Morgunblaðið - 14.01.2010, Side 38

Morgunblaðið - 14.01.2010, Side 38
38 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2010 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ...OG ÞESS VEGNA FÓR ÉG... BÍDDU... ÞÚ ERT EKKI JÓN! ÞÚ ERT PLANTA! JÓN, ÞÚ ÆTTIR AÐ GANGA MEÐ NAFNSPJALD ÉG VIL TALA VIÐ ÞIG, KALLI MÉR ?!? YNGRI KYNSLÓÐIR ÆTTU ALLTAF AÐ GETA KENNT ÞEIM ELDRI UM ÖLL VANDAMÁL SÍN... ÞAÐ LEYSIR ENGIN VANDAMÁL EN LÆTUR FÓLKI LÍÐA BETUR SEM SÁLFRÆÐINGUR SYSTUR ÞINNAR ÆTLA ÉG AÐ KENNA ÞÉR UM ALLAN HENNAR ÓTTA HELGA, ÉG ÆTLA NIÐUR Í KJALLARA AÐ NÁ MÉR Í BJÓR ALLT Í LAGI FLEST FÓLK ER MEÐ VÍNKJALLARA Í HÚSINU SÍNU HRÓLFUR ER MEÐ BJÓR- KJALLARA VIÐ KOMUMST AÐ ÞVÍ Í GÆR AÐ VIÐ HÖFUM VERIÐ GIFT Í FIMM ÁR ÁN ÞESS AÐ VITA AÐ VIÐ VÆRUM BÆÐI OFURHETJUR FRÁBÆRT ÞAÐ ER SVO LANGT SÍÐAN VIÐ HÖFUM HAFT TÍMA FYRIR OKKUR SJÁLF BARA SVIPAÐ LANGT OG VENJULEGA VIÐ HÖFUM YFIRLEITT TÍMA FJÓRÐA HVERT ÁR LALLI, FORELDRAR MÍNIR ÆTLA AÐ PASSA KIDDU UM HELGINA. EFTIR AÐ KALLI FER Í SUMARBÚÐIR HÖFUM VIÐ TVO DAGA FYRIR OKKUR TVÖ SAMT ALLT OF LANGT SÍÐAN... ...KÓNGU- LÓARMAÐURINN VERÐUR AÐ HÆTTA AÐ FELA SIG OG HANDSAMA VULTURE... ANNARS BYRJUM VIÐ AÐ KALLA HANN KJÚKLINGA- MANNINN JAMESON HLÝTUR AÐ VERA MJÖG ÁNÆGÐUR NÚNA HÚN ER Á MÓTI KÓNGULÓAR- MANNINUM! EN ÞAÐ ER MITT STARF! MEIRA AÐ SEGJA MARÍA LOPEZ ER Á MÓTI MÉR Vinstri stjórn á ekki að einkavæða ÉG sé í blöðunum að hugmyndin er að bjóða út rekstur nýs hjúkr- unarheimilis við Suð- urlandsbraut sem á að koma í stað Vífilsstaða og Víðiness. Er ekki vinstri stjórn í land- inu? Vinstri stjórn á ekki að einkavæða eða bjóða út. Nú er fyrsti maí framundan, bar- áttudagur verkalýðs- ins, og þá þurfa Sókn- arstúlkur að standa saman gegn þeim sem vega að hagsmunum þeirra og starfsréttindum á mörgum sviðum, en ekki fylgja Ögmundi út í fenið. Jóhann Már Guðmundsson. Dynjandi? Í Morgunblaðinu 12. janúar er mynd af fossi á bls. 6 og stendur undir myndinni „Fjallfoss í Dynj- anda“. Nafnið á þess- um fossi hefur verið nokkuð á reiki. Ég var að vinna hjá Vegagerð ríkisins í Arnarfirði fyrir tæp- lega hálfri öld. Þá hitti ég að máli gaml- an mann sem hafði verið bóndi á bænum Dynjanda á yngri ár- um en bærinn var í Dynjandisvogi neðan við fossinn. Ég var þá að dást að foss- inum sem ég nefndi Fjallfoss. Gamli mað- urinn brást hinn versti við og sagði: „Fossinn heitir Dynjandi og áin Dynjandisá. Hann heitir ekki og hefur aldrei heitið Fjallfoss. Þetta er einhver seinni tíma ferðafélags- rómantík.“ Ég hef ekki vogað mér að nota annað nafn en Dynjandisnafnið eft- ir þetta. Nú veit ég ekki hvaða nafn Arnfirðingum og þá helst fólki úr Auðkúluhreppi er tamt. Við þeim hefur fossinn blasað. Hvað segja þeir um nafn á honum. Mér finnst nafnið Dynjandi eðli- legt og rökrétt. Það má ekki glat- ast. Emil Hjartarson. Ást er… … það sem heldur ykkur á floti. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa opin kl 9- 16.30 , vatnsleikf. í Vesturbæjarl. kl. 10.50, myndl. kl. 13, prjónakaffi kl 13, bókmenntakl. kl. 13.15, skrán. hafin í leikhús 23. jan. og þorrablót 22. jan. Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handav. og smíði/útskurður kl. 9, boccia kl. 9.30, helgist. kl. 10.30, myndl. kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 | Þorrablót 29. jan, Þorvaldur Halldórss. leikur, Sparitónar, happdr. Skrán. og greiðsla f. 27. jan. Dalbraut 18-20 | Viðtalstími hjúkr- unarfr. frá kl. 10-12, bókabíll kl. 11.15, dansh. kl. 13.30, samverust., sr. Bjarni Karls. kl. 15.15. Dalbraut 27 | Handavinnust. kl. 8-16, upplestur kl. 14-15. Félag eldri borgara, Rvk. | Brids kl. 13. Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05 og 9.55, málm-/silfursm. kl. 9.30, bókb. kl. 13 og myndl. kl. 16.30. Skrán. á þorrablótið 23. jan. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Hand- av./ganga/bossía kl. 10, handav. og brids kl. 13, jóga kl. 18. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 11, vatns- leikf. í Sjálandi kl. 12, handav. og karla- leikf. kl. 13, botsía kl 14. Félagsstarf Gerðubergi | Helgistund kl. 10.30, umsj. sr. Svavar Stefánsson, vinnust. frá hád. perlu-/ bútasaumur, leiðs. í myndl. fellur niður. Heilsuefling kl. 13 í World Class. Á morgun kl. 10 prjónakaffi, gestur Guðrún Kristjánsd. Hraunbær 105 | Handav. kl. 9, postulín, leikf. byrjar 19. jan. kl. 10, boccia kl. 11, matur kl. 11:45, félagsvist kl. 13.30, fé- lagsvist kl. 14.30, kaffi. Hraunsel | Rabb og samvera kl. 9, QI- gong kl. 10, leikf. kl. 11.20, glersk. kl. 13, félagsvist kl. 13.30, vatnsleikf. kl. 14.10. Hvassaleiti 56-58 | Boccia kl. 10, hannyrðir kl. 13, félagsvist kl. 13.30, veitingar, böðun fyrir hádegi. Hæðargarður 31 | Við hringborðið kl. 8.50, Stefánsganga kl. 9, glerskurður. Thachi kl. 9, leikfimi 10. Þegar amma var ung kl. 10.50, sönghópur Hjördísar Geirs kl. 13.30, gáfumannakaffi kl. 15, línudans kl. 15. Myndlistars. Geirharðs Þorsteins. kl. 16. Uppl. í s. 411-2790. Íþróttafélagið Glóð | Hringdansar í Kópavogsskóla kl. 17, www.glod.is. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun er listasmiðjan á Korpúlfsst. með gler- iðnað og tréútskurð, opið kl. 13-16. Sundleikf. í Grafarvogssundl. á morgun kl. 9.30. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu- stund, spjall/léttar æf. kl. 10, hand- verks-/bókastofa opin kl. 13, boccia kl. 13.30, kaffi kl. 14.30, þjóðlagast. kl. 15. Vesturgata 7 | kl. 9-16, Handavinna kl. 9-16, kertaskr. kl. 9.15, ganga kl. 10, matur, Tiffanys, kóræfing og leikfimi kl. 13. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bók- band, postulín, morgunst. kl. 9.30, boccia kl. 10.00, uppl. framh. saga kl. 12.30, handavinnust. kl. 13, bridge frjálst, stóladans kl. 13.15. Sigrúnu Haraldsdóttur datt í hug– og auðvitað í bundnu máli: Hann Fúsi með fölrauða kollinn fann með sér ánægjuhrollinn sá ágæti maður varð óhemjuglaður er Dómhildur datt oní pollinn. Árni Jónsson veltir atburða- rásinni fyrir sér: Varla það vefst fyrir okkur og vafi þar leikur ei nokkur, sama hvað innst Sigrúnu finnst, er Dómhildur drullusokkur. Og ekki er Fúsi skárri, að mati Sigrúnar, sem svarar: Fúsa ég hrekkjóttan hrotta tel hrappinn þann breitt sá ég glotta vel er röggsamir læknar og ræstingatæknar dengd‘enni Dómhildi í þvottavél. Ekkert er vitað um kunningsskap Dómhildar og Fúsa við Dan byttu, sem kemur fyrir í limru Davíðs Hjálmars Haraldssonar. En víst er að Dan er sannkallað fúlmenni: Dan bytta drap mann í skrjóði og druslan var löðrandi í blóði. Svo fór Dan í ríkið en fyrst þvoð́ann líkið; „maður er ekki ótíndur sóði.“ Höskuldur Jónsson færir þanka um þjóðmálin í sléttubönd, sem flytja má aftur á bak og áfram, en um leið breytist merking vísunnar: Fórnar lýðnum, aldrei er önnum sínum vaxin. Stjórnar illa, sjaldan sér sekan bankalaxinn. Vísnahorn pebl@mbl.is Af Fúsa og Dómhildi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.