SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 25.07.2010, Qupperneq 36

SunnudagsMogginn - 25.07.2010, Qupperneq 36
36 25. júlí 2010 íuskákmótum: Kasparov tefldi 82 skákir á 8 ólympíu- mótum og tapaði 3 þeirra! Karpov tefldi 68 skákir á 6 ól- ympíumótum og tapaði 2 þeirra! Sexmenningarnir skiluðu allir góðum árangri í mótinu. Helgi fékk 6,5 v í 12 skákum, Jóhann 8 v af 12, Jón L. 8 v af 13, Margeir 7,5 v af 12, Guðmundur 2 v af 4 og Karl 2 v af 3. Jón L. og Margeir fengu stórmeistaratign að mótinu loknu. Jón skrifaði bók um ævintýrið í Dubai ásamt dr. Kristjáni Guðmundssyni liðsstjóra sveit- arinnar og heitir bókin „Skákstríð við Persaflóa“. Þar kemur meðal annars fram að útgerðarmaðurinn Soff- anías Cecilsson frá Grundafirði hét liðinu peningaverð- launum ef því tækist að verða á meðal tíu efstu þjóðanna í Dubai en 11. sæti í Havana 1966 var besti árangur Ís- lands á ólympíuskákmóti fram að þessu. Niðurstaðan skilaði sveitinni 1 milljón íslenskra króna á þávirði frá Soffaníasi. Kristján og Jón draga ekki dul á það í bókinni að áheit Soffaníusar hvatti skákmennina til dáða. Kasparov sakaði Íslendinga um svindl Jón L. lýsir þeim Kasparov og Karpov afar skemmtilega í fyrrnefndri bók: „Það er einkennileg líðan að tefla and- spænis sveit, þar sem Karpov og Kasparov sitja hlið við hlið. Þeir eru ólíkir í háttum. Kasparov iðar í sætinu og er óstyrkur að sjá eins og fyrr er vikið að en Karpov er aftur á móti sallarólegur, nánast hreyfingarlaus við borðið. Hann hreyfði höfuðið lítilsháttar til og frá meðan hann var að hugsa, svona eins og til að örva blóðstreymi til heilans og svo gaut hann augunum rannsakandi til Jóhanns – þetta fræga (ískalda) Karpov-augnaráð. Kar- pov sat meira við borðið en Kasparov en er hann stóð upp til að teygja úr sér, leit hann á stöður liðsmanna sinna. Og K-in tvö tóku oftar en einu sinni tal (með litlu t-i!) saman og virtust ræða stöðurnar á hinum borð- unum. Raunar er óleyfilegt að keppendur ræði saman meðan á skákum stendur, en skákstjóri fann þó enga þörf hjá sér til þess að þagga niður í þessum snillingum! Þrátt fyrir allt umtal um að grunnt sé á því góða milli þessara tveggja heimsmeistara, var það ekki að merkja á þeim, þar sem þeir stungu saman nefjum.“ Síðar í mótinu tapaði Ísland 1:3 gegn Bandaríkjunum og missti þar með af toppbaráttunni. Snillingurinn Kasparov átti erfitt með að skilja þau úrslit og sparaði síst stóru orðin. „Kasparov trylltist við þessi úrslit og gekk svo langt að ásaka íslensku sveitina um að hafa gert sér það að leik, að tapa fyrir Bandaríkjamönnum. Við lit- um á þetta sem hrós frá heimsmeistaranum. Auðvitað gat svona sterk sveit, eins og sú íslenska, ekki tapað svo stórt án þess að brögð væru í tafli!“ Besti árangurinn í Manila? Fjórmenningaklíkan myndaði hryggjarsúluna í landslið- inu á ólympíuskákmótum í tæpan áratug til viðbótar og sýndi að árangurinn í Dubai var engin tilviljun því liðið sýndi mikinn stöðugleika. Árið 1988 fór mótið aftur fram í Þessalóníku og varð Ísland í 15. sæti með 32 vinn- inga. Margeir fékk 7,5 v af 12 mögulegum. Guðmundur hætti eftir mótið í Dubai og Karl eftir mótið í Þess- alóníku. Tveimur árum síðar, í Novi Sad í Júgóslavíu, var Ísland aftur í toppbaráttunni og hafnaði í 8. sæti með 32,5 vinninga. Jóhann fékk 8,5 v í 13 skákum. Árið 1992 fór keppnin fram í Manila á Filippseyjum og enn einu sinni voru Íslendingarnir í stuði. Fengu 33,5 vinninga og 6. sætið varð staðreynd af 102 þjóðum. Færa má fyrir því rök að árangurinn í Manila sé sá besti í sög- unni hjá Íslendingum. Þá