SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 25.07.2010, Qupperneq 28

SunnudagsMogginn - 25.07.2010, Qupperneq 28
28 25. júlí 2010 Tobias tiplar á ísnum, þar sem ýmsar hættur geta leynst við borgarísjakann. T obias læddist varlega um ísinn og kannaði leiðina á milli tveggja ísjaka, hundarnir fylgdu fast á eftir. Ísinn við borg- arísjakana getur verið örþunnur þannig að maður og hundar geta auðveldlega fallið niður um ísinn í jökulkaldan sjóinn. Það er yfirleitt farið varlega við stóra ís- jaka, þó að það sé sjaldgæft að þeim hvolfi þegar þeir sitja fastir í ísnum. Þó getur það alltaf gerst, sérstaklega ef ísinn sem heldur þeim föstum er þunnur. Aðeins einn tíundi hluti borgarísjakans stendur upp úr sjónum. Hvolfi ísjaka í opnum sjó getur hann valdið flóðbylgju langt út frá sér, hvolfi honum föstum í ís brotna ísflekar langt út frá jakanum og kremja allt sem fyrir þeim verður þegar þeir sporðreisast af miklu afli. Nýlega voru fimm menn á litlum bát við Ilulissat á Grænlandi við veiðar og hafa sennilega verið of nálægt stórum jaka sem hefur hvolft og sökkt þeim. Það hefur ekkert til þeirra spurst. Við vorum hinsvegar langt úti á haf- ísnum á Ingelfield-firði í Thule. Ísinn er að byrja að bráðna, hann er mun þynnri en hann var fyrir nokkrum árum á sama árstíma. Hlýnun norðurslóða er stað- reynd og íshellan minnkar hratt, hvort sem mönnum líkar það betur eða verr og hvort sem þeir halda með Arsenal eða Manchester United. Það er svolítið sérstakt að ferðast um með veiðimönnum nyrstu byggða á jörð- inni, veiðimönnum sem hafa yfir 4.000 ára hefð á bak við sig og hafa lifað af ótrú- legt harðræði verðuraflanna og þurft að veiða sér til matar í gegnum aldirnar. Þarna eru einhverjir mestu veiðimenn jarðarinnar. Fáir Evrópubúar eða aðrir íbúar stórborga heimsins myndu lifa af við þær aðstæður sem þeir hafa barist við. Það er eins og tíminn standi í stað, sólin snýst í hringi beint fyrir ofan höfuðið á manni allan sólarhringinn. Það er enginn munur á nóttu og degi á þessum árstíma. Það er eins og að anda að sér öðru lofti þarna norðurfrá og birtan er líka mun skærari. Lífið tekur kipp, veiðimönnum sem lifa eingöngu á veiðum fer óðum fækkandi, það er alltaf verið að gera þeim lífið erf- iðara. Þeir reyna samt að komast á veiðar á meðan ísinn heldur þeim. Bátarnir eru gerðir klárir fyrir sumarmánuðina, þegar fjörðurinn er íslaus, þá er siglt á veiðar langt frá þorpinu. Veiðimaður gaf sig á tal við mig þar sem ég var að taka myndir í þorpinu hans. Það var sorg í augum hans þegar hann sagði að ísinn væri orðin svo þunnur að það valdi vandræðum. „En það er bara hluti af vandræðum okkar,“ sagði hann. „Það er búið setja reglur frá Evrópu sem banna okkur að selja skinnin af þeim dýr- um sem við veiðum, það var lifibrauðið okkar. Við getum ekki selt túpilaka, handgerða listmuni, tálgaða úr hval- beinum, einungis úr hreindýrshornum en þeir eru ekki eins fallegir. Þessar reglur eiga miklu frekar við um dýr í útrýming- arhættu sem eru drepin af veiðiþjófum. Við erum ekki veiðiþjófar. Af hverju getur ekki fólk sem hefur aldrei komið hingað og veit ekkert um okkur og lífið hér látið okkur í friði? Hver bað það um að setja reglur fyrir okkur? Ekki reynum við að breyta því hvernig aðrir lifa.“ Það er búið að setja kvóta á hvíta- bjarnaveiðar vegna þrýstings utanfrá og einungis þeir sem lifa eingöngu á veiðum mega veiða þá. Fyrir vikið eru mun færri sem veiða hvítabirni nú en áður. „Ísbjarnastofninn telst um 25 þúsund dýr og það hefur verið þannig frá ómuna- tíð. Við sem lifum með náttúrunni sýnum henni virðingu og veiðilendum okkar. Við þekkjum slóðir norðurhjarans best og myndum aldrei eyða þeim stofnum dýra sem við veiðum úr. Við hreinlega gætum það ekki. Sumir eiga eplatré í garðinum sínum sem þeir geta borðað af, hér vaxa hins vegar engin eplatré, þess vegna veið- um við okkur í matinn,“ sagði veiðimað- urinn. Það steðjar mun meiri hætta af hlýnun á norðurslóðum en veiðimönnum þar sem það verður mun erfiðara fyrir ís- björninn að veiða sér til matar á þunnum ísnum. Það var sorgmæddur maður sem kvaddi mig, ég skildi hvað hann var að segja. Það er stórkostlegt, eftir að hafa lesið um fræknar ferðir heimskautafara á norðurslóðum, að geta flogið til nyrstu byggða heims á aðeins nokkrum klukku- tímum. Áður fyrr var farið á skipum norður Grænland á nokkrum mánuðum, ferðast svo um ísbreiðurnar á hundasleð- um svo mánuðum skipti, jafnvel árum, og kortlagðar áður ókannaðar slóðir. Að fljúga yfir Grænland er ólýsanlegt, fjöllin eru svo ótrúlega tignarleg og allt landslagið hvert sem horft er. Það hefur enginn maður stigið fæti á flest fjöllin þar. Meira að segja tunglið sjálft er betur kannað. Gömlu heimskautafararnir hefðu notið þess að sjá landið úr lofti. Það sem maðurinn í Thule sagði sat í mér á heimleiðinni og ég velti fyrir mér hvernig fólk það er sem situr á skrifstofu allan daginn og semur reglugerðir um allt og ekkert fyrir aðra til að fara eftir, um hluti sem það veit ekkert um og virðist ekki velta fyrir sér afleiðingum gjörða sinna. Það er búið að finna upp flugvélina fyrir meira en hundrað árum. Flugið, ein- hver fallegasta starfsgrein á jörðinni, á líka undir högg að sækja, einkafluginu er að blæða út vegna allskonar íþyngjandi reglna og óheyrilegs kostnaðar. Að það skuli kosta yfir hálfa milljón króna á ári að eiga litla flugvél án þess að fljúga henni í eina mínútu. Það er óskiljanlegt. Enginn getur það til lengdar. Flugvél flýgur ekk- ert öðruvísi nú en fyrir þrjátíu árum og litlu flugvélarnar eru fyrsta þrepið í námi flugmannsins, mannsins sem flýgur með okkur á milli landa í framtíðinni. Það virðist enginn með bein í nefinu vera til staðar til að verja flugið, ekki í Evrópu og alls ekki á Íslandi, hér rata reglugerðirnar óhindrað í gegn, jafnvel án þess að við þurfum að taka þær upp. Það er eins og eftirlitsiðnaðurinn sem tor- tryggir allt og alla nema sjálfan sig vilji leggja flugið niður. Er ekki kominn tími Sagan bak við myndina Ragnar Axelsson rax@mbl.is Ætli þessi sé að leita að eplatré? Fórnarlömb skrifstofublóka

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.