Morgunblaðið - 30.01.2010, Síða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór
Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Ísfirðingar og aðrir Vestfirðingar hafa síðustu
daga fagnað hækkandi sól, er hún sést aftur rísa
yfir fjallsbrúnirnar. Þannig hélt Ísfirðinga-
félagið í Reykjavík sitt árlega Sólarkaffi í gær-
kvöldi. Þessar ungu dömur á Ísafirði tóku for-
skot á sæluna í vikunni er þær snæddu nestið sitt
á Ráðhústorginu í blíðviðrinu. Súkkulaðisnúður
og svaladrykkur minnir okkur að mörgu leyti á
að það styttist í sumar og sól með degi hverjum.
Vestfirðingar og aðrir landsmenn fagna hækkandi vetrarsól
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sólarkaffi með súkkulaðisnúð
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„ÞEIR vildu fá að vita hvers vegna
við erum svo áhugasöm um að fá fé
okkar til baka. Ég mun útskýra það
fyrir þeim, enn einu sinni. Allir eru að
leita að lausn. Ef til vill hafa Íslend-
ingarnir eina í bakhöndinni,“ sagði
Wouter Bos, fjármálaráðherra Hol-
lands, og vísaði til fulltrúa Íslands í
aðdraganda fundarins með Paul Myn-
ers, bankamálaráðherra Bretlands,
og formönnum þriggja íslenskra
stjórnmálaflokka í Haag í gær.
Fundað var í hollenska fjármála-
ráðuneytinu og hvikaði Bos þar ekki
frá þeirri kröfu hollenskra stjórn-
valda að Ísland greiði 1,3 milljarða
evra lán vegna Icesave að fullu.
Leyndarhjúpur yfir viðræðum
Mikil leynd hvíldi yfir fundinum og
herma heimildarmenn Morgunblaðs-
ins á hollenskum dagblöðum að þar
viti menn lítið meira um efni viðræðn-
anna en fram hefur komið í stuttum
viðtölum við ráðherrann.
Fundinn sátu fyrir Íslands hönd
þeir Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra, Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins, og
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, for-
maður Framsóknarflokksins, ásamt
fulltrúa Össurar Skarphéðinssonar
utanríkisráðherra.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var um upplýsingafund en
ekki samninga-
fund að ræða, þar
sem samningsað-
ilar skiptust á
skoðunum en
könnuðu ekki af-
stöðu til einstakra
samningsmark-
miða, á borð við
vaxtakjör af Ice-
save-láninu, en
heimildir blaðsins
höfðu áður hermt að áhersla yrði lögð
á vaxtastigið.
Litlar væntingar Hollendinga
David Bremmer, blaðamaður hjá
Algemeen Dagblad, ræddi við fulltrúa
hollenskra stjórnvalda fyrir fundinn
og var það tilfinning hans að vænting-
arnar væru ekki miklar. Frá sjónar-
hóli hollenskra stjórnvalda væri til-
gangurinn fyrst og fremst að fá
skýrslu um stöðuna á Íslandi.
Frekari fundarhöld hafa ekki verið
ákveðin en samkvæmt heimildum
blaðsins er litið svo á að Bretar séu
ráðandi um framvindu málsins af
hálfu ríkjanna tveggja.
Þá herma heimildir blaðsins að
Hollendingar reikni ekki með því að
málið fari fyrir dómstóla en sá mögu-
leiki hefur verið reifaður með laga-
legum rökum af íslenskum lögspek-
ingum undanfarið.
Áhersla hollenskra fréttavefsíðna á
málið síðdegis í gær vitnar um hversu
miklu smærra mál það er í hol-
lenskum stjórnmálum en íslenskum
en samgöngumál í Amsterdam og
hugsanleg skattlagning á efnafólk
þóttu þá meira fréttaefni.
Halda fast í greiðslukröfuna
Fjármálaráðherra Hollands krefst fullrar endurgreiðslu af Icesave-láninu af Íslands hálfu Bresk
stjórnvöld talin leiða framvinduna af hálfu ríkjanna tveggja Litlar væntingar hollenskra stjórnvalda
Mikil leynd hvílir yfir fundi full-
trúa Íslands, Bretlands og
Hollands um Icesave-málið í
hollenska fjármálaráðuneytinu í
Haag í gær. Vilji Hollands til eftir-
gjafar sýnist takmarkaður.
