SunnudagsMogginn - 25.07.2010, Síða 44
44 25. júlí 2010
Þriðja plata kanadísku hljómsveitarinnar Ar-
cade Fire, The Suburbs, er væntanleg í
verslanir 2. ágúst næstkomandi og hefst
sveitin strax handa við að fylgja henni eftir
með stóru tónleikaferðalagi, bæði um
Bandaríkin og Evrópu. Sveitin treður upp í
hinum fræga Madison Square Garden, 5.
ágúst og þeir sem ekki hafa nælt sér í miða
á tónleika þurfa ekki að örvænta því þeir
verða í nefnilega í beinni útsendingu á vef-
síðunni YouTube.
Á heimasíðu Arcade Fire má svp sjá stutt
myndband þar sem sveitin notar lagið Ro-
coco til að auglýsa væntanlega útsendingu
á Madison Square Garden-tónleikunum.
Arcade Fire beint frá
New York á YouTube
Fugazi spilaði á eftirminnilegum tónleikum
hérlendis í bílakjallara Ríkisútvarpsins.
Hljómsveitin Fugazi frá Washington D.C.
hefur haft hægt um sig í nær áratug. En
þó að meðlimir sveitarinnar hafi ekki verið
að vinna að nýju efni hafa þeir verið dug-
legir að koma öllum tónleikaupptökunum
sínum á stafrænt form. Í viðtali við aðdá-
endasíðuna World of Fugazi sagði söngv-
arinn og gítarleikarinn Guy Picciotto að
ekki væri langt þangað til sveitin gæti boð-
ið upp á niðurhal af nánast öllum tón-
leikum Fugazi í gegnum heimasíðu
hljómsveitarinnar, sem samkvæmt Pic-
ciotto gæti farið í loftið seint í ár eða í byrj-
un þess næsta. Spurning hvort tónleika
Fugazi hér á landi í bílakjallara Rík-
isútvarpsins verði að finna á síðunni.
Tónleikar Fugazi
væntanlegir á netið
Vinsældir og tónar Mariuh Ca-
rey náðu hæstu hæðum árið
1993 er hún gaf út þriðju plötu
sína, Music Box. Á þeim tíma
ríkti sannkallað Mariuh Carey-
æði sem glögglega má lesa úr
sölutölum plötunnar, en hún
hefur verið seld í hvorki meira
né minna en 32 milljón eintökum.
Music Box er söluhæsta plata söngkon-
unnar frá upphafi og jafnframt ein sú
söluhæsta í heiminum. Þó svo að platan
hafi einungis að geyma 10 lög slógu þau
flest í gegn og lentu ofarlega á toppi allra
helstu vinsældalista. Carey hlaut tilnefn-
ingar til Grammy-verðlaunanna fyrir
lögin „Dreamlover“ og „Hero,“ en þau
lög eru enn reglulega í spilun á útvarps-
stöðvum. Önnur lög af plötunni
sem einnig bregður þar fyrir eru
„Without You,“ „Anytime You
Need A Friend“ og „All I’ve Ever
Wanted.“ Söngkonan gerði lag-
ið „Hero“ í raun aftur frægt er
hún flutti það á minningartón-
leikunum um þá sem féllu í
árásunum á tvíburaturnana í Bandaríkj-
unum árið 2001.
Platan varð fljótt einkar vinsæl í
söngvakeppnum, þrátt fyrir að hið víða
tónsvið söngkonunnar og hinar yfirdrifnu
lykkjur væru á færi fæstra. Í lögunum
„Dreamlover“ og „Anytime You Need A
Friend“ syngur Carey svo háar nótur að
maður trúir vart sínum eigin eyrum. Þó
svo að það sé eflaust algengt að söngvarar
nútímans lyfti rödd sinni upp með hjálp
tækninnar voru engar tæknibrellur í söng
Carey. Á tónleikum tók hún allan tón-
skalann og söng hann eins og engill.
Á söngferli sínum hefur söngkonan
sent frá sér 12 plötur. Jóladiskur hennar,
Merry Christmas, sem kom út á eftir Mu-
sic Box sló í gegn, en eftir útgáfu hans fór
að halla undan fæti hjá henni.
Árið 1999 gerði Carey tilraun til að end-
urheimta frægð sína og birtist á plötu-
umslagi Rainbow á nærfötunum einum.
Hin undursamlega hreina rödd hennar
passaði engan veginn við þessa hegðun
hennar og fékk hún því á sig einhvers
konar „klám“ stimpil sem hún reynir enn
í dag að hrista af sér.
Hugrún Halldórsdóttir
Poppklassíkin Mariah Carey – Music Box
Háir tónar og yfirdrifnar lykkjur
E
ftir að hafa sagt skilið við menntaskóla
aðeins 17 ára gamall gekk Tom nokkur
Petty til liðs við eina af efnilegustu
hljómsveit Flórída-ríkis, Mudcrutch.
Þar hitti hann fyrir þá Mike Campbell og Ben-
mont Tench sem síðar áttu eftir að gerast með-
limir hljómsveitar Petty, The Heartbreakers.
