Morgunblaðið - 30.01.2010, Side 22

Morgunblaðið - 30.01.2010, Side 22
22 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2010 Þetta helst ... MIKLAR hrær- ingar voru á skuldabréfa- markaðnum í vik- unni. Það má rekja til síðustu verðbólgumæl- ingar Hagstof- unnar. Sam- kvæmt henni mældist verð- bólga í janúar 6,6% á ársgrundvelli en flestir sér- fræðingar höfðu spáð verðbólguskoti við upphaf ársins sem myndi svo vara fram á vor. Viðbrögð fjárfesta fólust í því að fara úr verðtryggðum íbúðabréfum yfir í óverðtryggð ríkisbréf. Sam- kvæmt skuldabréfavísitölu Gamma lækkuðu verðtryggð bréf um 2,4% í vikunni en vísitalan fyrir óverð- tryggðu bréfin hækkaði um 1,3%. Segja má að ekkert lát hafi verið á þróuninni í gær en þá lækkaði vísi- talan fyrir verðtryggðu bréfin um 0,8% á meðan hún hækkaði um 0,2 fyrir óverðtryggðu bréfin. Heildar- veltan á skuldabréfamarkaði nam tæpum níu milljörðum króna í gær. Sviptingar í skuldabréf- unum Fornt íslenskt rík- iskuldabréf TÆPLEGA sex prósent hagvöxt- ur var í Banda- ríkjunum á síð- asta fjórðungi í fyrra. Hagvöxtur hefur ekki mælst meiri þar í landi í sex ár. Er þetta mikill aukning á milli fjórðunga en hagvöxtur mældist 2,2% á ársgrundvelli mán- uðina á undan. Samkvæmt Financial Times þá höfðu sérfræðingar spáð tæplega 5% hagvexti síðustu mánuði ársins og eru því tölurnar talsvert umfram væntingar. Þrátt fyrir þenn- an mikla hagvöxt er talið að hann sé fyrst og fremst tilkominn vegna tímabundinna þátta og að hann muni hægjast á ný á næstunni. Ekki meiri hagvöxtur í sex ár Bandarísk eyðslukló Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is HUGSANLEGT er að hluti endur- fjármögnunar sparisjóðanna fari fram með þeim hætti að hluta skulda sjóðanna við Seðlabankann verði breytt í eigið fé eða víkjandi lán. Stofnfé verði svo afskrifað að því marki sem varasjóður viðkomandi sparisjóðs er neikvæður. Kom þetta fram í máli Tryggva Pálssonar, framkvæmdastjóra fjármálasviðs Seðlabankans, á fundi efnahags- og viðskiptaráðuneytis í gær. Sagði hann að Seðlabankinn myndi senda samdægurs, þ.e.a.s. í gær, þeim sparisjóðum bréf, sem sótt hafa um eiginfjárframlag frá ríkinu, þar sem reifaðir væru skil- málar um meðferð á kröfum Seðla- bankans á hendur sjóðunum. Gangi sjóðirnir að þessum skilmálum er gert ráð fyrir því að þeir dragi til baka umsóknir sínar um eiginfjár- framlag. Ekkert bréf borist Gísli Jafetsson, starfsmaður Sam- bands sparisjóða, segir hins vegar ekkert bréf hafa borist til sparisjóða í gær og að hann viti því ekki ná- kvæmlega hvað felist í skilmálum Seðlabankans. „Við fögnum því hins vegar ef einhver lokalausn á vanda sparisjóðanna er í sjónmáli.“ Við fall Sparisjóðabankans í mars í fyrra fluttust innistæður sparisjóða hjá honum til Seðlabankans. Til mót- vægis voru kröfur Sparisjóðabank- ans á hendur sparisjóðunum einnig fluttar til Seðlabankans, og varð hann því einn stærsti kröfuhafi smærri sparisjóða. Hugmyndin er, eins og áður segir, að breyta hluta þessara krafna í eigið fé hjá spari- sjóðunum. