opna
breska meistaramótið um síðustu helgi með töluverðum
yfirburðum. Oosthuizen, sem hafði ekki komist í gegnum
niðurskurð í síðustu þremur risamótum, var nánast al-
gerlega óþekktur fyrir mótið en lék golf lífs síns og endaði
síðasta daginn sjö höggum á undan Bretanum Lee
Westwood. Woods sjálfur var þrettán höggum á eftir
Suður-Afríkumanninum í 23. sæti.
Þó sigur Oosthuizens hafi verið óvæntur þá hafa sig-
urvegarar á risamótum síðustu tveggja ára ekki beint ver-
ið þeir sem flestir höfðu búist við. Frá árinu 2009 hafa sig-
urvegarar risamótanna verið Ángel Cabrera, Lucas
Glover, Stewart Cink, Yang Yong-eun, Phil Mickelson,
Graeme McDowell og nú Oosthuizen. Af þessum sjö getur
Mickelson einn talist í hópí stærstu nafna golfsins. Vanda-
mál Tigers voru nefnilega hafin töluvert áður en brók-
arsótt hans komst í hámæli. Árið 2008 var snubbótt hjá
þessum besta leikmanni heims sem missti af síðustu
tveimur risamótunum vegna uppskurðar á hnjámeiðslum
sem hann hafði lengi glímt við. Tiger kom aftur árið eftir
og vann nokkur smærri mót en árangurinn á risamót-
unum var ekki til að hrópa húrra fyrir. Á Opna breska
mótinu árið 2009 komst hann ekki í gegnum niðurskurð
og var það aðeins í annað skiptið á ferlinum sem hann
komst ekki áfram á risamóti. Ósigurinn gegn Suður-
Kóreumanninum Yang Yong-eun á PGA-meistaramótinu
síðar sama ár varð svo til þess að svipta Woods þeirri áru
ósigranleika sem hann hafði notið um árabil. Woods, sem
hefur unnið 14 risamót á ferlinum, lauk árinu án þess að
hafa unnið nokkurt risamótana, í fyrsta skipti síðan 2004.
Ekki að allir séu hrifnir af þessari fögru, nýju veröld þar
sem hver sem er getur unnið og ekki er hægt að treysta á
markaðsvænan Woods til að trekkja að áhorfendur og
styrktaraðila. Pistlahöfundur bandaríska íþróttamiðilsins
ESPN líkti yfirburðasigri Oosthuizens við það að horfa á
augabrúnir vaxa í spegli með kvaki máva í bakgrunni.
Engin spenna hafi verið á mótinu. Ef Tiger Woods hefði
sigrað jafn örugglega hefðu fjölmiðlar líkast til lofað snilld
hans frekar en að kvarta undan takmörkuðu skemmt-
anagildi. Hvað sem því líður má gleðjast yfir því að sig-
urvegarinn á Whistling Straits í Michigan þar sem PGA-
meistaramótið fer fram í næsta mánuði verður líklega
óskrifað blað fram á síðasta hring, þökk sé Tiger Woods og
óförum hans.
Þegar Tígurinn er
að heiman fara
mýsnar á stjá
Ófarir Tigers Woods hleypa
nýjum sigurvegurum að
Vikuspegill
Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is
Farir Tiger Woods hafa ekki verið sléttar undanfarið.
Reuters