Petty sem var nýjasti meðlimur Mudcrutch var
sendur til Los Angeles og falið það verkefni að
landa útgáfusamningi, sem honum tókst. Það
var þó ekki nóg til að halda hljómsveitinni sam-
an og stuttu eftir flutninginn til borgar englanna
var Mudcrutch lögð niður.
Hefst þá saga The Heartbreakers. Petty hafði
heyrt upptökur sem Campbell og Tench höfðu
unnið að með Ron Blair og Stan Lynch og saman
stofnuðu þeir félagar hljómsveitina The Heart-
breakers, þar sem tólf strengja Rickenbacker-
gítar og rödd Pettys var drifkrafturinn og stuttu
seinna kom út platan Tom Petty and the Heart-
breakers. Í fyrstu seldist hún illa, þrátt fyrir að á
henni væri að finna smelli eins og „Breakdown,“
sem var heilt ár að komast inn á topp fjörutíu
listann í Bandaríkjunum og lagið sem hvert
mannsbarn ætti að kunna „American Girl,“ sem
tekið var upp af sjálfum Roger McGuinn úr The
Byrds. En þó að hljómsveitin væri komin á flug
brotlenti Petty stuttu seinna þegar endurnýja
átti samning hans við útgáfuna og árið 1979 lýsti
hann sig gjaldþrota. Það tók hann nærri ár að ná
sér á strik aftur og eftir að hafa bankað upp á hjá
Backstreet Records snéri Petty aftur með plöt-
una Damn the Torpedoes sem selst hefur í millj-
ónum eintaka og er löngu orðin ein af meist-
arastykkjum rokksögunnar.
Í gegnum tíðina hefur uppreisnarseggurinn
Petty ekki alltaf verið sammála útgefendum sín-
um í því hvernig eigi að stunda viðskipti með
tónlist og aldrei hefur hann legið á skoðunum
sínum. Þegar MCA-útgáfan ætlaði að rukka 9.98
dollara fyrir plötuna hans Hard Promises sem
var einum dollar meira en flestir rukkuðu þá,
hótaði Petty að hætta við útgáfuna eða einfald-
lega kalla hana 8.98$. MCA lét undan og síðan þá
hefur platan náð platínusölu og Petty verið
þekktur fyrir að hugsa vel um aðdáendur sína.
Hann bauð upp á frítt niðurhal af fyrstu smá-
skífu plötunnar Echo og neitaði að hækka miða-
verð á tónleikaferðalagið, ákvarðanir sem ekki
voru útgefendum hans að skapi.
Eftir nærri fjóra áratugi í tónlistarbransanum
er Petty ekkert að slá slöku við. Árið 2008 end-
urvakti hann Mudcrutch og fyrsta plata þeirra
kom út. Hann er nú á tónleikaferðalagi um
Bandaríkin að fylgja eftir útgáfu nýjustu plötu
Tom Petty & The Heartbreakers, Mojo.
Ameríska undrið
Hann gaf út sína fyrstu hljómplötu árið 1976 og flestir
kunna a.m.k eitt af lögum hans. Hann hefur barist við
og gagnrýnt útgefendur allan sinn feril. Þetta er að
sjálfsögðu Tom Petty, maður fólksins.
Matthías Árni Ingimarsson matthiasarni@mbl.is
Uppreisnarseggurinn Tom Petty hefur samið nokkur af þekktustu lögum rokksögunnar og nýlega kom út nýjasta platan hans, Mojo.
Hljómsveitin The Traveling
Wilburys var ein sú fyrsta sem
var nefnd súpergrúppa í tónlist-
arheiminum, en meðlimir
hennar voru engir meðaljónar
þegar kom að tónlist. Hana
skipuðu nefnilega stór stjörn-
urnar George Harrison, Jeff
Lynne, Roy Orbison, Tom Petty
og Bob Dylan. Sveitin gaf út
tvær plötur á árunum 1988 til
1990, Traveling Wilburys Vol. 1
og Traveling Wilburys Vol. 3.
Stórstjörnurnar Orbison (v),
Lynne, Dylan, Harrison og Petty.
Traveling
Wilburys
Tónlist
Í vikunni var tilkynnt hvaða hljómsveitir og
tónlistarmenn eru tilnefndir til hinna virtu
Mercury-verðlauna. Hljómsveitinar The XX
og Mumford & Sons verða að teljast líklegir
sigurvegarar en þær hafa báðar átt góðu
gengi að fagna það sem af er árinu. Elli-
smellurinn og fyrrum meðlimur The Jam og
Style Council, Paul Weller, er einnig til-
nefndur í ár og í fyrsta skipti í ein 16 ár.
Tilnefningar í ár eru: Biffy Clyro, Corinne
Bailey Rae, Dizzee Rascal, Kit Downes Trio,
Foals, I Am Kloot, Laura Marling, Mumford &
Sons, Paul Weller, Villagers, Wild Beasts og
The XX.
Reuters
Mercury-verðlaunin