var járntjaldið í Austur- Evrópu fallið með þeim afleiðingum að mun fleiri sterk- ar skákþjóðir urðu til, enda voru Sovétríkin helsta stór- veldið í skákinni. Eina Vesturlandaþjóðin sem hafnaði ofar en Ísland var Bandaríkin, sem endaði í 4. sæti, og þau voru með 3 fyrrum Sovétmenn innanborðs. Hannes Hlífar Stefánsson og Þröstur Þórhallsson skipuðu liðið ásamt fjórmenningunum. Hannes var tvítugur þegar teflt var í Manila og stóð sig frábærlega en hann fékk 7 v í 9 skákum og tryggði sér stórmeistaratitil. Árangur ann- arra var eftirfarandi: Jóhann 6,5 v af 12, Margeir 5,5 v af 10, Helgi 5 v af 9, Jón L. 7 v af 11 og Þröstur 2,5 v af 5. Gunnars þáttur Eyjólfssonar Þegar keppnin fór fram í Manila bættist íslenska hópn- um liðsauki úr óvæntri átt, en stórleikarinn Gunnar Eyj- ólfsson var með í för sem eins konar andlegur leiðtogi. Gunnar hefur ekki verið keppnismaður í skák en átti hins vegar að hjálpa skákmönnunum að einbeita sér að verkefninu. Auk þess blés hann þeim baráttuanda í brjóst fyrir hverja umferð með ýmsum aðferðum. Þarna var gerð áhugaverð tilraun hvað varðar andlega þáttinn sem virðist hafa heppnast fullkomlega. Gott dæmi um aðkomu Gunnars er frásögn Margeirs frá mótinu í Manila. „Gunnar hafði mjög góð áhrif og hjálpaði mönnum að ná hámarkseinbeitingu. Þá var líka meiri agi á liðinu. Það voru allir vaktir á sama tíma og gerðu æfingar. Gunnar passaði einnig upp á að menn væru ekki að stúdera yfir sig sem gat valdið því að menn mættu þreyttir í skákirnar. Hann hélt vel utan um mannskapinn hvað þetta varðaði. Ég man eftir því þegar við tefldum við Rúmeníu þá lenti ég á móti manni sem mér hafði gengið illa á móti. Þessi einstaklingur tefldi mjög hratt í byrjun og ætlaði að taka mig á taugum. Ég verð að játa að ég varð talsvert stressaður yfir þessu og þurfti að eyða miklum tíma í að leysa málin. Gunnar skynjaði þetta einhvern veginn og sá að ég var ekki alveg rólegur. Hann mátti auðvitað ekki ræða við mig á meðan skákinni stóð en sendi mér augnaráð með þeim skila- boðum að ég þyrfti að ná mér niður og einbeita mér. Þá gerði ég nokkrar öndunaræfingar í sætinu og andaði mjög djúpt að mér eins og hann hafði kennt okkur. Þá leið mér mun betur og náði jafntefli nokkuð örugglega út úr mjög erfiðu tafli. Ég myndi því segja að þetta jafntefli hafi verið Gunnari að þakka,“ sagði Margeir við Morg- unblaðið þegar hann var beðinn um að rifja upp þátt Gunnars Eyjólfssonar. Fjórmenningarnir kvöddu í Moskvu Árið 1994 var teflt í Moskvu og Ísland varð í 22. sæti með 32,5 vinninga og fékk Margeir fékk 7,5 v af 10. Keppnin í Moskvu var síðasta ólympíuskákmótið sem fjórmenn- ingarklíkan tefldi á. Næsta mót var haldið í Jerevan í Armeníu árið 1996 og þá var Jón L. hættur. Ísland náði 12. sæti með 33 vinninga. Jóhann fékk 7 v af 11. Eftir mótið í Jereven hættu Jóhann og Margeir að tefla með landsliðinu. Helgi hélt áfram, einn fjórmenninganna. Þegar frá líður er auðveldara að átta sig á því hversu sterkum sveitum Ísland tefldi fram með fjórmenn- ingaklíkuna innanborðs. Árangurinn á því tímabili sem hér er rifjað upp er einstakur en síðan 1996 hefur Ísland ekki komist nálægt topp 10 á ólympíuskákmótum. Besti árangurinn á seinni árum er 22. sæti árið 2002 en Ísland hefur oftar en ekki verið að berjast um að vera á meðal 50 efstu. Athyglisvert er að árið 2002 var Gunnar Eyj- ólfsson einnig með í för sem andlegur leiðtogi og virtist það skila árangri eins og í Manila. Ungir og reffilegir menn á leið á keppnisstað til þess að ganga frá andstæðingum sínum. É g man að ég