Steingrímur J.
Sigfússon
Bjarni
Benediktsson
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
TOYOTA í Evrópu hefur ákveðið að innkalla átta teg-
undir bifreiða vegna vandamála í eldsneytisgjöf. Áætl-
að er að innkalla þurfi fimm þúsund Toyota-bifreiðar
hér á landi vegna þessa, en í Evrópu allri er talið að inn-
kalla þurfi 1,8 milljónir bifreiða.
Vandamálið stafar af sliti í eldsneytisgjöf, sem við
ákveðnar aðstæður getur orðið til þess að bensíngjöfin
lyftist hægar til baka eftir að stigið hefur verið á hana
eða festist jafnvel niðri.
Í fréttatilkynningu frá Toyota á Íslandi segir að fyr-
irtækið muni gera allt sem í valdi þess stendur til að
„hefja þær fyrirbyggjandi aðgerðir sem félagar okkar
hjá Toyota í Evrópu hafa boðað sem allra fyrst“. Í Evr-
ópu hafa verið tilkynnt 26 tilvik umrædds vandamáls,
segir í tilkynningunni, en ekki hafi borist neinar fregnir
af slysum af þessum sökum.
Hér til hliðar má sjá hvaða tegundir um ræðir og
hvenær þær voru framleiddar, en samkvæmt tilkynn-
ingunni hefur vandamálið ekki komið upp í öðrum gerð-
um Toyota né í Lexus-bifreiðum. Haft verður samband
við eigendur umræddra bifreiða og þeir beðnir um að koma
með bílinn til viðurkennds þjónustuaðila Toyota, sér að
kostnaðarlausu. hlynurorri@mbl.is
Innkalla þarf þúsundir
Toyota-bíla hér á landi
LÖGREGLAN í
Borgarfirði og
Dölum hefur
upplýst innbrot í
sjö sumarbústaði
í Borgarfirði. Við
rannsókn málsins
féll grunur á tvo einstaklinga og í
samvinnu við lögregluna á Snæ-
fellsnesi voru þeir handteknir í
Ólafsvík síðdegis á fimmtudag. Lög-
reglan gerði húsleit á tveimur stöð-
um í Ólafsvík og gerði þýfi upptækt.
Tvímenningarnir voru yfirheyrðir
af lögreglunni í Borgarnesi í gær.
Auk þjófnaðar á sjónvarpstækjum,
flatskjám, uppþvottavélum og fleiru
eru mennirnir grunaðir um að hafa
stolið vélsleða á kerru í Borgarnesi.
Þýfið er að mestu komið í leitirnar
að sögn lögreglu.
Brotist inn í sjö
sumarbústaði
í Borgarfirði
FÓLKSBÍLL fór út af Siglufjarðar-
vegi við bæinn Hlíðarenda í Ós-
landshlíð í Skagafirði um hálftíu-
leytið í gærkvöldi.
Ökumaður, sem var einn í bíln-
um, var með meðvitund þegar að
var komið en slasaður. Hann var
fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahús á
Akureyri. Að sögn lögreglunnar á
Sauðárkróki er bíllinn mikið
skemmdur eftir óhappið.
Slasaðist í bílveltu
í Óslandshlíð
F É L A G Í S L E N S K R A
B Ó K A Ú T G E F E N D A
BÓKAMARKAÐUR 2010
Árlegur Bókamarkaður Félags
íslenskra bókaútgefenda verður
Í Perlunni 19. febrúar til 7. mars
næstkomandi.
Útgefendur sem vilja bjóða
bækur sínar á markaðinum er
bent á að hafa samband við
Félag íslenskra bókaútgefenda
sem fyrst, eða eigi síðar en
5. febrúar nk., í síma 511 8020
eða á netfangið baekur@simnet.is
Aðeins verður tekið á móti bókum
sem komu út 2008 eða fyrr.
AYGO, febrúar 2005 til ágúst 2009
iQ, nóvember 2008 til nóvember 2009
Yaris, nóvember 2005 til nóvember 2009
Auris, október 2006 til 5. janúar 2010
Corolla, október 2006 til desember 2009
Verso, febrúar 2009 til 5. janúar 2010
Avensis, nóvember 2008 til desember 2009
RAV4, nóvember 2005 til nóvember 2009
Tegundir og framleiðslutími