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins mun þessi leið hins vegar ekki duga til að bjarga stærri spari- sjóðum eins og Byr eða Sparisjóði Keflavíkur. Þá muni hún ekki fela í sér neina niðurfellingu eða afskriftir á skuldum sparisjóðanna. Skuldbreyting komi í stað eiginfjárframlags Morgunblaðið/Ómar Sparisjóðir Eftir fall Sparisjóðabankans tók Seðlabankinn yfir innstæður sparisjóðanna í bankanum og sömuleiðis kröfur hans á sjóðina. Ný hugmynd kynnt um lausn á vanda sparisjóðanna Skuldatryggingaálagið á íslensk rík- isskuldabréf til fimm ára fór yfir 700 punkta í gær en endaði í 690 stigum. Nam hækkunin um 40 punktum þeg- ar verst lét. Þróunin var í takt við það sem er að gerast á skuldabréfa- mörkuðum þessa dagana en kastljós fjárfesta beinist nú að hættunni á mögulegu greiðslufalli einstakra ríkja. Grikkland er efst á baugi í þeim efnum en fjárfestar telja tví- sýnt hvort stjórnvöldum þar í landi takist að fjármagna hallarekstur rík- isins á þessu ári. Ávöxtunarkrafa á grískum ríkisskuldabréfum hefur hækkað mikið í þessari viku og hefur hún aldrei verið hærri borið saman við þýsk ríkisskuldabréf – sem þykja þau traustustu á evrusvæðinu – frá því að Grikkir tóku upp evruna. Grísk áhrif á Íslandi Skuldatryggingálagið fór yfir 700 stig í gær FRÉTTASKÝRING Eftir Örn Arnarson ornarnar@mbl.is SAMKVÆMT bráðabirgðatölum Hagstofunnar var vöruskiptajöfnuðurinn á síðasta ári hag- stæður um 87 milljarða króna og hefur hann aldrei verið meiri. Samtals voru fluttar út vörur fyrir 497 milljarða í fyrra og nam verðmæti inn- flutnings 410 milljörðum. Þessi hagstæði jöfn- uður skýrist fyrst og fremst af algeru hruni í innflutningi en miðað við fast verðlag dróst verðmæti innfluttra vara saman í fyrra um 35% frá því árið áður. Verðmæti útflutnings á föstu verðlagi dróst þó mun minna saman eða um 20%. Þetta þýðir með öðrum orðum að það er mikill samdráttur í bæði einkaneyslu og fjár- festingu hér á landi sem stendur undir hinum mikla afgangi af vöruskiptum við útlönd. Eins og fram kemur í tilkynningu Hagstofunnar dróst innflutningur saman í öllum flokkum. Samdrátturinn var kringum 35% í hrá- og rekstrarvörum, eldsneyti og fjárfest- ingavörum. Samdráttur í innflutningi á bílum og öðrum flutningstækjum nam um 50%. Ljóst má vera að vöruskiptajöfnuðuiinn hefði litið mun verr út ef verð á hrávörum og sjávarfangi í erlendri mynt hefði ekki hækkað umtalsvert frá því í vor. Heimsmarkaðsverð á áli í dag er um 2200 dalir á tonnið og hefur það hækkað úr því að vera á bilinu 1600-1800 dalir á tonnið síðasta sumar. Þróunin á heimsmark- aðsverði á áli hefur eðli málsins samkvæmt haldist í hendur við verðþróun á öðrum hrá- vörum sem hafa hækkað mikið frá því í mars í fyrra. Til þess að viðskiptajöfnuðurinn haldist í svipuðum hæðum á þessu ári er mikilvægt að álverð haldist áfram hátt. Horfurnar á þróun álverðs byggjast fyrst og fremst á þróunar eft- irspurnar í hagkerfum heims. Alþjóðagjald- eyrissjóðurinn er til að mynda bjartsýnn á hagvaxtarhorfurnar yfir heildina í ár en tekur þó fram í greiningu sinni að hætturnar á því að ólga á fjármálamörkuðum magnist upp á ný og grafi þar með undan eftirspurn og hagvexti séu enn þó nokkrar. Verðhækkanir á sjávarafurðum í erlendri mynt Það sama gildir um sjávarafurðir en afurða- verð á þeim í erlendri mynt hækkaði umtals- vert á síðari helmingi