upplifði þetta sem alheims- viðburð. „PR“-gildi viðburðarins fyrir Ís- land var náttúrlega ótrúlegt. Við erum að tala um viðburð sem var á forsíðu heimsblaðanna dag eft- ir dag og viku eftir viku, enda hefur einvígið verið sett í það samhengi síðar að það hafi verið einn stærsti keppnisviðburður á síðustu öld. Ég var 15 ára gamall og var skákmeistari Vestmannaeyja en hafði þó ekki teflt mjög lengi. Mér fannst það ekki ýkja merkilegt í ljósi þess að Fischer hafði orðið stórmeistari 15 ára. Ég sá fimm skákir og þetta var algert ævintýri,“ sagði Helgi þegar Morg- unblaðið bað hann að rifja einvígi Fischers og Spasskís upp. Að mati Helga er árangur Íslands í Dubai og Ma- nila nokkuð svipaður. „Ég held að þetta sé að sumu leyti svipað en við vorum kannski þroskaðri skákmenn í Manila og veraldarvanari. Það liðu náttúrlega sex ár þarna á milli. Það má segja að svipaðar áherslur hafi gert það að verkum að liðið náði vel saman í báðum tilfellum. Við létum ekki einhverja atburði utan taflborðsins vera breytu í atburðarásinni. Við pössuðum upp á að undirbún- ingur fyrir mótin og fyrir skákirnar væri í lagi. Þessi hópur hafði þvælst mikið saman og þekkst árum saman. Þegar ég horfi til baka þá minnist ég þess að það var alltaf góður mórall. Mér finnst það standa svolítið upp úr hvað það var gaman að þessum hóp. Það þýðir þó ekki að menn hafi alltaf verið sammála um alla hluti, heldur var mórallinn almennt góður. Það var glaðværð yfir mönnum og það tóku margir eftir því. Í öðrum liðum var alltaf mikil samkeppni en það var einhvern veginn ekk- ert atriði hjá okkur. Í fyrstu vakti mikla athygli hvað við vorum með sterka sveit en síðan urðum við bara þekkt stærð og það var alltaf vitað að það yrði erfitt að tefla við okkur,“ sagði Helgi. „Mórallinn í hópn- um stendur upp úr“ Helgi Ólafsson M argeir Pétursson segir einvígið 1972 hafa ýtt mjög undir hans metnað. „Fischer og Spasskí voru Tiger Woods þess tíma í mínum huga. Það var ekki fyrr en ’72 að ég uppgötvaði að það væri keppt í skák. Þá varð ég gífurlega áhuga- samur og fór að stúdera skák enda tók ég mjög hröðum framförum. Ég sá bara tvær skákir í heild sinni. Það var dýrt inn en ég fékk oft miða hjá frændum mínum á biðskákirnar því þær voru þá tefldar á vinnutímum,“ sagði Margir í samtali við Morgunblaðið og segir árang- urinn í Manila standa upp úr á ólympíumótunum. „Ég held að árangurinn hafi verið betri í Manila heldur en í Dubai. Í staðinn fyrir að vera með eitt lið þá voru Sovétríkin með tæplega fimmtán lið og þetta voru gríðarlega sterkar sveitir sem bættust við. Það var því töluvert annar bragur á því móti,“ sagði Margeir. Að hans mati urðu ákveðin straum- hvörf árið 1984 þegar Jóhann náði stórmeistaraá- fanga á Búnaðarbankamótinu. „Við höfðum lengi þótt efnilegir en þarna sáum við hinir að þetta var alveg hægt. Menn höfðu nú alveg heilbrigðan metnað og samkeppnin jókst. Þarna náðu menn að brjóta töluvert mikinn ís.“ Margeir segir að það hafi vakið mikla athygli hve sterka sveit Ísland átti á þessum tíma. „Ég hef starfað mikið í ríkjum sem áður tilheyrðu Sovétríkjunum og þar er skákþekk- ing almennt mikil. Þar vita til dæmis allir hver Kasparov er. Menn trúa mér ekki þegar ég segi þeim að Ísland hafi gert 2:2-jafntefli gegn Sov- étríkjunum, með Kasparov og Karpov innanborðs, á ólympíuskákmóti. Menn skilja ekki hvernig það er mögulegt fyrir 300 þúsund manna þjóð,“ sagði Margeir ennfremur. Jafnteflið gegn Sov- étríkjunum vekur athygli í austurvegi Margeir Pétursson

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.