ársins í fyrra. Sam- kvæmt útreikningum greiningarfyrirtækisins IFS hækkaði afurðaverð sjávarafurða í er- lendri mynt um 7% frá því í mars í fyrra. Síð- ustu þrjá mánuði ársins hækkaði verð sjáv- arafurða um 5,4% og samkvæmt IFS stendur verðþróun á sjófrystum botnfiskafurðum undir hækkunum að undanförnu og njóta því útgerð- ir frystitogara þess. Verð á fiskimjöli er einnig í sögulegu hámarki þannig að það er mikið í húfi fyrir útgerðir uppsjávarskipa að loðna finnist í veiðanlegu magni nú á vetrarvertíðinni og að gæftir verði góðar þegar kemur að mak- ríl- og kolmunnaveiðum. Það ætti jafnframt að bæta horfurnar með vöruskiptajöfnuðinn á þessu ári að verð á sjáv- arfangi í erlendri mynt er býsna hátt í sögu- legu samhengi á sama tíma og vetrarvertíðin er að bresta á með fullum þunga. Afurðaverðið í erlendri mynt er nú sambærilegt við það sem gerðist árið 2006 en á þeim tíma hafði það ekki verið hærra í tæp fimm ár. Viðskiptajöfnuðurinn aldrei meiri Hrun á innflutningi útskýrir hagstæðan viðskiptajöfnuð. Heildarverðmæti útflutnings miðað við fast verðlag dróst saman um fimmtung í fyrra. Verðmæti sjávarafurða í erlendri mynt fer hækkandi. Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is TAP Nýherja á síðasta ári nam alls 686 milljónum króna, en tekjur dróg- ust saman um fjögur prósent á árinu og námu um 14,3 milljörðum króna. Forstjóri fyrirtækisins segir reksturinn hafa verið afar erfiðan í fyrra, en aðstæður á íslenskum markaði hafi einkennst af miklum samdrætti í eftirspurn. „Tugir millj- arða króna hafa verið afskrifaðir af skuldum helstu keppinauta félagsins og fyrirtækin endurreist í eigu rík- isbanka. Þessar aðgerðir raska samkeppnisaðstæðum og afkomu annarra fyrirtækja á upplýsinga- tæknimarkaði.“ Eignir drógust saman um 5,3 pró- sent á árinu og námu í árslok 9,6 milljörðum króna. Langtímaskuldir hafa minnkað um rúman milljarð og eru 1,5 milljarður króna, en skamm- tímaskuldir hafa hins vegar aukist um 1,3 milljarða og eru 6,8 milljarð- ar. Alls jukust vaxtaberandi skuldir fyrirtækisins um rúman hálfan millj- arð króna og nema nú 5,5 milljörðum króna. Segir í tilkynningu að breyttum aðstæðum hafi verið mætt með ýms- um aðhaldsaðgerðum, þar á meðal hafi starfsmenn tekið á sig 10 pró- senta launalækkun, en einnig hefur starfsmönnum Nýherja og dóttur- félögum þess hérlendis fækkað um nær eitt hundrað. Tryggingagjaldið þungbært Þá segir að óvissan um efna- hagsþróun hér á landi, dráttur á al- mennum ráðstöfunum gagnvart at- vinnufyrirtækjum og skortur á framtíðarsýn um úrlausn stærri þjóðfélagsmála valdi því að ekki hafi enn myndast eðlilegt rekstrarum- hverfi né viðspyrna hjá fyrirtækjum. Þá séu skattahækkanir á fyrirtæki og starfsmenn mjög íþyngjandi. Hækkun tryggingagjalds um 62 pró- sent á árinu sé byrði fyrir rekstur þekkingarfyrirtækja, sem hafa á að skipa hundruðum sérfræðinga. Segir í tilkynningunni að hækkunin á tryggingagjaldi þýði á annað hundr- að milljóna króna í árlega kostnaðar- hækkunu fyrir Nýherjasamstæðuna. Heildartap Nýherja í fyrra nam tæpum 690 milljónum króna Segir rekstrarumhverfi enn ekki eðlilegt Morgunblaðið/Sverrir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.